Alþýðumaðurinn - 17.07.1951, Blaðsíða 1
XXI. árg.
Þriðjudagur 17. júlí 1951
26. tbl.
Ekki er nú sama
hver í hlnt á
Samningar tókust s. 1. fimmtudag um
allverulegar kjarabætur fyrir háseta
og kyndara á flotanum
Samningar tókust milli Sjó-
mannafél. Reykjavíkur og skipa-
félagajma í Reykjavík um kaup
og kjör háseta og kyndara á
kaupskipunum sl. jimmtudag, og
var þar meS afstýrt verkfalli því,
er boðað hafði verið á kaupskip-
unum frá miðnœtti síðastliðins
föstudags. — Allverulegar kjara-
bætur fengust fyrir alla, en þó
einkanlega fyrir þá, sem áður
áttu við rýrust kjör að búa á
skipunum.
Samningaumleitanir höfðu stað-
ið undanfarið yfir milli deiluað-
ila með milligöngu sáttasemjara
ríkisins og sáttanefndar, sem sér-
staklega var skipuð.
Miklar og margvíslegar kjara-
bætur náðust og eru þessar helzt-
ar:
1. Verðlagsuppbót verður greidd
samkvæmt því sem flest verka-
lýðsfélög hafa nú samið um.
2. Yfirvinnutaxtar voru áður
þrír, en nú er miðtaxtinn felld-
ur niður, og öll sú vinna, er
féll undir hann, greiðist með
hæsta taxta. Lægsti taxti var
hækkaður um 5%.
3. Ákvæðið um óvaninga fellur
niður, en þeir höfðu áður kr.
603.00 í grunnkaup á mánuði,
en fá nú samkvæmt samning-
unum viðvaningskaup, sem er
kr. 930.00 á mánuði.
4. Umsamdir fjórir frídagar á
mánuði í heimahöfn skulu
greiddir við árslok eða þegar
maður fer af skipi, ef frídagar
hafa ekki verið veittir.
5. Sé um tvískiptar vökur að
ræða, skulu hásetum greiddar
kr. 100.00 til viðbótar mánað-
arlega, og er þar um að ræða
309ó hækkun á þeim lið.
6. Fæðispeningar verða nú hjá
hásetum 18 krónur á dag
(grunnkaup) í stað 15 áður.
7. Á farþegaskipum yfir 5000
tonn (þ.e. á Gullfossi) skulu
nú vera sex fullgildir hásetar
auk bátsmanns og timbur-
manns, en þeir voru fjórir áð-
ur; það þýðir hækkun hjá
tveimur mönnum úr kr. 930.00
grunnkaup á mánuði upp í kr.
1431.00.
8. I erlendum höfnum allt árið
skulu hásetar hafa frí frá há-
degi á laugardögum, og í inn-
lendri höfn, þar sem sjóvökt-
um er slitið, þó ekki þann dag,
sem skip er ferðbúið, skulu há-
setar hafa frí frá kl. 1 e.h. á
laugardögum þann tíma, sem
verkamenn almennt eiga frí
frá hádegi, þ.e. yfir sumar-
mánuðina. »
9. Hverjum háseta skal tryggð
50 stunda yfirvinna á mánuði,
án jafnaðar milli mánaða, og
þær greiðast að hálfu með
helgidagataxta, en hinn helm-
ingurinn með sjóvökutaxta.
10. Samningurinn gildir frá l.júlí
sl. til 1. júní 1952, og er upp-
sagnarfrestur einn mánuður.
Sé samningum ekki sagt upp,
framlengdlst hann um sex
mánuði í senn með sama upp-
sagnarfresti.
Hlutfallslegar hækkanir og fríð-
indi náðust fyrir kyndara og
aðra, sem í vélinni vinna.
Norska blaðið Verdens Gang
rœðir nokkuð um samnorrœnu
sundkeppnina og segir þar m. a.:
„Island hefir nýlega unnið Norð-
menn og Dani í frjálsum íþrótt-
um og Svíþjóð í knattspyrnu, og
allar líkur eru fyrir að ísland
beri sigur úr býtum í samnorrœnu
sundkeppninni.
Þeir, sem skyn bera á þessi
mál álíta að 10 þúsund íslending
ar hafi synt en hinir bjartsýnari
álíta að þáð hafi verið í kringum
20 þúsund.
Sé það rétt verða hinar Norð-
urlandaþjóðirnar að ná eftirfar-
andi tölum til þess að standa ís-
landi á sporði:
Noregur 70 þús. þátttakendur
Danmörk 80 þús. þátttakendur
Finnland 210 þús. þátttakendur
Svíþjóð 300 þús. þátttakendur
Fyrir okkur Norðmenn eru
litlar sem engar líkur til að ná
þessari tölu“.
Þá segir blaðið ýmsar sögur
Það munu nú þrjú ár síðan að
bæjarstjórn Akureyrar samþykkti
að KEA og Tómas Björnsson,
kaupmaður, skyldu verða á brott
með skúra s'na vestan Skipagötu,
svo að þar yrði gert bílastæði.
Síðan gátu Framsókn og Sjálf-
stæði þó fengið þessa samþykkt
ógilta, því að KEA og Tómasi
væru þessir skúrar lífsnauðsyn.
1 Nú eru nær allir gluggar brotn
ir í þessum „skrauthýsum“ og
komnar fjalir fyrir. Járn er kol-
ryðgað og orpið orðið á þaki og
veggjum og a. m. k. KEA notar
sinn skúr eingöngu til útlánastarf
semi á geymslu. En samt sem áður
finnst engum neitt við þessa „bæj-
arprýði“ við Skipagötu að at-
huga: Éæjarstjórn kinkar kolli
í sælli hrifningu, Fegrunarfélagið
okkar er agndofa af fegurðar-
sæluhrolli og bílstjórunum okkar
finnst svo sjálfsagt að þeir séu
hafðir að olnbogabörnum, að
þeim dettur ekki í hug að gera
uppsteyt. Kurteisir menn, Akur-
eyringar! Og ekki er heldur nema
sjálfsagt að taka tillit til þeirra,
sem peningana og völdin hafa!
frá keppninni hér á landi, m. a.
að blindur maður hafi synt og
einnig að einfættur maður hefði
tekið þátt í keppninni. Telur blað
ið það táknrænt fyrir þann mikla
áhuga fyrir keppninni á íslandi.
*
60 menn syntu 200 metr-
ana í Kelduhverfi
Keldhverfingar og nærsveitar
menn þreyttu 200 metrana í nor-
rænu sundkeppninni við Litlá í
Kelduhverfi og luku 86 menn þar
sundinu, þar af 60 úr Keldu-
hverfi, en 10 Keldhverfingar luku
sundinu annars staðar. Hafa
menn lagt mikið á sig til þess að
sem flestir lykju þarna sundinu.
Þó munu nokkrir sundfærir menn
í sveitinni ekki hafa lokið því,
flestir vegna veikindaforfalla.
//Islend mun sigra í nor-
rmnu sundkeppninni"
*
70 þús. Norðmenn og 300 þús. Svía þarf til þess aS
aS nó íslendingum, segir Verdens Gang.
Talnvert niagit af
síld barst á laml
11111 §. 1. lielg'i
Sjómenn bjartsýnir ó fr amhald veiðanna
Undanfarið hafa allmiklar frétt
ir borizt af síld víða um sjó vest-
an- og norðanlands. Samt hefir
farið svo, að ekki hefir orðið mik
ið úr veiði, enda torfur sagðar
strjálar og gisnar, þótt þær væru
víða. Einstaka skip hafði þó þegar
um fyrri helgi fengið allgóðan
afla, en það var fyrst nú um síð-
ustu helgi að mörg skip fengu
talsverða veiði. Er síldin alldjúpt
undan landi, aðallega miðsvæðis
fyrir Norðurlandinu, en virðist
þó frekar vera að þokast nær.
Mest barst af síld til Raufarhafnar
í þessari hrotu. Lönduðu þar 32
skip, og hafði á sunnudagskvöld
komið um 15 þús. mál síldar til
Raufarhafnarverksmiðju, en auk
þess talsvert magn saltað.
Til Hjalteyrar hafa borizt um
8000 mál síldar, 4000 til Dagverð
areyrar og 8000 til Krossaness.
Þessar tölur eru miðaðar við kl.
4 síðdegis í gær.
Akureyrsku skipunum flestum
hefir gengið vel og sumum prýði-
lega og sömu fréttir berast af
skipum úr verstöðvunum hér út
með firðinum.
Síldln er talin óvenju feit og
góð á þessurn tíma að vera, svo að
allt er saltað, sem söltunarhæft
er, enda afbragðsverð á saltsíld
sem og reyndar á bræðslusíld líka.
Þeir sem slldveiðarnar stunda,
eru yfirleitt bjartsýnir á framhald
veiðanna, og telja síldina haga
sér á allt annan veg en undanfarin
aflaleysissumur.
Vissara mun þó enn gagnvart
síldinni að búast við hinu versta,
því að hið góða sakar ekki, eins
og sagt er. En hinu er ekki að
neita, að allir munu sannarlega
vona hið bezta með sjómönnun-
um. Það er kominn tími til að
birti í álinn.
*
Síldveiði akureyrsku
skiponna
Veiði akuréyrsku skipanna,
þeirra sem Alþm. gat haft fréttir
af mun liafa verið orðin sem
næst þessu í gærkveldi:
Auður 1000-1100 mál og tunnur.
Jörundur 3000 mál.
Kristján 1500 mál og tunnur.
Njörður 750 mál.
Snæfell 1700 mál og tunnur.
Súlan 2000 mál.
Sæfinnur 1430 mál og tunnur.
-----X------
SVALBAKUR
MEÐ FULLFERMI
Togarinn Svalbakur kom með
fullfermi af karfa til Krossaness
í gær.
Harðbakur hafði þá nýlega
lokið þar löndun á 247 tonnum
af karfa.