Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1950, Qupperneq 3

Dýraverndarinn - 01.06.1950, Qupperneq 3
EMIL TÓMABSDN: MIXNINGAR Framh. í hesthúsinu. Enda þótt ég á þessum árum hefði 1 mörgu að snúast á heimili mínu, þá var ég marga kveldstund á vetrum úti í hesthúsi eitthvað að nostra. Mér var eiginlegt aö hugsa um hest- ana, líta eftir, hvort þeir hefðu nóg að éta og drekka, kemba þeim, breiða á þá teppin o. s. frv., því oft komu þeir blautir og hraktir frá vinnunni og þá þurftu þeir alla nákvæmni og hugulsemi. Ef Kári kom t. d. sveittur heim og mér fannst ekki nógu heitt 1 húsinu, sótti ég gæruskinnið hans og breiddi yfir herðarnar og síðan Gefjunarteppi, sem huldi hann frá makka og aftur á lend, svo var hann þurr og gljáandi að morgni. Aðal-keyrsluhesturinn, Brúnn, var ætíð á vetrum með strigateppi und- ir aktygjunum. Teppið var góö vörn í snjó og bleytu og kulda og setti því síður að honum í misjöfnum veðrum. Mig langaöi stundum til að skjóta auka- skammti til Kára — mjólk eða mjöli, en þetta var ekki svo þægilegt, þótt hann væri á enda- bás. Hinir fóru þá að kumra og horfa til okk- ar og vonuðu. Þetta voru allt mínir vinir og búsins þörfustu þjónar. — Ég tel, aö ég hafi haft gott af að hirða dönsku hestana, þegar ég var á Fjóni. Þeir höfðu mikla brúkun bæði sumar og vetur, en þeir höfðu líka ágæta hirðingu. Þar var stjórnin ströng og nákvæmt eftirlit með því, að smáu atriðin væru eigi síður framkvæmd en þau stóru, hvað alla umönnun hestanna áhræröi. Hófar þeirra voru vandlega burstaðir upp úr gljáfituáburöi og mjólkursmyrsli smurt meðfram hófhvarf- inu. Hófbrúnin vildi harðna og særa á þess- um hestum, sem sí og æ urðu að ganga í moldinni. Kári hafði afburða heila og vel gerða hófa. Það var líka reynt að sjá um það, að hann stæði hvorki í bleytu eða á steinhörðu gólfi. Búskap hætt. Ég misti konu mína 1933. Guðrún dóttir okkar var þá 20 ára og tók hún þá við búinu innanstokks og fórst það meö snilld og prýði. Yngstu drengirnir: Bóas og Jón, voru þá ó- fermdir. Héldum við Guðrún búinu gangandi til vorsins 1935. — Það mun hafa verið kom- ið fram í febrúar eða marzmánuð 1935, þegar ég fullréði það að leysa upp búið og selja allt dautt og lifandi og flytja á mölina. Ég þaul- hugsaði málið og vissi vel, að á því voru tvær harðvítugar hliðar. Það var síður en svo álit- legt að kasta frá sér skepnunum og jörðinni og hafa ekki von um nokkra atvinnugrein framundan. Hitt fannst mér þó enn ábyrgðar- meira að halda börnunum sem þrælum heima og hafa máski af þeim menntun og menningu. Og svo var líka það, aö elsta stúlkan okkar, Sigurbjörg, var eiginlega komin að heiman

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.