Alþýðumaðurinn - 26.06.1951, Blaðsíða 1
XXI. árg.
Þriðjudaginn 26. júní 1951
23. tbl.
♦
Stórstúkuþinðið verður sett i morgui
hér í bsuum
8'
Þingið hejst með
skrúðgöngu þingfulltrúa og
annarra templara frá
Skjaldborg kl. Iiálf tvö til
kirkjunnar. Guðsþjónuslan
byrjar kl. 2. Biskupinn yfir
Islandi verður fyrir altari
og flytur ávarp þaðan, en
stórtemplar, séra Kristinn
Stefánsson, prédikar.
Friðbjörn Steinsson.
Að lokinni messugerð verður
Stórstúkuþingið sett i Skjaldborg,
samþykkt kjörbréf fulltrúa og
veitt stórstúkustig. Skýrslur em-
bættismanna verða lagðar fram,
ræddar og afgreiddar. Nefndir
taka síðan til starfa, og stendur
þingið væntanlega til laugardags
eða sunnudags. Á laugardags-
kvöld býður Þingstúka Eyjafjarð-
ar þingfulltrúum og öðrum gest-
um til veizlu í samkomusölum
KEA. Á sunnudaginn kl. 2 verð-
ur útifundur uppi á brekkunni,
annaðhvort við sundlaugina eða
á túninu fyrir sunnan laugina,
þar sem þjóðhátíðirnar eru
haldnar.- Ræðumenn þar verða
þeir Árni Óla, ritstjóri, Björn
Magnússon, prófessor og Sigfús
Sigurhjartarson fyrrv. alþm., all-
ir úr Reykjavík. Karlakór Akur-
eyrar syngur og Lúðrasveit Akur-
eyrar leikur á horn. Aðgangur er
ókeypis og allir velkomnir. —
Þess er vænst, að búðir verði lok-
aðar á morgun frá kl. 1,30—3,30.
Einnig er þess óskað, að flögg
Aðalbrautryðjandinn og stofnandi
Góðtemplarareglunnar á Islandi.
verði dregin að hún í virðingar-
skyni við þingið.
Vonir standa til, að hægt verði
að byrja kvikmyndasýningar í
gamla Templarahúsinu á sunnu-
dag. Verður fyrsta myndin vænt-
anlega Café Paradis, dönsk kvik-
mynd, sem farið hefir sigurför
um öll Norðurlönd undanfarin
missiri. Verður þetta nánar aug-
lýst síðar. Stórstúkuþingið minn-
ist að þessu sinni aldarafmœlis
Alþjóðareglu Góðtemplara. Það
var sumarið 1851, sem Reglan
var stofnuð í íþöku í New York-
ríkinu í Bándafylkjum Norður-
Ameríku. Er afmælis þessa minnst
í öllum heimsálfum, þar sem
Reglan starfar, um þessar mund-
ir. Mótar aldarafmæli Reglunnar
öll Stórstúkuþingin í ár, minn-
ingar þær og vonir, sem við það
eru tengdar.
Akureyringar fagna
Stórstúkuþinginu ó
hundrað óra afmæii
Reglunnar.
Það er í sjötta skipti, sem Stór-
stúkan heldur þing sitt á Akur-
eyri. Vorið 1907 var Stórstúku-
þing haldið hér fyrsta sinni.
Glæsilegasta templarahús landsins
hafði verið vígt hér 23. janúar
1907. Það er núverandi ráðhús
Akureyrarbæjar. — Öðru sinni
háði Stórstúkan þing sitt hér árið
1924 á 40 ára afmæli Reglunnar
á íslandi. Vagga innar íslenzku
deildar Reglunnar stóð á Akur-
eyri. Merkur iðnaðarmaður í
bænum, Friðbjörn Steinsson, var
frumherji þessarar merkilegu
hreyfingar hér á landi. Fyrsta
stúkan í landinu var stofnuð í
kvistherbergi í húsi Friðbjarnar
inn í Fjöru. — Þriðja sinni var
haldið Stórstúkuþing hér árið
1928, fjórða skipti 1935, fimmta
sinni 1944 á 50 ára afmæli Regl-
unnar hér á landi, og nú er Stór-
stúkuþingið á 100 ára afmæli Al-
þjóðareglimnar haldið hér til
virðingar við landnámsjörð
Reglunnar á íslandi.
Á Akureyri hafa margar þjóð-
hreyfingar hafist og breiðst það-
an út um ísland, byggðir og bæi,
Er þar fyrst til að telja Góðtempl-
araregluna. — Þá er næst að
nefna skógrœktarhreyfinguna, er
hefst með trjáræktarstöðinni inn-
an við gömlu kirkjuna. Það var
um aldamótin. Mikil rœktunar-
hreyfing byrjar hér norðanlands
og upp úr því um allt land með
stofnun Ræktunarfélags Norður-
lands eftir aldamótin og gróðrar-
stöðvarinnar. Enn er að telja ung-
mennafélagshreyfinguna og
íþróttahreyfinguna. Fyrsta ung-
mennafélag í landinu er stofnað
hér. — Enn er að geta samvinnu-
hreyfingarinnar, með inu nýja
sniði frá 1906. Hófst hún hér, og
alkunnugt er, hvílíkt stórveldi
hún er orðin í landinu. Loks er
að geta verkamannahreyfingar-
innar. Eiga Akureyringar mikinn
þátt í henni.
Er hér hvorki tími né tækifæri
til að útlista þetta nánar, en allir
þeir, sém fylgst hafa eitthvað með
helztu atburðum í sögu landsins
s.'ðustu 70 árin, vita, að hér er
skýrt rétt frá.
Akureyri er oft kölluð höfuð-
staður Norðurlands. Hún er
’ Norðlingum það, sem Hólar í
Hjalladal voru í fyrri daga, að
því undanteknu, að ekkert bisk-
upsdæmi lýtur vorum liöfuðklerki
hér. En skólahald er hér margfalt
I Norrköping: R. Winkjield stendur t. v. G. Hedvall situr hjá Askeli Jónssyni.
(Nörrkopings Tidning)
Landsmót ungra jafnaðarmanna verður í
Borgarnesi um næstu lielgi.
Skemmtiferð héðan í
Landsmót Sambands ungra
jafnaðarmanna verður haldið í
Borgarnesi um næstu helgi. Setn-
ing mótsins fer fram á grasflöt-
um við Borgarnes kL 5,30 e. h.
á laugardag. Um kvöldið verður
skemmtun í samkomuhúsinu í
Borgarnesi og meðal skemmtiat-
riða einsöngur, upplestur og
dans.
Á sunnudag fer fram íþrótta-
keppni. Keppt verður í knatt-
spyrnu, reiptogi, langstökki, kúlu-
varpi, naglaboðhlaupi o. fl. —
„Æringjar" halda fjölbreytta
kabarettsýningu í samkomuhús-
inu. Einnig dansað á grasflötun-
um milli kl. 5 og 7. Ávörp og
ræður verða flutt bæði á laugar-
sambandi við mótið.
dag og sunnudag. Hljómsveit úr
Reykjavík leikur fyrir dansi og
Lúðrasveitin Svanur mun leika
milli atriða.
í sambandi við Landsmótið
hyggst F.U.J. hér í bæ að efna til
skemmtiferðar og verður lagt af
stað í hana kl. 8 e. h. á föstudag
og ekið þá um kvöldið í Hreða-
vatn (ekki að Reykjum í Hrútaf.
eins og stóð í síðasta Alþm.) og
dvalist þar fram eftir laugardegi
og þá haldið til Borgarness. Á
sunnudagskvöld verður svo hald-
ið heim. — Þeir, sem hugsa sér
að fara þessa för snúi sér sem
fyrst til Kolbeins Helgasonar í
Kaupfélagi Verkamanna. — Far-
gjald mun verða 100.00 kr.
meira en var fyrr á Hólum. Hér
er menntaskóli, gagnfræðaskóli,
húsmæðraskóli. iðnskóli, barna-
skóli, vísir að vélstjóraskóla,
einnig amtbókasafn, sem er nú
langstærsta bókasafn utan
Reykjavíkur. Hér er merkileg til-
raunastöð (gróðrarslöðin), lysti-
garður, mikill og fagur, sundlaug,
íþróttahús, golfvöllur, íþrótta-
svæði, barnaleikvellir o. s. frv. —
Stærsta og fyrir margra hluta
sakir tilkomumesta kirkja í ev-
angelisk-lúterskri guðs kristni á
íslandi er hér. Fjórðungs-spítali
er að mestu upp kominn.
Iðnaður, verzlun og sjávarút-
gerð eru aðal-atvinnuvegir Akur-
eyringa. Þrjú bankaútibú og
sparisjóður eru í bænum.
Akurevri er í töluverðum vexli.
Við aðalmanntalið 1. desember
1950 voru heimilisfastir 7439
menn í kaupstaðnum. Með að-
komufólki í skólum og spítala
hefir sjálfsagt verið um 8000
manns hér síðastliðinn vetur. Er
Framhald á 5. síðu (aukabiaðið).
Verður hafin
brennisteinsvinnsla
á ný í Námuf jalli við
Mývatn?
I sumar mun fara fram all-ítar-
leg rannsókn á möguleikum til
arðsamrar brennisteinsvinnslu
við Reykjahlíð í Mývatnssveit.
Munu verða gerðar jarðboranir
í Námafjalli, því að öllu vænlegra
þykir að vinna brennisteininn úr
jarðgufunum þar, ef nægilegar
reynast, heldur en taka brenni-
stein þann, sem þarna hefir safn-
azt smátt og smátt, en er ekki
nema tiltölulega lítið magn. Við
þessar rannsóknir verður Baldur
Líndal efalaust og mun ríkis-
stjórnin leggja fé til þeirra, en
líka hefir heyrzt, að brezkir menn
muni hafa áhuga á þessum mál-
um.