Alþýðumaðurinn - 06.05.1947, Page 1
(^lþijíiumaðuriaa
fc —— .. „ ■!—,.■»» „ I I - - _ - -- - __
XVII. árg. Þriðjudagur 6. maí 1947 ' 18. tbl.
Elíllnísdaosuinræóurnar.
Kantöttukúr Akureyrar
tlytur í kyöld Strengleika eftir
Björgvin Guðmundsson.
Karlakór Akureyrar aðstoðar og einsöngvarar koma from
Skjaldborgarbíó
Aðalmynd vikunnar:
í STUTTU MÁLI
(Roughly Speaking)
Áhrifamikil mynd gerð eftir
hinni frægu sjálfsævisögu
L. Randall Piersons.
Aðalhlutverk:
Rosalind Russel — Jaclc Carson
^ ^ f a P t á
Nœsta mynd:
Látum drottin dœma
Amerísk stórmynd í eðlilegum
litum frá 20th Century Fox
Pictures.
Leikstjóri: John M. Stahl.
Aðalhlutverkin leika:
Jeanne Crain — Gene Tierney
Cornel Wilde
Hátíðahöldin
1. maí.
Fulltrúaráð verklýðsfélaganna á
Akureyri efndi til mikilla hátíða*
halda að kveldi 30. apríl og svo 1.
maí. Vegna lítillar aðsóknar féllu þó
hátíðahöldin 30. apríl niður, en
fórn hinsvegar fram 1. maí sam-
kvæmt dagskrá. Hófust hátíðahöldin
um kl. 2 e. h. með útifundi á Strand-
götunni og voru þar 4 ræður fluttar.
Síðan fór fram kröfuganga og tóku
um 130—140 fullorðnir þátt í henni,
en verklýðsfélög þau, sem að henni
stóðu munu telja um 900 meðlimi.
Mættu konur sýnu betur til göngunn-
ar en karlar, en stærsti hópurinn voru
böln um og innan 10 ára aldurs.
Að kröfugöngunni lokinni var fund-
ur í Nýja Bíó og fóru þar fram ræð-
ur, upplestrar og söngur. Loks voru
kveldskemmtanir í Samkomuhúsinu,
á báðum stöðunum fremur fámennt
að sögn.
Alþýðuflokksfélag Akureyrar
gekkst einnig fyrir kveldskemmtun
1. maí. Var hún á Hótel Norðurlandi.
Voru þar ræður fluttar, lesið upp,
sungið og sýnd kvikmynd, en að lok-
um dansað.
Guðmondor Jönsson
Guðmundur Jónsson, hinn vinsæli
barytonsöngvari, kom hér í síðustu
viku og hélt þrjár söngskemmtanir.
Voru tvær þær fyrri fjölsóttar og
söngvaranum og aðstoðarmanni
hans, Fritz Weisshappel, tekið vel af
áheyrendum. Guðmundur söng að
þessu sinni mestmegnis erlend lög og
almenningi hér fremur lítið kunn.
Mun það vafalaust hafa ráðið nokkru
um, að honum var ekki klappað lof
í lófa af jafnmikilli hrifningu og er
hann kom hér næst á undan. Lögin,
sem hann valdi, gáfu honum, mörg
hver, heldur ekki færi á að njóta að
fullu hinna fögru blæbrigða raddar-
innar, heldur var hinn jafni þungi
oftast einkennandi. Bezt þótti þeim,
er þessar línur ritar, að hlýða á með-
ferð söngvarans ó þjóðlaginu Amma
raular í rökkrinu, Dusty road eftir
L. René og ameríska vögguvísu, aem
söngvarinn söng sem aukalag.
z.
LEIÐRÉTTING.
Eg hefi orðið var við allvíðtækan
misskilning hjá bæjarbúum hvað-við
kemur atkvæðagreiðslu í Bílstjóra-
félagi Akureyrar um vinnustöðvun.
Þessi misskilningur er aðallega
tvennskonar: í fyrsta lagi, að deila
þessi standi um hækkun á ökutaxta
bifreiða. Og í öðru lagi, að hér sé
um pólitískt verkfall að ræða. Vegna
þessa tel ég rétt að taka fram eftir-
farandi: Hér er ekki um að ræða
leigugjald bifreiða, heldur kaup og
kjör launþega í Bílstj órafélagi Akur-
í kvöld flytur Kantötukór Akureyr
ar tónverk Björgvins Guðmundsson-
ar, Strengleika, í kirkjunni. Hefir
kórinn æft verk þetta fró nýjári und-
ir stjórn tónskáldsins og hefir Karla-
kór Akureyrar. tekið þátt í þeim æfing
um. Verk þetta verður flutt af 80
manns og koma 8 einsöngvarar fram,
4 konur og fjórir karlar. Texti verks-
ins er eftir Guðm. Guðm. skáld og er
ástarharmleikur í þrem þáttum. —
Flutningur verksins mun laka um 2
tíma, en nokkru er þá sleppt úr heild
arverkinu.
Ekki þarf að benda bæjarbúum á,
að hér er merkilegur þáttur í menn-
ingarlífi bæjarins, þar sem starf kant-
ötukórsins er, sem og annarra kóra.
Er þetta 5. stórverk Björgvins Guð-
mundssonar, sem kórinn flytur hér.
Fyrst Alþingishátíaðarkantatan 1933,
sem hér varð mjög vinsæl, þó helgi--
kantatan: Tilkomi þitt ríki 1934,
kaflar úr Friði ó jörðu 1936 og Ör-
lagagátan 1946.
Eflaust nota bæjarbúar tækifærið
í kvöld og skyggnast undir hönd
tónskáldsins inn í töfraheima tónlist-
arinnar.
Handamnnunámskeið. NámskeiÖ fyrir
kennara í handavinnu skólabarna verður
haldið á Svalbarði við Eyjafjörð og hefst
28. maí n. k. Upplýsingar veitir eímstöðin
á Svalharðseyri í fjarveru minni. Halldóra
Bjarnadóttir.
eyrar. Hér er eingöngu um faglegt
mál að ræða, sem sést meðal annars
á því, að kröfur þær, sem Bílstjóra-
félagið gerði, voru settar fram áður
en vitað var um þær tollahækkanir,
sem nú eru orðnar að lögum.
Hafsteinn Halldórsson.
Stjórnarandstæðingar
fara mjög halloka.
Mánudags- og þriðjudagskvöld í
síðustu viku fóru eldhúsdagsumræð-
ur fram á Alþingi, og var þeim út-
varpað. Fyrir Alþýðuflokkinn töluðu
ráðherrar flokksins, Stefán Jóh.
Stefónsson og Emil Jónsson og einn-
ig Finnur Jónsson. Eysteinn Jónsson
og Bjarni Ásgeirsson töluðu fyrir
Framsóknarfl., Bjarni Benediktsson,
Jóhann Þ. Jósefsson og Ólafur Thors
fyrir Sjálfstæðisfk, en Brynjólfur
Bjarnason, Áki Jakobsson og Eina.r
Olgeirsson fyrir Sósíalistaflokkinn.
Ekki er þörf á að rekja umræður
þessar fyrir hlustendum, en almenna
athygli mun hafa vakið, hve Bryn-
jólfur Bjarnason hagaði sér ferlega
í upphafi umræðnanna og síðar hve
gjiirsamlega stjórnarandstaðan stóð
berskjölduð og yfirbuguð við lok
þeirra. Reyndist stjórnarferill Aka
þar hinn háskalegi Akkillesarhæll
Sósialistanna: fjárbruðl hans, fávísi
í millilandaviðskiptum og óstjórn
hans á byggingu síldarverksmiðjanna
nýju á Siglufirði og Skagaströnd. Er
óhugsandi annað, en þar verði fyrir-
skipuð opinber rannsókn.
Síðara umræðukvöldið bar mjög
á forflótta stjórnarandstöðunnar:
Áka reyndi hún ekki að verja, Bryn-
jólfur flutti innantóma fullyrðinga-
ræðu, Einar spilaði eina sína froðu-
mælgisplötu, sem alþjóð er löngu
þreytt á, en báðir hótuðu verkföllum.
Má því búast við sögulegu sumri, ef
íslenzkur verkalýður gætir sín ekki
vel fyrir flugumennsku þeirra, sem
hyggjast efna til pólitískra verkfalla,
hvað sem hagsmunum verkalýðsins
líður. Setjum t. d. svo, að þeim tæk-
ist að stöðva síldveiðiflotann í ein-
liverri aflahrotunni, væri íslenzkur
verkalýður að bætari, ef þjóðin yrði
af tugmiljónum í gjaldeyri? Vtpri
hann betur undir veturinn búinn?
Væri meiri líkur til, að hægt yrði
þá að lækka tollana að ári? Þannig
spyrjum við og þannig á íslenzkur
verkalýður að spyrja, áður en hann
tekur ákvörðun sína um að leggja
út í kaupdeilur.