Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 06.05.1947, Blaðsíða 4

Alþýðumaðurinn - 06.05.1947, Blaðsíða 4
4 ALÞÝÐUMAÐURINN Þriðjudagur 6. maí 1947 Hvernig kommúnistar skíldu við K.F.S. Kaupfélag Siglfirðinga hélt aðalfund sinn föstudaginn 11. f. m. — Hagur kaupfélagsins hefir mjög batnað s. 1. ár. Tekjuafgangur ársins nam kr 179.918.63. Til samanburðar má geta þess, að töluverður halli var á félaginu hin miklu veltuár 1944 og 1945. eða í stjórnartíð kommún- i»ta. Samþykkt var að tekjuáfganginum skyldi þannig varið: Afskrifað verði: 1. Hlutabréf í Gilslaug ........ 18.000.00 2. Skuld Gilslaugar ............ 21.768.37 3. Málafærslukostnaður núv. stjórnar 3.277.15 4. Halli frá 1944 (hluti) ......... 13.858.32 5. Halli frá 1945 (allt) .......... 34.820.14 6. ógreiddur kostnaður frá 1945 .... 1.780.39 7. Tap á kápum og fl. vörum..... 15.101.02 ---------- 108.605.39 Lagt verði í sjóði: 1. Sambandsstofnsjóð ........... 19.528.06 2. í stofnsj. fél.m. 5% af ág.sk. viðsk. 51.785.18 ---------- 71.313.24 * Kr. 179.918.63 Brask Þórodds og Co. í Gilsaug, hafa félagsmenn nú fengið að greiða, svo og kápurnar frægu. Ennfremur reksturshallann frá stjórnar- tíð kommúnistanna. Þrátt fyrir þetta er félagsmönnum greitt 5% af ágóðaskyldum viðskiptum í stofnsjóð sinn, en það, að ekkert er greitt í reikning félagsmanna, er sök kommúnista og Gilslaug Þórodds og káp- um. Stjórn kaupfélagsins hefir nú þegar hafið undirbúning á nýjum framkvæmdum. Ennfremur mun kaupfélagið hefja söltun að sumri kom- anda. (Neisti, 18. apríl 1947). SiMarbræðslnstOðin Dagverðareyri h.f. tilkynnir: Allir þeir verkamenn, sem hjá oss unnu síð- astliðið sumar, eru áminntir um að segja til, hvort þeir ætli sér að vinna hjá oss næsta sumar, og gera það eigi síðar en 15. maí n. k. Framkvæmdastjórinn. Heimilisiðnaðarsýning Vegna þátttöku í Landbúnaðarsýningunni í Reykjavík í júnímán- uði næstkomandi verður heimilisiðnaðarsýning haldin á Akureyri á vegum Heimilisiðnaðarfélags Norðurlands dagana 24., 25. og 26. maí næstkomandi (hvítasunnu). — Upplýsingar gefur varaformaður félagsins, Ragnheiður O. Björnsson, í fjarveru formanns. Haimilisiðnoðarfélag Norðurlands. óinar á öyvinni. m „Úrlaus“ skrifar aftur: Eg þakka lir. Kristjáni S. Sigurðs- syni fyrir þær upplýsingar, sem hann gaf í Degi um daginn varðandi klukk una. Mikil framsýni og bjartsýni hef- ir það verið að ætla klukkunni stað á kirkjunni, fyrst að hún átti ekki að fylgja byggingunni. Þeir vanmeta ekki höfðingsskap okkar bæjarbúa þarna í sóknarnefndinni. En klukkan hefði mátt vera komin fyrr, og hvers vegna hefir ekkert verið á þetta minnzt? Hins vegar skil ég ekki,hvers vegna ekki er hægt að fá svona klukku annars staðar en í Svíþjóð, er ekki klukkan í stýrimannaskólan- um ensk? Annars finnst mér óþarfi af Krist- jáni að vera að hnýta í mig vegna þessa, finnst mér ég eiga fremur þakk ir skilið fyrir að hafa vakið máls á þessu, ef einhverjir skyldu vilja ljá því lið. Raunar hefði ég gaman af að vita, hvað það er hér í þessum bæ, sem til almenningsheilla liorfir, sem ekki hefir þurft að skjóta saman í. Kanske veit Kristján það. Bréf um útvarpstruflanir. „Undanfarið hafa útvarpstruflanir verið með mesla móti hér á eyrinni. Þær eru oft svo magnaðar, að naum- ast er hægt að hlusta heil kvöld. Þó hefi ég tekið eftir því, að ef úlvarpið flytur eitt — það, sem ætla má, að flestir vilji hlusta á, hverfa þessar truflanir með öllu. Þetta virðist benda til þess, að truflanir þessar stafi af notkun einhverja rafmagns- tækja, sem síðan trufla. Mig langar því til að spyrja, hvort ekki sé haft eftirlit með þeim rafmagnstækj um, sem seld eru í verzlunum og hvort ekki séu menn til að lejta að trufl- andi áhöldum.“ Þessu get ég ekki svarað, en þeim, sem um þetta eiga að sjá er heimilt rúm hér til andsvara. 1 Gamanþáttur „íslendings“ Á síðu sambands ungra Sjálfstæð- ismanna í síðasta íslendingi er sér- lega hláleg klausa, sem á að vera ein- hverskonar svar við gagnrýni þeirri, sem ég birti um daginn um gaman- þátt Indriða. Það er að vonum að Varðarpiltum sárni þessi „niður- sláttur“ Indriða,því að þar hefir hann verið hin leiðandi stjarna og hvergi látið ljós sitt skína annars staðar fyrr en þarna á dögunum. Ef þeir eru hins vegar svo hrifnir af þessu slúðri, að þeir eyða sinni dýrmætu síðu í það að mæla honum bót, virð- ist svo, sem þeir séu ekki vanir neinu betra á kvöldvökunum. Þegar höfundur fer að tala um strauminn inn í Vörð, er gamansem- inn komin á nógu hátt stig, svo að við getum alveg sleppt þessu með öfundina. Einar á Eyrinni. Bílstjórafélag Akureyrar hejir undanfarið átt í samningum við atvinnurekendur. Ilejir ekki gengið saman um mánaðarkaup bíl- stjóra, sem vilja já sama grunnkaup hér og greitt er í Reykjavík. S. I. föstudag og laugardag fór svo fram allsherjar atkvœðagreiðsla hjá fé- laginu um, hvort hejja skyldi vinnu- stöðvun. Greiddu 90 atkv., 75 með vinnustöðvun, 12 á móti, en 3 seðlar auðir. Gðlídreglar nýkomnir. Vöruhúsið h.f. AxlabOnd karlm. og drg. Vöruhúsið h.f. Drg. föt Drg. skyrtur Drg. nærföt Drg. blússur með hettu 1 Drg. vesti Drg. sportsokkar Drg. húfur Drg. vettlingar Brauns verzlun

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.