Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.10.1938, Blaðsíða 6

Dýraverndarinn - 01.10.1938, Blaðsíða 6
42 DÝRAVERNDARINN þessum og aö athuguðu máli sjáiS ySur fært aö banna þau meö öllu á alfaravegum hér í bænum. Væri mjög æskilegt, a;ö slíkt bann kæmi áöur en alvarleg slys á saklausum skepnum hljótast af út- búnaöi þessum. Virðingarfyllst, f. h. Dýraverndunarfélags íslands Þórarinn Kristjánsson pt. formaður. Máliö hefir síðan verið i rannsókn hjá lögreglu- stjóra, en 19. sept. barst Dýraverndunarfélaginu eft- irfarandi bréf frá honum : Rvík 19. sept. 1938. í tilefni af bréfi yðar, dags. 29. f. m., varðandi svokölluð veghliö, hefi eg leitað umsagnar bæjar- verkfræöings um mál þetta, og hefir mér frá hon- um borist umsögn dags. 1. þ. m., svohljóðandi: „Þér hafið, herra lögreglustjóri, óskað eftir áliti mínu viðvíkjandi svokölluðum „veghliðum“, er lýst er í umkvörtunarbréfi dags. 29. ágúst frá Dýra- verndunarfélagi íslands. Eg lít svo á, að skepnur muni ekki ótilneyddar reyna að fara út á grindurnar, ef ekki snjór liggur á þeim. Hinsvegar tel eg víst, að ef stygð kemu r að skepnum, rnuni það vel geta átt sér stað, að ]>ær hlaupi á grindurnar og getur þá varla hjá því far- ið að þær fótbrotni. Er snjóföl leggur munu grindurnar vei'ða skepn- unurn algjör gildra. Það er nú svo, að skepnur mega ekki ganga lausar hér í bænum, og ef þessu væri algjörlega fylgt eftir, mætti segja að hliðið viö Landspítalann væri háskalaust, en um leið væri það líka þarflaust. Eg endursendi hér með bréf Dýraverndunarfé- lags íslands". Málið er nú til athugunar, en ákvörðun um frek- ari aðgerðir hefir ekki verið tekin. Jónatan Hallvarðsson. Sömuleiðis hefir formaður Dýraverndunarfélags- insc snúið sér til vegamálastjóra, og hefir hann gert ráðstafanir til að breyta hliðunum hið fyrsta á þann hátt, að þau verði hættulaus skepnum. Dýraverndunarfélagið hefir að þessu sinni unn- ið hið mesta þarfaverk með því að koma i veg fyr- Tvær sögur. 1. GLETTUR KRUMMA. Krummahjónin sem höfðu tekið sér bólfestu við bæinn okkar, Þykkvabæjarklaustur, og ætlast til þess, að það hefði bætandi áhrif á afkomu þeirra, voru venjulega kurteis og prúð. Þó höfðum við börnin fremur horn í síðu þeirra, því að við höfðum heyrt um það, að þau hefðu það til að kroppa augu úr lömbunt og rekja garnir úr lifandi fé. Annars höfðum við gaman af því, þegar þau settust á kirkjuturninn, en það gerðu þau oft, rétt fyrir framan baðstofugluggann og fóru að tala saman. Því miður skildum við ekkert af því, sem þau sögðu og þótti okkur það mjög leiðinlegt, því við héld- um, að þau segðu merkar fréttir og væru margvís. Forvitni okkar jókst líka mikið við að, hvað radd- blærinn í samtali krummahjónanna var breytileg- ur og einkennilegur og tilburðir þeirra skrítnir. Við vorum nú reyndar í engum vafa um það, að þau væru að segja hvort öðru fréttir, en sjálfsagt snertu þær okkur ekkert. Þó bar svo við, að eg var ekki i neinum vafa um það, að þau væru líka að segja mér fréttir einu sinni, sem þau reyndu á allan hátt að fá mig til að skilja. Tildrögin til þess voru þau, að faðir minn, Sigurður Nikulásson, sem var þá formaður á þeim eina liát, senr sveitin átti, fór snennna morg- uns til sjávar og lagði svo fyrir áður en hann fór, aÖ eg skyldi reka gemlingana suður i svo nefnda Suðurhaga á útigang. Áliðið var þá vetrar og veð- ur gott. Það var um sólaruppkomu, sem eg fór af stað með gemlingana og gekk mér vel að reka þá í hagana. Þegar eg var fyrir skönnnu farínn heimleiðis, komu krunnnahjónin fljúgandi til mín, settust örskannnt frá mér og tóku til að krunka í allskonar tóntegundum og skella í góminn. Oftast var röddin mjög létt og glaðleg og sýndist mér ir útbreiðslu þessara hliða, sem vægast sagt eru hættulegar gildrur fyrir dýr, og hefðu án efa or- salcað stórkostleg meiðsl á þeim, ef þau hefðu náð útbreiðslu, a. m. k. í þeirri mynd, sem Þingvalla- hliðið var, en þar var 8 cm. bil á milli járnpípanna.

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.