Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 30.12.1947, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 30.12.1947, Blaðsíða 1
XVII. árg. Þriðjudagur 30. desember 1947 48. tbl. Hvar á ráðhðs bæjarins að standa? Togarinn Kaldbakur seldi afla sinn í níunda sinn rétt fyrir jólin á rösk 11 þús. pund. Togarinn fór . annan jóladag út á veiöar. ★ VetrarsíldveiSin bafði náð 600 ])ús. málum, er veiðiblé varð fyrir jólin. Voru innfirðir Faxaflóa, Hval- fjörðiir og Kollafjörður þá sagðir fullir af síld. Tíðarfar htefir verið stirt yfir jólin, svo að síldarflutningar hafa gengið seint norður. ★ Tveir þýzkir togarar liafa verið fermdir ísaðri síld til Þýzkalands og héldu héini fyrir jól. Tveir liggja á Reykjavíkurhöfn og bíða hleðslu, en þrír eru sagðir á leið hingað iil lands i síldarsókn. ★ SíSastliðinn laugardag kom upp eldur í nijölgevmslu SRN á Siglu- firði. Mjölhjaðar voru rófnir og reyndist eldsglóð í allmörgum -mjöl- pokum, en mikill biti í öðrum. Þó eru skemmdir taldar vonum minni. * Tíöarfar hefir verið mjög stirt um jólin hér norðanlands, hríðárveöur og allfrosthart og géngið á með stór- hríðarliviðum. * Bankarnir hafa auglýst hækkun inn- og útlánsváxta frá og nieð 1. jan. n. á. Ilækka útlánsvextir al víxillán- um t. d. í 6%, en innlánsvextir hækka í 2—414 V eftir því hve uppsagnai'- frestur sparifjárins er langur. * Stefnuviti fyrir flugvélar hefir ver- ið settur upp við Kálfshamarsvík á Skaga. Ilefir Flugráð staðið fyrir framkvæmdum þessum. Telja flug- fróðir menn, að viti þessi nuini auka mjög öryggi á flugleiðinni norður og norðan. Á þorláksdag var áfengisútsölum ríkisins lokað uni liádegi, þar eð veruleg brögð þóttu að óeðlilega miklum áfengiskaupum. Mun liafa leikið grunur á, að allmargir hyggð- ust skipta á ljósfælnum seSlum og vínbirgðum, áður en reiðarslag eigna könnunarinnar dytti á. Eigi mun þó ríkiskassinu liafa þolað lokun til kvölds, því að aftur var lokum skotiö frá kl. 8 s. d. á þorláksdag og hinar dýru veigar seld ar til.kl. 11 um kvöldið, en engum álti þá að selja meira en eina ,,sterka“ og tvær „veikar“. 21. þ. m. andaðist að heimili sínu, Strandgötu 25 b. frú Jónína Vilborg Pálsdóttir, kona Halldórs Jóbannes- sonar, nær því sjötug að aldri. Vel látin sómakona í orðsins réttu merk- irigu. Hún verður jarðsett 2. næsta mánaðar. # 18. þ. m. andaðist að heimili sínu' hér í bænum Brynjólfur Stefánsson, kaupmaður. Maður vel látinn og yirtur. Hann verður jarðsunginn i dag. FAXI, bókin utn hestinn. mun þykja með athyglisverðarí bók- unum. sem út komu fvrir jólin. Þetta er stór ]jók og myndarlega útgefin. prýdd tnörguin teikningum eftir Halldór Pétursson. Eins og flestum lesendum mun kunnugt af auglýsirigum og blaða- dómum, sém þegar liafá birzt um bók þessa. er hún skráð af-dr. Brodda jóhannessyni. Héfi'r bann sáfnað ýmsurri fróð- leik um hestinn, siði, týu óg hindur- vitni í sambandi við hann og marg- háttað samlíf íslenzku þjóðarinnar við þerinan þarfa og irúa þjón henn- ar. — Senr dæmi um iimihald bókarinn- ar skal hér riefna nokkur kaflaheiti og þó fá ein: HVossaket, Sleipnir. Hel. Hamfar- ir, Hestavíg, Fargervi, Lestir, Stóð og klakahross, Um samband manns og hests, Þræll óg herra, Allsherjar- ríki í hófum. Höfundur bókarinnar fer mjög vel með íslenzkt mál. Bæjarráð og bygginganefnd Ak- ureyrarkaupstaðar hefir að undan- förnu haft til athugunar tillögur skipulagsstjóra ríkisins um endur- skipulagningu á miðbænutn. Sam- kvæmt bráöabirgðarteikningu, sem skipulagsstjóri hefir sent norður, eru gerðar verulegar breytingar á mið- bænum og nágrenni h'ans. Kaupvangstorg er stækkað mikið og er gert ráð fyrir, að húsin neðan Hafnarstrætis, en sunnan Kaupvangs strætis verði rifin suður að Gud- mannsgarði. Sömuleiðis er gert ráð fyrir verulegri breíkkun Kaupvangs- strætis upp giliö, en að slíku er brýn þörf sökum mjög mikillar umferðar kringum KEA. Þá er ætlazt til að skúrarnir á hafnarbakkanum liverfi og Skipa- gata breikki vexulega, og ennfrem- ur er gert ráð fyrir mikilli uþpfyll- ingu sunnan Strandgötu. Eftir teikningu skipulagsstjóra á Ráðhústorg að stækka mikið, en efst við Strandgötu er ráölmsi l)æjarins ætlað.ur staður. Sá er galli á þeirri fyrirætltín, að Landsbankinn hefir keypt hina fyrirhúguðu lóð, og mun fýsa að reisa þar húsakynni yfir starfsemi sína. Þótt mál þetta sé enn allt á athug- unarstigi, mun bæjarráði og bygg- inganefnd þó sýnast breytingar þess- ar fnllstórkostlégar og verða allt of dýrar í framkvæmd. Hins er samt ekki að dvljast, að varla verður við það utiaö til lengd- ar, að setið sé og skrafað um það milli dúra, hvar ráðhús bæjarins skuli kotna, hvar leikhús, hvar bæj- arbíó. Enginn Akureyringur mun svo metnaðarlaus fyrir bæ sinn, að hann fýsi eigi, að hér rísi á legg menningarlegur bær, bær,. sem sníð- ur sér snotran stakk eftir vexti, en arkar ekki leiöar sinnar eins og slenjustór unglingur í allt of þröng- um fermingarfötum. En hvar á þá ráðhúsið að standa? Sennilegast yrði hentugast og ódýr- agt að byggja ráðhús, leikhús og bíó allt í einni byggingu, og koma ýmsar lóðir til greina undir slíkt liús: 1. LóÖirnar 1—3 við Brekkugötu. 2. Hin fagra lóð á horni Oddeyr- ar- og Brekkugötu. 3. Lóðirnar Strandgata 1 og Brekkugata 2. 4. Lóð við Eiðsvöll. Hér verður að sinni engin ákveð- in skoðun sett fratn um það, hver þessara staða skuli valinn, það getur verið ágæl áramótahugleiðing fyrir bæjarbúa að velja ráðbúsi bæjarins stað. Hins er að vænta, að þegar hin örjagáíika ákvöröun verður tekin i bæjarstjórn Akureyrar , þá verði hún liep])ileg — og ekki alll of seint á ferðinni. STÓRVIÐRI Aðfaranótt sl. sunnudags brast á ein hin versta stórhríð, sem lengi hefir komið hér um slóðir. Brast hún mjög skyndilega á um kl. hálf eitt. Sem dæmi um veðurofsann er það, að fjöldi bíla, sem var að flytja fólk af dansleik framan úr Hrafnagili, tepptist algerlega, og munu um 10 bilar liafa teppzt neðan Kristneshæl- is, en fólkið leitaði athvarfs heim í hælið og næstu bæi. 5 bílar komust nær bænum. Gengu sumir farþeg- anna í bæinn, en aðrir munu hafa átl kalda nótt í bílunum, og úr ein- utn bílnum komst fólkið heim í Hvannn. Á sunnudag var bílunum brotin leið í bæinn. Alþýðuflokksfélögin í bænum halda jólatrésfagnað fyrir börn 6. jnnúar n. k. (þrettándann). Fagnaöurinn befst kl. 3.30 e. h. Um kvöldiö verð- ur dansleikur fyrir félaga og gesti þeirra. /

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.