Dýraverndarinn - 01.12.1951, Blaðsíða 6
60
DYRAVERNDARINN
Jón Helgason:
Á afmæli katlarieis
Viðsjárverð þylrir mér glyrnan gnl,
geymir á bak við sig marga dul,
óargadýranna eðli grimmi
á sér í heilanum fylgsni dimmt.
Alla tíð var þó með okkur vel,
einlægt mér reyndist þitt hugarþel,
síðan ég forðum þig blindan bar,
breiddi á þig sæng þegar kaldast var.
Fimm voru systkinin fædd í heim,
fagnar þú degi hið eina af þeim;
hinum var öllum í æsku drekkt,
ósköp er kattlífið dapurlegt.
Lifað nú hefur þú árið eitt,
oddhvöss er vigtönnin, klóin beitt;
stundum á kvöldin með kurteis hljóð
kveðurðu af munni fram ástaljóð.
Andvakan þykir mér yfrið löng
unz ég í garðinum heyri söng,
hugurinn glaðnar þá heldur til,
hlægir mig dillandi raddarspil.
Sofandi köttur.
(Ljósm.
„..... stundum á kvöldin með kurteis hljóð
kveðurðu af munni fram ástaljóð."
Til munu þeir sem það tónverk lízt
tilkomulítið, en eiit er víst:
læðan sem kúrir í leyndum stað
leggur við eyrun að hlusta á það.
Mjúkur, með kirfileg kampahár
kemurðu að dyrum i morgunsár,
upp þig úr munnvatni allan þværð,
augnnum lygnir í sæld og værð.
Ólundin margsinnis úr mér rauk
er ég um kverk þér og vanga strauk,
ekki er mér kunnugt um annað tal
álíka sefandi og katlarmal.
Trýnið þitt starfar og titrar kvikt,
tekst þvi að skynja svo marga lykt,
þar sem mér eklri með allt mitt nef
unnt er að greina hinn minnsta þef.
Bugðast af listfengi loðið skott,
lyflist með tign er þú gengur brott;
aldrei fær mannkindin aftanverð
jón Kaidai.) ^ v{g þ{g jafnazt að sundurgerð.