Alþýðumaðurinn - 07.02.1950, Síða 4
•4 " //i A L Þ Ý Ð U M AÐURINN
. ..■— Uiuc'
Byggingatramkvæmdir 1949
Skýrsla húsameistara rikisins.
Byggðasaín
Á árinu 1949 voru byggingafram-
kvæmdir á vegum þess opinbera með
líku móti og árið áður, að því er
segir i skýrslu húsameistara ríkisins.
Þó hefir efnisskortur nokkuð tajið
■ byggingaframkvœmdir.
Byggingar þœr, sem teiknaðar
hafa verið á teiknistofu húsameist-
ara ríkisins, og unnið var að á árinu
voru rneðal annars þessar:
Við sjúkrahús og hliðstæðar bygg-
ingar var unnið á eftirtöldum stöð-
um: Unnið að viðbyggingu Klepps-
spítalans, og er verkinu að verða
lokið. Unnið að gerbreytingu eld-
hússins að Vífilsstöðum. Unnið að
innanhússmíði í sjúkrahúsinu á
Akranesi, og .er húsið langt komið
undir máhnngu. Sjúkrahúsið á Ak-
ureyri fullgert að utan og að mestu
múrhúðáð að innan. Unnið hefir
▼erið að uppdráttum að sjúkrahúsi
fyrir Siglufjörð, en verkið ekki haf-
ið ennþá. Spítalanum í Keflavík var
* fulllokið. Á Patreksfirði var læknis-
bústaðurinn fullgerður, ennfremur
læknisbústaður á Kópaskeri, og í
Rvík var hafin bygging blóðbanka
og er hann nú fullsteyptur upp. Loks
er byrjað ó byggingu fóvitahælis í
Kópavogi, og gengið hefir verið frá
fullnaðaruppdróttum að þvottahúsi
fyrir ríkisspítlana.
Unnið hefir verið að nokkrum
prestseturshúsum og kirkjum á ár-
inu. Meðal annars fupllgert prests-
hús fyrir Laugarnessókn, nálega
fullgert prestshús i Nessókn, prest-
hús fullgert á Reykhólum og á
Djúpívogi er presthú^ x smíðum og
teiknuð hefir verið viðbygging við
prestshúsið á Staðastað.
Laugarneskirkja var fullgerð á ár-
inu og unnið er að tillöguuppdrætti
að nýrri kirkju að Prestbakka.
Unnið hefir verið við byggingu
fjölmargra skóla í landinu. Meðal
. annars .er unnið að tillöguuppdrætti
að stækkun og aukningu Mennta-
skólans í Reykjavík, heimavistarhús
menntaskólans á Akureyri er uær
steypt upp og að nokkru tekið til
starfa. Byggingu Gagnfræðaskóla
Austurbæjar var að mestu lokið og
skólinn tekinn í notkun, en leikfimi-
salir eru ekki fullgerðir. í Vest-
mannaeyjum var steyptur kjallari og
fyrsta hæð gagnfræðaskóla þar, og
gerður hefir verið uppdráttur að
gagnfræðaskóla á Akranesi.
Um héraðsskólana er það að
segja, að Skógaskóli undir Eyjafjöll-
um var nær fullgerður annað en
sundlaugin og skólinn tekinn í notk-
un. Á Reykjum í Hrútafirði var full-
gert heimavistarhús og sundlaug svo
til fullgerð, smíða- og geymsluhús
gert fokhelt. Á Eiðum var heima-
vistar- og kennárahús að nokkru
fullgert og tekið til afnota, og að
Núpi í Dýrafirði var haldið áfram
að fullgera leikfimihús.
Unnið var við barnaskóla og fé-
lagsheixníli á þessum stöðum: Á
Akureyri, Borgarnesi, Akranesi,
Ólafsfirði, Hólmavík, Keflavík, Lýt-
ingsstaðahreppi, Fljótshlíð, Ljósa-
fossi, Torfastöðum, Ásahreppi,
Miklaholtshreppi, Andakílshreppi og
Breiðavík. Unnið var við sundlaug-
ar á eflirtöldum stöðum: Vopna-
firði, Hörðudal, Akranesi, Akureyri,
Keflavík, Hellissandi, Reykhólum,
Kolviðarnesi og Lundareykjadal.
Byrjað var á byggingu verka-
mannabústaða í Reykjavík eftir nýj-
um teikningum, og verða þeir
nokkru stærri og rishærri en eldri
búslaðirnir. Utan Reykjavíkur hafa
verið íeistir nokkrir verkamannabú-
, staðir eftir eldri uppdráttum, en ó-
kunnugt er um fjölda þeirra.
Af stærri byggingum, sem unnið
hefir verið að, má nefna Arnarhvol,
sem var fullgerður, og þjóðleikhús-
ið, sem nú er að verða fullgert. í
Hafnarfirði hefir elliheimilisbygg-
ingin verið gerð fokheld og er langt
komin innanhúss, og uppdráttur
hefur verið gerður að drykkjumanna
hæli að Ulfarsá. Hafin var bygging
á símahúsi á Hrútafirði, gerður upp-
dráttur að stækkun útvarpsstöðvar-
innar á Vatnsendahæð og breyting
var framkvæmd í afgreiðslusal lands
símastöðvarinnar á Vatnsendahæð
og breyting var framkvæmd í af-
greiðslusal landssímastöðvarinnar.
Á tilraunastöðinni að Keldum hefir
verið unnið ýmislegt utan húss og
gengið frá byggingum þar.
Af einstökum íbúðarhúsum má
nefna sýslumannsbústað í Vík og
hús fyrir skólastjóra Garðyrkjuskól-
ans ó Reykjum í Ölfusi. Auk þess var
gerður tillöguuppdráttur að bæjar-
fógetahúsi i Ólafsfirði.
Auk framangreindra verka hafa
verið framkvæmdar viðgerðir, við-
hald og eftirlit með ýmsum bygg-
ingum og byggingaframkvtemdum
utan bæjar, þar á meðal viðgerð á
17 prestsseturshúsum.
/\ síðusta ársfundi Mjólkur-
samlags KEA var m.a. rætt um
byggðasafn í Eyjafirði, og mögu-
leika á því að samvinnusamtökin
legðn því menningarmáli lið. í
tilefni af þeim umræðum lagði
stjórn KEA eftirfarandi tillögu
fyrir fundinn:
»Með tilvísun til samþykktar,
sem gerð var á síðasta ársfundi
Mjólkursamlagsins vill stjórn
Kaupfélags Eyfirðinga leggja til,
a3 Mjólkursamlagsfundur 1950
satnþykki að verja nokkru fé til
einhverskonar framkvæmda, sem
rniði að því, að varðveita sem
bezt minninguna um búskapar-
háttu, niatargerð og mjólkuriðn-
að forfeðra vorra.
Gagnlegustu og heppilegustu
leiðina í þeim efum telur stjórn-
m vera þá, að byggður sé sveita-
bær í gömlum stíl og þar verði
komið fyrir þeim áhöldum sem
aigengust voru á sveitabæjum og
notuð voru í sambandi við mat-
argerð og dagleg heimilisstörf.
En sveitabæ þessuin verði val-
inn staður í hinu fyrirhugaða
byggðasafni Eyíirðinga.
Til framkvæmda þessu máli
leggur stjórnin til, að Mjólkur-
samlagið leggi fram, þar til öðru
visi veröur ákveðið, /3 hluta úr
cyri á hvern mjólkurlítra, sem
því berst til vinnslumeðferðar
árlega.
Fé þetta skal vera í vörzlum
Kaupfélags Eyfirðinga, þar til
tramkvæmdir eru hafnar, en ut-
borgast þá eftir nánari reglum,
sem stjórn íelagsins setur í um-
boði aðalfundar.
Jafnframt sé skorað á sýslu-
nefnd Eyjafjarðarsýslu, bæjar-
stiórn Akureyrarkaupstaðar og
félagasamtök í bæ og sýslu að
r/yðja og vinna ötullega að stofn
un alhliða byggðasafns innan
E)/jal'jarðarsýslu.«
Eftir allmiklar umræður var
samþykkt að vísa málinu heim til
hinna einstöku deilda til umræðu
og ályktunar og verður það vænt
anlega lagt fyrir Mjólkursam-
lagsfund og aðalfund Kaupfél-
agsins að þeirri afgreiðslu Iok-
inni.
Auglýsið í Alþýðumanninum!
Þriðjudagur 7. febrúar 1950
Ármann J. Lárusson
vann skjaldarglímu
Armanns,
SKJÁLDARGLÍMA ÁRMANNS
var háð 1. febr. s. 1. og urðu úrslit
þau, að Ármann J. Lárusson úr Ung-
inennafélagi iteykjavíkur bar sigur
af hólmi. Hlaut hann 6 vinninga og
2 aukavinninga.
Annar varð Sigurjón Guðmunds-
son úr ungmennafélaginu Vöku, en
hann hlaut 1 aukavinning. Þriðji
varð Rúnar Guðmundsson úr sama
félagi með 6 vinninga.
Þessir þrír keppendur urðu að
glíma til úrslita, þar eð þeir höfðu
orðið jafnir og hlotið 6 vinninga
hver. Lauk þeirra viðureign þannig,
að Armann lagði Sigurjón og Rúnar
bóða, en Sigurjón lagði Rúnar og
hreppti þar með önnur verðlaun.
Rúnar Guðmundsson hlauL fegurðar
verðlaunin.
Skráðir höfðu verið til keppninn-
ar 14 glímumenn, en aðeins 8 mættu
til leiks, og einn keppandinn, Krist-
ján Sigurðsson, gekk úr glímunni
vegna meiðsla.
»••••••••••••••••••••••••«
Lvðræðissinnnar
vinna á ný stjórnar-
kjör í Þrótti.
Eins og menn muna stóð allmikill
styrr í fyrravetur út af stjórnarkjöri
í vörubifreiðarstjórafélaginu Þrótti
í Reykjavík. Unnu þá lýðræðissinn-
ar félagið af kommúnistum, en
með litlum atkvæðamun. Var kosn-
ingin kærð til Alþýðusambands-
stjórnarinnar, en hún tók kæruna
ekki til greina og þóttust kommún-
istar ofríki beittir.
Nýlega fór svo frarn stjórnarkjör
fyrir yfirstandandi starfsár. Buðu
sömu aðilar fram í fyrra, hvor sinn
lista, og var kosning geysivel sótt,
því að 96% félagsmanna kaus. Lýð-
ræðissinnar sigruðu nú með yfir-
burðum, jxví að fráfarandi formað-
ur, Friðleifur Friðriksson, var end-
urkosinn með 117 atkv., en fram-
bjóðandi kommúnista hlaut 104.
Flesl atkvæði allra, sem í kjörr
voru fengu Jón Guðlaugsson, vara-
fórm., og Ásgrímur Gíslason, eða
119 atkv. livor.
Svalbakur seldi vel
Fyrir nokkru seldi togarinn Sval-
bakur fullfermi sitt af ísfiski í
Grimsby. Var farmurinn rúm 38001
kits og söluverðið 12.626 pd.