Dýraverndarinn - 01.12.1938, Blaðsíða 8
6o
DÝRAVERNDARINN
né síðar svo kunnugt sé. AS vísu voru þar drepnar
30 súlur áriö eftir, en síöan er sú saga á enda.
ÁriS 1926 eru taldar fram 1929 súlur, en þar af
eru aðeins 656 úr Vestmannaeyjum, hitt kemur úr
Geithellnahreppi í Suöur-Múlasýslu og er taliS, aS
þaS sé mest úr Papey. Þar hefir heldur aldrei verio
getiö um súluvarp fyrr. Síöan hefir ekkert veriö taliS
fram þaSan. ÁriS 1927 eru taldar frani 3064 súlur,
þar af 864 úr Vestmannaeyjum, en hitt úr Hafnar-
hreppi i Gullbringusýslu. Þar hefir súlan í Eldey
fengiS miSur vinsamlega beimsókn. í Eldey hagar
svo til, aS ef menn á annaö borS komast upp í eyna,
er auSvelt aS strádrepa alla unga, sem þar eru fyrir,
og ef til vill eitthvaö af fullorSinni súlu líka. Þetta
hefir og veriS gert samvizkusamlega. Þá eru taldar
fram 1104 súlur áriS 1933 og lýkur þar HagtíS-
indunum aS sinni. Af þessum súlum eru 704 úr Vest-
mannaeyjum, hítf er úr Hafnarhreppi, þ. e. Eldey.
Þá má einnig sjá þess vitni i HagtíSindunum, aS
súlan þolir eigi vel illfæri eSa kuldatíS. Á árunum
1917, 1918 og 1919 eru taldar fram súlur úr Vest-
mannaeyjum, sem hér segir: 162, 159 og 228. Er
þetta langt fyrir neSan meSallag. Er því sýnt aS
hlifa verSur súlunni, þegar hart er í ári.
ViSvikjandi Eldey er þaS aS segja, aS hún er
vel fallin til alfriSunar. Hún er þannig sett í ver-
öldina, aS vörS þarf eigi aS halda um hana a'S
staSaldri, þaS gerir náttúran sjálf. ÞaS þarf aS-
eins aS banna mönnum aS fara. þangaS til fugla-
dráps, og ef einhverir veröa til þess aS brjóta þaS
bann, á þaS aS verSa þeim dýrkeyjit. Eyjan er
sjálfsagöur griöastaSur sjófugla, sem þar leita hæl-
is og auk þess í rauninni ónumiö land, sem vafa-
samt er aS nokkur eignarkvöS liggi á. Þess sést
hvergi getiS aS eyjan hafi veriS metin til verSs
eSa hlunninda nokkurri jiirS, kirkju eSa einstökmn
mönnum. Og þótt menn úr næstu héruöum fari
þangaö til fanga endruni og eins, er hæpiS aS telja
þá hafa eignarihald á eynni, jafnvel þótt þeir færu
þangaö aö staSaldri. Enda mun því aldrei hafa
veriS lýst á löglegan hátt, aS eyjan væri nurnin
til eignar. Veit eg heldur eigi, hvort þaS er hægt
samkvæmt nútíma lögum. Eg sé því ekkert, sem
mæli gegn því, aS Eldey verSi friölýst. Eigi trúi
eg því, aS almenningur vilji hafa hana fyrir af-
tökustaS þess, sem fágætast er og merkilegast í
fuglaríki þessa lands, Mér finnst réttara aS fram-
lim látsmimL dýAa..
Jón konungsritari Sveinbjörnsson er hestama'Öur
mikill og hefur liann íslenzkan reiÖhest á búgarÖi
sínum fyrir utan Kaupmannahöfn. I sumar, er hann
var á ferð hér, heimsótti hann mig kveld eitt og
barst talið að hestum. Spurði hann mig eftir vind-
ótta hestinum mínum meÖ gráa faxinu og gáfulega
höfðinu. En hann sagði mér eftirfarandi sögu af
tveim íslenzkum hestum, er hann hafÖi haft kynni
af í Danmörku. Áleit hann, aÖ miklu meiri rækt
væri lögö viÖ vitsmuni hestanna erlendis, en hér
væri almennt, og þaÖ jafnvel svo, að hagnýt not
yrðu af, eins og þar sýndi sig.
* * *
A herragarði nokkrum í Danmörku, skammt frá
Kaupmannahöfn, voru i mörg ár tveir íslenzkir hest-
ar; voru þeir keyptir þangað ungir og tanxlir þar.
Hestarnir voru að sumrinu til hafðir á beit skammt
frá heimahúsunum, en er á þeim þurfti að halda,
voru þeir ekki sóttir, heldur var dregið upp flagg
á þar til gerðri stöng heima. Komu þeir þá jafnan
rakleitt heim. Eitt af þeim störfum, er þeim var
ætlað, var að dæla vatni í þró allstóra. Var það gert
með þeim liætti, að hestarnir voru spentir fyrir þver-
slá og látnir ganga fyrir henni i hring. Voru þeir
hafðir mannlausir við starf þetta, og héldu þeir á-
fram viðstöðulaust, þar til þróin var full. En þá
stöneuðu þeir og biðu rólegir þar til þeir voru leystir.
Konungsritari kvaðst sjálfur hafa verið sjónar-
vöttur að ]>essu. Spurði eg hann, hvernig temja mætti
liesta þannig.
,,Það er ekki gert með svipu,“ sagði hann, „dýr-
in finna fljótt, hvað að þeirn snýr, brauðbiti, sykur-
moli eða mjólkursopi geta gert kraftaverk á ])essu
sviði. En umfram allt verður maður að tala við hest-
vegis veröi komið i veg fyrir það. Vill Dýravernd-
unarfélagið beita sér fyrir þessu máli ?
(Leiðrétting á prentvillu í grein MagnúsarBjörtis-
sonar í síðasta blaði: Undir myndinni af pelikönun-
um stóð: Súlan er af pelikanaættinni, fyrir: peli-
kanaættbálkinum.)