Alþýðumaðurinn - 10.04.1951, Side 1
Vintsuiíiarkaður bæjarins:
Nanðsyn jafnaðar og rétt
í deilingo vi
Hér á öðrum stað er birt athuga- .
semd sainkvæmt tilmælum frarnkv.-
stjóra Útgerðarfélags Akureyringa
h.f. varðandi mannaráðningar í
uppskipunarvinnu við íogarana s.l.
sumar. Er engum Ijúfara en.mér að
mega trúa því, að pólitík og partíska
hafi þar engu ráðið, en því var þessu
máli hreyft hér í siðasta tbl., að ein-
mitt gagnstæður orðrómur hefir
gengið meðal margra verkamanna í
bænum, sem og nú að mannaráðn-
ingar á skipin mættu vera réttlátari
og eigi svo mikið tillit tekið til þess,
hverjir eru aðstandendur umsækj-
enda um störfin og geri muni,
Er það vissulega mjög illa farið,
ef úlfúð og tortryggni sprettur og
vex af slíku, því að Ú. A. hefir að
réttu verið álitið eftirlætisatvinnu-
stofnun hér í bæ og bæjarbúar lagt
sig fram um að gera veg þess og
vöxt sem mestan.
Hins er þó eigi að dyljast, að
vinnúskýrslur togarafélagsins og
Krossanesverksmiðj unnar, meðan
hún var leigð því, sýna, að einhverra
orsaká vegna hafa helztu páfar
kommúnista í Verkamannafélagi Ak-
ureyrarkaupstaðar sleikt rjómann
ofan af uppskipunarvinnunni. Er
það að vísu fjarri mér að amast við
því, að þeir hafi fengið og fái þar
jafnan vinnuhlut við aðra, en for-
réltindum þeirra mótmæli ég harð-
lega.
Liggur í augum uppi, að þeir
þj óðfélagsþegnar, sem andvígir eru
kommúnisma, geta ekki væhzt þess
að sigrast á honum með því að fita
aðdáendúr hans og forsvarsmenn
umfrarn aðra þjóðfélagsþegna. En
þetta hefir í rauninni verið að ger-
ast hér í bæ um langt skeið. Um
hríð fengu kommúnistar að fleyta
rjómann af vinnunni við tunnu-
verksmiðjuna, næst tókst þeim þetta
við uppskipunarvinnu togaranna, nú
auglýsa þeir sem allsráðendur eftir
mönnum að Laxárvirkj uninni að
sumri. Þarf ekki að gera því skóna,
að þeir komi sínum mönnum þang-
að að meirihlutá, fái þeir að kljá
um þessi má! einir, eins og nú horf-
ir helzt.
Ég þykist ekki vera sérstaklega of-
stækisfullur í garð kommúnista.
Marga þeirra met ég og virði sem
menn, en ég er ákveðinn andstæð-
ingur þeirra í pólitík. Ég veit, að á
því sviði eru þeir ófyrirlátsamir og
því verður að mæta með j afnhispurs-
lausri ófyrirlátsemi. Allt annað er
að gæla við ofvíkið. i mínum aug-
um er það eitt höfuðiandvarnarstarf
þeirra Islendinga, sem vilja frelsi og
fullveldi þessarar þjóðar, að upp-
ræta kommúnismann í landinu, svo
að árásarþjóð úr austri finni hér
enga tátyllu á samherjum, en vest-
rænar þjóðir, sem óttast austangust-
inn, sjái síöur ástæðu til ao stofna
liér lil hersetu.
Nú er eitt höfuðverkefni svo-
nefndrar Marshallaðstoðar að gera
þjóðir hjargálna af sjálfsdáðum, m.
a. með það íyr'r augum að sótt-
kveikjur kommúnismans finni sér
ekki vaxtarskilyrði ineðal þjóöanna.
Til Laxárvirkjunarinnar hefir ver-
ið fengið fé af Marshallsjóðum, fé,
scm kommúnistar eiga eigi nógu
sterk orð til að fordæma. Samt sein
áður á það að æxlast svo, að komm-
únistar úthluti verkamannavinnmini
við orkuverið! Skelegg harátta gegn
koinmúnisma það!
Ég endurtek það, að jafnsjálfsagt
og mér finnst, að kommúnistar fái
ekki að ráðstafa meginhluta verka-
mannavinnunnar hér í bæ, jafnsjálf-
sagt finnst mér að sýna þeim sem
verkamönnum fulla sanngirni um
vinnu.
En U. A., Akureýrarbær og síjórn
Laxárvirkjunarinnar, svo og aðrir
atvinnurekendur verða að gera sér
þess Ijósa grein, að það er að efla
kommúnismann og stuðla að vexti
hans að láta kommúnistum haldast
uppi að sölsa undir sig úthlutunar-
rétt almennrar vinnu i bænum. Slíkt
á ekki að þolast.
Br. S.
Skylt að Iiafa það er
sannara reynist
Framkvæmdarstjóri Útgerðarfé-
lags Akureyringa h.f. kveður það al-
rangt hjá Alþm., að hann hafi látið
„kommúnista ráða nær eintóma
kommúnista til allrar uppskipunar-
vinnu við togarana í fyrrasumar,
koinmúnista annast útborgun upp-
skipunarvinnunnar fyrir sig og
greitt honum þóknun fyrir.“
I fyrsta lagi annist hann ekki
mannaráðningar til togaravinnunn-
ar, nema ásamt verkstjóra sínum,
Bjarna Vilmundarsyni, og í öðru
lagi fari allar kaupgreiðslur fram á
skrifstofu félagsins og hafi aldrei
verið greiddur eyrir fyrir slíkar út-
borganir, heldur fastráðið starfsfólk
að sjálfsögðu látið annast þær.
Talandi tölur
Samanburður á kaupmætti
launa, þegar fyrrverandi ríkis-
stjórn fór frá völdum, og nú þeg-
ar núverandi ríkisstjórn hefir
ríkt í rúmt ár:
Fyrir eftirtöldum vörum þurfti
verkamaÖur að vinna:
1 stk. rúgbrauðs í desemher
1949 14 mín., nú 19 mín.
1 kg. af smjörlíki í des. 1949
25 mín., nú 37 mín.
1 kg. af sykri í des. 1949 15
mín., nú 25 mín.
1 kg. af kaffi í des. 1949 1 k!st.
nú 3 klst. 14 mín.
Einum sokkum í des. 1949 32
mín., nú 75 mín.
1 m. af fataefni í des. 1949 8
klst., nú 15 klst.
100 kg. af kolum í des. 1949 2
klst. 40 mín., nú 3 klst. 43 mín.
Félag ungra jafnaðarmanna heldur
AÐAIFUND
þriðjudaginn 17. apríl kl. 9 e. h. í
Túngötu 2.
Fundarefni:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Aðalfundarstörf.
3. Onnur mál.
Félagar, mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
Kristniboðsfélag kvenna hefir bazar og
kaffisölu í Zíon föstudaginn 13. apríl n.k.
Opið frá kl. 3—7 e.h. Styðjið starfið. —
Drelckið síðdegiskaffið í Zíon.