Alþýðumaðurinn - 08.12.1953, Blaðsíða 4
ALÞÝÐUMAÐURINN
Þriðjudagur 8. desember 1953
FRUMSÝNING
; NÝJUM GAMANLEIK
"fMMTUDAG N. K.
,,Fjölskyldan í uppnámi"
eftir Bandaríkjamanninn
Harry Delf.
Guðm. Gunnarsson
leikstjóri.
Leikfélag Akureyrar hefur að
undanföinu æft nýjan gamanleik
eftir ameríska leikritahöfundinn
Harry Delf.
Nefnist leikurinn „Fjölskyldan
í uppnámi“ og verður frumsýnd-
ur n. k. fimmtudagskvöld. Leik-
stjóri er Guðmundur Gunnarsson.
Séra Árelíus Níelsson hefur þýtt
leikinn, sem er í 3 stuttum þáttum.
Leikendur eru: Frú Jónína Þor-
steinsdóttir, Sigurður Kristjáns-
son, frk. Brynhildur Steingríms-
dóttir, Vignir Guðmundsson
Guðmundur Ágústsson, frk. Matt
hildur Olgeirsdóttir, frú Jónína
Steinþórsdóttir, og tvö börn:
Bergþóra Gústafsdóttir, 12 ára,
og Hákon Eiríksson.
Fastir frumsýningargestir vitji
aðgöngumiða í Bókaverzl. Eddu
á miðvikudag næslk. annars seldir
öðrum. Tekið á móti pöntunum
í síma 1906 kl. 10—12 f.h., en
aðgöngumiðasalan í SamRomu-
húsinu er opin frá kl. 5 leikdag-
ana.
Næstu sýningar verða laugar-
dags- og sunnudagskvöld, senni-
lega þær síðustu fvrir jól.
E D V A R D
SIGURGEIRSSON
Ijósmyndari
sýndi síðastliðinn sunnudag í
Nýja Bíó nýjar litkvikmyndir, er
hann hefir tekið s. 1. sumar og
sumaFð þar áður. Aðalkvikmynd-
in var frá för Karlakórsins Geys-
is til Noregs og er myndin hin
fegursta víða.
Þá var mynd frá Grímsevjar-
för Esju í sumar, ágæt mynd Enn
var mynd frá alþingiskosningun-
um hér s. 1. sumar, frá íþrótta-
móti á Iþró'tavellinum hér einn-
ig á s. 1. sumri og loks stutt knatt-
spyrnukvikmynd.
Kvikmyndasýning þessi var
ágætlega sótt.
FYRIRSPURN
Glerárþorpsbúi hefir beðið Al-
þýðumanninn fyrií eftirfarandi
f yrirspurn:
„Hvaða aðili hefir rétt til að
leggja útsvar á þorpsbúa næstu
4 ár, ef sameining Akureyrar og
Glerárþorps fer fram eftir bæjar-
stjórnarkosningarnar n. k„ en áð-
ur en hreppsnefndarkosningar fara
fram að vori, þannig að þorps-
búar fái hvergi að kjósa til sveitar-
stjórnar næsta kjörtímabil?“
Þorpsbúi.
AUGLÝSIÐ I
„ALÞÝÐUMANNINUM"
AF
NÆSTU
GRÖSUM
Hjónaejni: Ungfrú Siggerður
"ryggvadóttir, Byggðaveg 111 og
Sveinn Einarsson, vm., Akureyri.
Athugasemd. Undirritaður vill biðja
blaðið að skýra lesendum frá því, að
rctugsafmæli á hann ekki 2. desember
og líka var misritað um heimilisfangið
í síðala Alþýðumanni. Höfum við
brosað miklð að þessu, ritstjórinn og
undirritaður, því að við búum eins og
danskurinn segir: dör om dör. — Til
jess að fyrirbyggja hugsanlegar heim-
sóknir birtist í Degi lilkynning, sem
' ti að hljóða svo, með þökk til beggja
blaðanna:
Af næstu grösum“ gnótt er frétta.
Frá Gísla Kristjánssyni, úlgm., þetta:
þótt fæddist þann 12. desember
þá sextugsafmælið 2. er.
)g þó er til þæginda fleira,
ví veizlan hún verður hjá Geira!
Gísli Kristjánsson.
Alþýðumaðurinn biður Gísla Kristj-
ánsson afsökunar á mishermi um af-
lælið. Fór blaðið þar eftir heimild,
sem því miður reyndist röng. Hitt var
’iins vegar prentvilla, að heimilisfang
Gísla sé Helgamagrastr. 27, átti áð
anda Helgamagrastræti 28.
Iréfaskipti óskast
Samkvæmt fregn frá danska
sendiráðinu í Reykjavík óska eft-
irtalin ungmenni bréfaviðskipta
/ið jafnaldra á íslandi:
Karen Elisabeth Madsen, Hvarn
pr. Hvam St„ Jylland (14 ára,
óskar eftir að skrifast á við stúlku
á sama aldri).
Niels Erik Kold, Amtoft pr.
Veslös, Danmark (17 ára, óskar
eftir að skrifast á við stúlku 15—
16 ára). *
Gitte Buch-Pedersen, Vemme-
tofte Alle 46, Gentofte, Danmark.
(17 ára, óskar eftir að skrifast á
við stúlku 17 ára).
Helen Bagger, Lerhöjvej 3,
Gentofte, Danmark (tæpra 18 ára,
5skar ef'ir að skrifast á við pilt
eða stúlku ca. 18 ára).
Börge Find, Njalsgade 50, III,
öbenhavn S. (25 ára, óskar eft-
r að skrifast á við stúlku ca. 23
ára).
Þeir, sem hug hafa á að stofna
til bréfaviðskipta, geta annað
hvort skrifað beint til ofan-
nefndra eða sent lista yfir nöfnin
il Verdens Venskabs Forbundet,
Holbergsgade 26, Köbenhavn K,
sem síðan mun korna þeim í sam-
band við viðkomandi pilt eða
stúlku.
ELÍN í ODDA
Nýlega er komir. út hjá bóka-
forlagi Þorsteins M. Jónssonar
24. bók hinnar vinsælu norsku
skáldsögu Margit Ravn. Heitir
bók þessi Elín i Odda, og er að
efni til ekki ólík fyrri sögum sama
höfundar, skemmtileg að lesa og
túlkar hollar lífsskoðanir. Hún er
prentuð í Prentverki Odds Björns-
sonar. Pappír í henni er góður og
útgáfan hin snotrasta. Stærð bók-
arinnar er 187 bls.
RAFMAGNSPERU R
K. E. A.
Járn- og glervörudeild.
RAFMAGNSOFNAR
500 — 1000 — 1500 w.
RAFMAGNSVÖFFLU-
JÁRN
H RAÐSUÐU KATLAR
HRAÐSUÐUKÖNNUR
STRAUJÁRN
K. E. A.
Járn- og glervörudeild.
MATARSTELL
nýkomin.
K. E. A.
Járn- og glervörudeild.
BARNASTELL
úr leir og plasti,
nýkomin.
K. E. A.
Járn- og glervörudeild.
Kvenfélag
Alþýðuflokksins
ó Akureyri
heldur fund í Túngötu 2 í kvöld
kl. 8.30. — Venjuleg aðalfundar-
störf.
Stjórnin.
GÓÐUR
BORÐSTOFUSKÁPUR
til sölu.
Upplýsingar á húsgagnaverk-
stæði
Stefóns Þórarinssonar
Fjólugötu 20.
RITHÖFUNDAKVÖLD
S. 1 sunnudagskvöld var haldið
svonefnt rithöfundakvöld í Varð-
borg, félagsheimili templara á Ak-
ureyri. Gekkst Reglan fyrir því.
Höfundar þeir, sem fram komu
voru Baldur Eiríksson, Einar
Kristjánsson, Guðmundur Frí-
mann og Heiðrekur Guðmunds-
son. Lásu allir kvæði eftir sig,
nema Einar, sem las sögu.
K A 1 ■ F I S T E L L
nýkomin, verð frá kr. 255.00
K. E. A.
Járn- og glervörudeild.
J ó L A K O R T
K. E. A.
Járn- og glervörudeild.
hýkoinar vörur
I
Hraðsuðukönnur
Hraðsuðukatlar
Alum. pottar
Alum. katlar, f. rafm.
Kökuform, fl. teg.
i
Skíðasleðar
Þvo'tasnúrur, plast, 2 teg.
Uppþvottagrindur, plast
Stativ í skúffur f. hnífapör
o. m. fl.
Matarstell
Kaffistell
Jólatrésskraut, m. úrval
Jólatrésseríur
Pappírsserviettur
Burs'asett
Tannburstar
Hárbmstar,
fyrir börn og fullorðna
Penslar.
Væntanlegt næstu daga:
Aluminiumvörur, margskonar
Glervörur, fallegar, hentugar til jólagjafa
Gervij ólatré, fleiri stærðir
Kökubaukar, fleiri stærðir, og margt fleira.
Kaupfélag verkamanna
Nýlenduvörudeild.
>©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©$
Steindór Steindérsson
menntaskólakennari, verður í bókaverzlun vorri og leiðbeinir
peim viðskiptavinum, er þess óska, um bókaval, eins og
hér segir:
Á mánudögum kl. 4—6 e. h.
— miðvikudögum — 4—6 —
— föstudögum — 2—4 —
— laugardögum — 2—4 —
Bókaverzl. POB
Akireyrardeild K.E.A.
heldur
fræðslu og skemmtifund
að Varðborg, fimmtudaginn 10. þ. m. kl. 8.30 e. h.
Dagskrá:
1. Kvikmyndasýning.
2. Erindi (Jóhannes ÓIi Sæmundsson)
3. Frjálsar umræður, (þar á meðal um mjólkur-
söluna í bænum).
Deildarstjórnin.
Þýzk jólatré
(gerfi)
60—150 sm. — Verð frá kr. 22.00.
Járn- oo glervörudeild.