Alþýðumaðurinn - 24.06.1947, Síða 1
XVII. árg. Þriífjudagur 24. júní 1947 24. tbl.
Ferðaskrifstofa Akureyrar.
g j »
Sýnir í kvöld og næstu kvöld:
VEÐREIÐARNAR
MIKLU
(NATIONAL VELVET)
Metro Goldwyn Mayer stór-
mynd í eðlilegum litum.
MICKEY ROONEY
Elizabeth Taylor — Donald Crisp
Skjaldborgarbíó
GÖMLU
DANSARNIR
Fjörug músíkmynd.
Hátíðahöldin á
Akureyri 17. júní.
Hátíðahöldin hér 17. júní fóru vel
fram. Kl. 2 lék Lúðrasveit Akureyr-
ar undir stjórn Áskels Jónssonar á
Ráðhústorgi, en þaðan var farið í
skrúðgöngu upp á túnin sunnan
sundlaugarinnar. Tók mikill fjöldi
bæjarbúa þátt í göngunni. Efra fór
fyrst fram fánahylling en síðan setti
bæjarstjóri hátíðina. Þá var guðs-
þjónusta og kirkjukórinn söng. Þor-
steinn M. Jónsson flutti lýðveldis-
ræðu og einnig talaði Kristján Ró-
bertsson, stúdent. Kantötukórinn
söng og að lokum var þjóðsöngurinn
simginn.
Kl. 4.30 hófst annar þáttur hátíða-
haldanna með fimleikasýningu
stúlkna undir stjórn Þórhöllu Þor-
steinsdóttur. Karlakórinn Geysir
söng, en síðan fór fram keppni í
fimmtarþraut og bar Haraldur Sig-
urðsson þar sigur úr býtum.
Kl. 9 um kvöldið lék Lúðrasveitin
aftur og nú uppi á túnum og Karla-
kór Akureyrar söng. Loks var dans-
að inni í Samkomuhúsinu.
★
DRENGUR BÍÐUR BANA
Sl. föstudag vildi það slys til hér í
bænum, að 5 ára drengur, Grétar Ól-
afsson, Aðalstræti 44, varð undir bíl
og beið bana af. Nánari atvik, að því
er blaðið bezt veit, voru þessi: Verið
var að flytja tunnuefni inn að
geymsluhúsi Tunnuverksmiðjunnar á
bifreiðinni A-278. Um kl. 4 var bíl-
stjórinn að aka henni aftur á bak
norður með austurhlið geymsluhúss-
ins og hafði áður tekið eftir Grétari
litla þar rétt hjá. Hafði drengurinn
verið þar áður um daginn og hugði
bílstjórinn öruggt, að hann gætti sín
fyrir bílnum. Dyrnar stýrismegin
hafði bílstjórinn opnar og horfði
aftur um þær, um leið og hann
,,bakkaði“. Heyrði hann þá allt í
einu kallað upp og hemlaði þegar,
en þá hafði annað afturhjól bifreið-
arinnar farið yfir litla drenginn. Var
honum þegar ekið á spítalann, en
reyndist þá látinn. Ekki er vitað,
hvað olli því, að drengurinn varð
fyrir bifreiðinni. Bílstjórinn, sem ek-
ur A-278, er alkunnur sem gegn og
gætinn ökumaður.
EKKERT SAMKOMULAG
í gær og fyrradag hafa farið fram
hér í bænum samkomulagsumleitan-
ir milli síldarverksmiðj a norðan-
lands utan Siglufjarðar annars veg-
ar og samninganefndar frá Alþýðu-
sambandi Norðurlands hins vegar.
Ekkert samkomulag náðist. Neitaði
samninganefndin — en fyrir henni
munu ráða mest Guðmundur Vig-
fússon, erindreki Alþýðusambands
íslands, og Steingrímur Aðalsteins-
son, stjórnarmaður Krossanesverk-
smiðjunnar, — öllu samkomulagi,
nema samið yrði einnig við Þrótt á
Siglufirði, sem kommúnistar hafa
att út í ólöglegt verkfall, að því er
flestir telja. Er nú nokkuð augljóst,
að það tekst að kyrkja verksmiðju-
rekstur Akureyrarbæjar i Krossa-
nesi þegar á fyrsta ári, sé ekki þegar
unninn bráður bugur að því að hefta
skemmdarstarfsemi þá, sem — og
það er það alvarlegasta — ógnar nú
öllum síldarútveginum norðanlands.
í dag hefir Ferðaskrifstofa Akur-
eyrar starfsemi sína í húsi Búnaðar-
bankans. Er hún útibú frá Ferða-
skrifstofu ríkisins, en forstöðumaður
hennar er Jón Egils, kaupmaður.
Skrifstofan mun haga starfsemi
með líkum hætti og aðalskrifstofan í
Reykjavík. A öðru leitinu mun hún
skipuleggja og undirbúa hópferðir
lengri og skemmri, en hinsvegar
veita ferðamönnum, er að garði
bera, hvers konar fyrirgreiðslu, hefir
hún in. a. tryggt sér allmörg herbergi
til gistingar ferðamönnum, einnig
mun hún annast útvegun bifreiða
HAPPDRÆTTI UM
TUTTUGU BIFREIÐAR
Samband íslenzkra berklasjúklinga
hefir fengið 20 fjögra manna Renault
bifreiðar, sem efnt verður til happ-
drættis um.
Dráttur mun fara fram fjórum
sinnum, um fimm bíla í hvert skipti.
Fyrsti dráttur fer fram 15. júlí,
annar 15. nóvember, þriðji 15. febr.
1948 og fjórði 15. maí 1948.
Sömu miðar gilda, án endurnýjun-
ar, fyrir alla drættina og halda því
verðmæti sínu til loka happdrættisins
í maí 1948.
í síðasta drættinum verður aðeins
dregið úr númerum seldra miða.
Hér á Akureyri verða happdrættis-
miðarnir seldir í öllum bókaverzlun-
um og á skrifstofu Flugfélags ís-
lands.
Gangleri, 1. hefti 21. árs, er ný-
lega kominn út, Flytur margar at-
hyglisverðar og vej .ritaðar greinar,
bæði eftir ritstjórann o. fl. Hugsandi
fó.lk ætti að lesa þetta rit meira en al-
mennt gerist. Það flytur ætíð nokkuð
merk tíðindi, sem eiga erindi til
margra. Hér ó Akureyri fæst Gang-
leri hjá Sigurgeiri Jónssyni, söng-
kennara, Spítalaveg 15.
eftir ósk ferðamannahópa o. s. frv.
Það er full ástæða til að fagna því,
að ferðaskrifstofa hefir tekið til
starfa hér í bænum, og að ötull mað-
ur og áhugasamur hefir fengizt til að
veita henni forstöðu. Akureyri er
fyrir flestra sakir sá bær hér á landi,
sem mesta möguleika hefir sem ferða-
mannabær, en fram að þessu hefir
næsta lítið verið til þess gert að
beina hingað ferðamannastraum,
enda enginn aðili, sem annazt hefir
fyrirgreiðslu ferðamanna. Hinu fær
enginn neitað, að miklar heimsóknir
ferðamanna eru drjúgur tekjuauki
fyrir bæinn sem heild. En til þess að.
auka ferðamannastrauminn er þrent
nauðsynlegt: í fyrsta lagi auglýsinga-
starfsemi. í öðru lagi að um örugga
fyrirgreiðslu á staðnura sé að ræða,
og síðast en ekki sízt að ferðamönn-
um sé gerð dvölin jafn þægilég og
ódýr, sem framast er unt. Mun for-
stöðumaður skrifstofunnar hafa full-
an hug á að reka hana með þeási
sjónarmið fyrir augum. Er þess að
vænta, að bæjarbúar greiði fyrir
þeirri viðleitni eftir föngum. Má í
því sambandi minna á, að enn mun
skrifstofuna vanta gjstiherbergi, og
ættu þeir, sem léð gætu herbergi í
því skyni, að lóta hana vita af því sem
fyrst.
Eins og sakir standa nú, er aðal-
lega ætlazt til, að skrifstofan starfi
yfir sumarið, en forstöðumaður
hennar hyggst einnig að reka hana
að einhverju leyti í vetur. En Akur-
eyri er á marga lund mjög vel fallin
til vetraríþrótta, og er ekki ósenni-
legt, að margir myndu leita hingað
t. d. í páskaleyfi í þeim tilgangi,. ef
þeir ættu hér vísan samastað, en úr
• • > '*»
þ.ví mun nú verða bætt.
Ferðaskrifsto.fan hefir samvinnu
við Ferðafélag Akureyrár óg fer vel
á því, að þessir aðilar vinni saman,
Er. þess *að vænta, að starfsemi sú,
sem nú er hafin megi eflást og Akur-
eyri og nágrenni verða. hið fyrir-
heitna land ferðamanna á komandi
árum, þeim sjólfum til ánægju og
bænum til hagsbóta.
St. Std. ..