Alþýðumaðurinn

Útgáva

Alþýðumaðurinn - 02.04.1946, Síða 4

Alþýðumaðurinn - 02.04.1946, Síða 4
4 ALÞÝÐUMAÐURTNN Þriðjudaginn 2. Apríl 1946 Barnasktilinn keaiir nmferðarefllur. Eitt af vandamálum bæjanna er umferðin. Mikið skortir á að almenningur geri sér ljóst hve hér er mikið í húfi og flest um- ferðaslys stafa af því að um- ferðareglna er ekki gætt og hve framferðis fólks á almannafæri er ábótavant. Barnaskólinn hér hefir mik- ið gert að því að kenna börnun- Úm algengustu umferðareglur, og nú um mánaðamótin voru þeirn afhentar 14 spurningar varðandi þessi mál, sem Jaau eiga að leysa úr. Hér var um að ræða 10—14 ára börn. Er þetta nokkurskonar próf í þessari námsgrein. Spurningarnar virð- ast vera vel valdar, það sem þær ná og væri vel að með þessu fengist sá árangur sem til er ætl- ast. En, meðal annara orða, væri nokkur vanþörf á, að kenna eldri kynslóðinni eitthvað í umferða- reglum. Framferði fólks á al- mannafæri virðist ekki ætíð benda til, að það þekki almenn- ustu umferðareglur eða hegðun á götum úti. Og jafnvel þótt barnaskólanum tækist að ein- hverju leyti að skýra fyrir börn- unum hvernig þeim beri að hegða sér á götum úti, er ólík- legt um varanlegan árangur meðan eldra fólkið þverbrýtur sjálft allar þær reglur, sem verið er að kenna börnunum að virða. Alþýðum. hefir oft á það minnst að lögreglusamþykkt bæj arins þurfi að endurskoða, prenta og koma í hendur hverr- ar einustu fjölskyldu í bænum. Útgáfa og útbýting slíkrar hús- postillu væri ólíkt þarfara fyr- irtæki en ýmislegt annað, sem fé er eytt í. Og þegar rætt er um fegrun og þrifnað bæjarins má alls ekki gleym'a því atriðinu, sem máske er mikilvægast og setur mestan svip á bæinn, liegð- un fólksins sjálfs. Kvenfélag Alþýðuflokksins. Framh. af 1. síðu. hugamál og opinber málefni snerta þær og þeirra verkahritig ekki síður en karla. Hvað líður stofnun kvenfé- lags Alþýðuflokksins hér í bæri- um? Einhver undirbúningur hef- ir átt sér stað. En ætla konurnar að láta þar við sitja? LÉREFTSTUSKUR Kaupum við hœsta verði. Prentsmiðja Bjöms Jónssonar h. 1 SÖRLI SONUR TOPPU (framh. sögunnar „Trygg ertu Toppa) omin í bókaverzlanir Frá Húsmæðraskóla Ákureyrar Námskeið verða haldin í húsmæðraskólanum í vor í matreiðslu, saumum og vefnaði. Námskeiðin hefjast að öllu forfallalausu 3. júní og standa í fjórar vikur. Umsóknir skulu sendar til undirritaðrar fyrir 15. maí. Nánari upplýsingar í síma 199 eftir hádegi á mánu- dögum. Helga Kristjánsdóttir. CHKB><bí<bKB>:^<Bbí<b><b*<b><h><b*<b><hS<bXbKbS<hMb><b><B><b><BS<b^2^ KBMB*<BKB3<B*<B><HS<BS<BKBí<HS<BKBS<BS<HKBmBB><BKB*<Bí<B><BS<H><HS<Bí<H Byggingaf ul If rúastarf ið á Akureyri er laust til umsóknar. — Um-{ sóknum sé skilað á skrifstofu bæjarstjóra? fyrir 10. apríl næstkomandi. Bæjarstjóri. KBStS<BS##<BSKBSKBSKBStS<BStS<BSriWSri<HStStSWStSKBSri<BSÍBStSÍBS<HSÍHStS<BS<BS<BSÍ 1 NÆTURSIMAV ÖRÐUR. 2 I I I | 1 i 1 I y ,1 . | Nætursímavarðarstaðan við landsímastöðina hjer er laus * til umsóknar. — Konur, jafnt sem karlar, geta annazt g starfið. — Eiginhandarumsóknir, þar sem getið er aldurs * og menntunar, sendist undirrituðum fyrir 15. apríl n. k. \ j Símastjórinn á Akureyri, 28. marz 1946. GUNNAR SCHRAM. 2 I | I i Mandlige og kvindelige Plejeelever samt Piger til Kökken, Vaákeri og Afdelingstje- neste kan antages. Nær- mere Oplysningar ved Henvendelse til Hospital- forvalteren. Sindssygehospitalet i Nyköbing, Sjælland, Danmark. CM Leirtau DJÚPIR DISKAR GRUNNIR DISKAR BOLLAPÖR VATNSGLÖS nýkomið* Kaupfél. Verkamanna Grámannn í tGarðshorni ieikur engil. í næstsíðasta tölubl. Verkam. er Jón Ingimarsson að skreyta sig með tilvonandi hæjarbygg- ingum. Um þær var annars sam- jið af öllum flokkum, sbr. 7. gr. hæjarmálasamningsins í vetur. í dagskrá til bæjarstjórnar- fundar 19. Mars 1946 segir svo frá bæjarráðsfundi 14. Mars s. á.: „Jón Ingimarsson leggur fram eftirfarandi tillögur með erindi 6. þ. m.: 1. Að Akureyrarbær hefji þeg ar undirbúning 3ja íbúðarhúsa, hvert með 4 íbúðum. 2. Að Eiðsvöllur verði ætlað- ur undir byggingu þessara íbúð- arhúsa. 3. Að bæjarráð feli Tryggva Jónat. að gera uppdrætti að fyr- irhuguðum bæjarhúsum. 4. Að fela bæjarstjóra að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til útvegunar á efni til íbúðar- húsanna. 5. Að bærinn ráði til sín bygg- ingarmeistara til að hafa á hendi eftirlit með öllum bygginga- framkvæmdum bæjarins. 6. Lögð verði gangstétt út Brekkugötu frá Sniðgötu að sölu búð KEA. Bæjarráð hefir þegar falið Tr. Jónat. að gera tillöguupp- drætti að íbúðarhúsum og liggja þeir nú fyrir þessum fundi. Lít- ur bæjarráð því svo á, að þar séu tveir liðir (1. og 3.) framan- greinds erindis afgreiddir. Bæjarráð hefir gert tillögu til bæjarstjórnar um, að Eiðsvöll- urinn verði lagður undir hús- byggingar. Verði það samþykkt, hefir bæjarráð helst hugsað sér, að bæjarhúsunum verði þar val- inn staður ásamt fyrirhuguðu verklýðshúsi. Bæjarráð leggur til að bæjar- stjóra sé falið að reyna að út- vega byggingarefni til fyrirhug- aðra 12 íbuða. Var búið að ræða það áður lauslega. Bæjarráð fel- ur bæjarstjóra að auglýsa nú þegar eftir byggingameisturum fyrir bæinn (sbr. bókun hygg- inganefndar sjúkrahússins). Bæjarráð ákveður að láta leggja mjóa gangstétt meðfram Brekkugötu að vestan frá Snið- götu að verslunarhúsi KEA.“ Svo að Jón átti þá bara gang- stéttina! Minnir þetta ekki á það, þeg- ar Grámann í Garðshorni tók að leika engil?

x

Alþýðumaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.