Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1950, Side 4

Dýraverndarinn - 01.06.1950, Side 4
26 DtRAVERNDARINN og sýnilegt, að mér héldist ekki lengi á Guð- rúnu heima. Þetta er einu sinni lögmál lífs- ins, að börnin verða að yfirgefa föður sinn og móður og búa með eiginmanni og eiginkonu og uppfylla jörðina. Erfiðar hugsanir. Þegar nú þetta var fullráðið að selja allt og flytja með vorinu til Reykjavíkur, fór ég að hugsa um með hvaða hætti skilnaður okk- ar Kára yrði. Vinátta okkar og samstarf fannst mér vera á þá lund — meðan báðir lifðu, aö við vera óaðskiljanlegir. Tilhugsunin um þessa breytingu — þegar allt kom til alls — var mér því ekki með öllu þjáningarlaus. Þaö var eins og mér hefði aldrei þótt vænna um hest- inn en einmitt nú, þegar ég fór að hugsa um skilnað okkar. Hann var aldrei samgrónari hjartarótum mínum og lífi en nú. Það sáu mig allir utan en ekki innan um þessar mundir. Selja hann ... ? Þá má búast við, að hann verði á sífelldu stroki og festi hvergi yndi. Ég mátti ekki til þess hugsa, að hann lenti á flæking og gengi máski mansali eins og áður fyrr. — Stytta honum bara aldur . . . ? Eiginlega væri það lang hreinlegast. Þó sortnaði mér fyr- ir augum við tilhugsunina. — Þessar lauslegu ályktanir, fram og aftur, voru ekkert hug- hreystandi eða hressandi á meðan ég var að kemba og snyrta til þetta göfuga fórnarlamb mitt, sem ég mátti ekki af sjá. En það var bót í máli, að Kári vissi ekkert um hvað ég var að hugsa. Hann tuggði fast og títt ilmandi heyið og vætti munninn við og við í vatninu. Matardallurinn var marg- sleiktur og kominn út í horn, og mun það hafa verið næst huga hans, að ég tæki dallinn og sækti sér eitthvað gott 1 hann. Ég hafði stundum gaman af tilburðum Kára, þegar hann var að éta og ekkert var í dalli hans. Þá rak hann flipann ofan í dallinn og leit svo til mín alveg eins og hann væri að spyrja, hvort ég ætlaði ekki að sækja eitthvað í hann. Veðsetningin. Nú víkur sögunni að því, aö ég hafði þá fyrir stuttu síðan undirritað samning, sem ég hafði gert við svo nefndan Kreppulánasjóð. En Kreppulánasjóður var, eins og margir vita, nokkurs konar líknarstofnun fyrir fátæka bændur á þeim hörmunganna krepputímum, sem þá gistu land vort. — Enginn má halda, að þessi hallærishjálp hafi verið gerð úr í blá- inn skilyrðislaust. Hjálpina varð að tryggja. Og vitaskuld höfðu lánþyggjendur ekki önn- ur úrræði en að veðsetja bústofn sinn — svo að hann stæði sem örugg trygging fyrir kreppu- lánshjálpinni. Þó undarlegt kunni að virðast, var Kári í raun og veru veðsettur. Og hvað er svo viö því að segja? Heiðarlegur og sam- vizkusamur sveitamaður heldur bókstaflega sína samninga. Hann þekkir lítið inn í króka- vefi og hrekkjasveiflur viðskiptalífsins og vill halda sig frá þeim. Hann telur sig afbrota- mann og glæfraþrjót við guð og góða menn, ef hann til dæmis léti skjóta verðmesta grip- inn, sem veðsettur er, og grafa hann í jörð með húð og hári. Skilnaðarstundin. Það var komið fram í maímánuð. Opinbert uppboð skyldi haldast innan fárra daga á dauðu og lifandi. Viðskiptavinur minn reið úr hlaði síðla dags í góðu veðri á sínum eigin hesti og teymdi Kára við hlið, hnarreistan með brús- andi faxið, snöggan og gljáandi. Allar hreyf- ingar hans voru leikandi léttar og fullar af lífsfjöri. Ég vissi það ekki þá, að atvikin mundu haga því þannig til, að við sæjumst aldrei framar í þessu lífi. — Dauði Kára. Eftir aö ég var fluttur til Reykjavíkur, var hugur minn oft hjá Kára. Nú kom ég aldrei á hestbak og var sú lífsbreyting mikil frá því, sem áður var. Alltaf þráði ég aö frétta um líðan hans. Ein- hverju sinni hitti ég mann, sem sagði mér, að Kári væri á sífelldu stroki og hefði hann tví- vegis synt yfir Lagarfljót. Leiö svo þetta fyrsta sumar og veturinn á eftir, að ég gat lítið fylgzt með líöan Kára. En þegar kom fram á næsta sumar (1936), hitti ég mann, sem sagði mér dánarfregn Kára með þessum orðum: „Jæja, nú er sá rauð'i dauöur! Var víst á stroki og

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.