Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1951, Blaðsíða 4

Dýraverndarinn - 01.12.1951, Blaðsíða 4
58 DYRAVERNDARINN andimar hræddar í einu kofahorninu. Smám saman urðu þær spakari, og þegar vorið kom, voru þær spökustu fuglarnir í fuglahópnum. Þær tíndu brauðmola úr litlum lófum. Vögguðu lieim á hlað og voru óhræddar við stóra veiði- hundinn. En það var líka vitur hundur að norð- an, sem vissi, hvað hann mátti og mátti ekki. Villiandirnar, sem sagt er frá, voru bliki og önd. Blikinn hét Grænhöfði, en öndin Villa, og bæði höfðu villzt frá móður sinni. Heimasíkið er stórt, og þangað leituðu hópar af villiöndum, þegar vorið kom. Grænhöfði og Villa þráðu ástir og ævintýri og leituðu þeirra í hópi framandi fugla. Og einn dag flaug Græn- höfði burt og sást aldrei framar. Aldrei er stórt orð og á vafasaman tilverurétt. Meir en þrjátíu árum síðar hitti einn af þessum drengjum ó- vanalega spakan grænhöfða við lítinn læk að vori til. Hann var ;:vo spakur, að strjúka mátti höfuð hans, og hann hjúfraði nefið vinalega i lófa hins fullvaxna manns. Enn þá virðast menn ekki vita, hvort villtir grænhöfðar geti lifað í þrjátíu ár eða lengur. En þetta er eitt af mörgum atvikum, sem valda því að þessi maður hefur enga ánægju af því að skjóta góða fugla. Og við lækjarniðinn sagði hann Grænhöfða söguna af systur hans. Það var saga okkar allra. Fá ár og svo dauðinn. Ferða- maðurinn spurði Grænhöfða — þvi að Græn- höfði hafði víða farið — hvort sorg og söknuð- ur væri eina leiðin til þroska. En Grænhöfði hélt áfram að leita að smádýrumi í leðjunni, og svar gaf hann ckkert. Ferðamaðurinn dvaldi lengi við lækinn, því að grænhöfðar verða seint sadd- ir. Hann flaug norður. Ef til vill átti hann þar friðland í auðn og óbyggð. Ef til vill átti hann heima við Mývatnið stóra, þar sem menn skjóta ekki góða fugla. Villa fór burt nokkrum dögum siðar en Grænhöfði, en hún fór ekki langt. Ihin hjó sér hreiður í stórþýfðum móa. Blikinn hennar dvaldi langdvölum á litla síkinu við Grænahól, en það er gamall stekkur. Þangað heimsóttu drengirnir hana, en blikanum var lítið um þær heimsóknir gefið og flaug jafnan burt, en Villa þekkti vini sína og þáði ánægð og óhrædd bauð- mola úr litlum lófum. Fábrotin voru heimkynni hennar, en þó að einu leyti fráhrugðin híbýlum Björn J. Blöndal í september 1950. (Ljósm.: Þorsfeinn Jósepsson.) systra liennar í'lestra eða allra. Hún gekk örna sinna á vissum stað. Hún var þrifinn fugl. Villa eignaðist tólf egg og tólf unga. Það gerði hún líka næstu þrjú ár. Þegar ungarnir komu úr eggjunum, faldi Villa sig með unga sína i háu sefi. Grænhöfðinn hennar yl'irgaf hana og leitaði uppi félaga sína, fullþroska stokkandarsteggina. Þeir misstu ílugfjaðrir sínar og földu sig oftast á daginn, lágkúrulegir og vanmáttugir, en leituðu fæðu mest kvölds og morgna. Fallega græna höfuð- skrautið misstu þeir um líkt leyti og flugfjaðr- irnar, þeir fengu felubúning. Athugul augu geta þó oft fundið þá í háu grasi, sefi eða stör. Þegar líður á haust, fá þeir smám saman aftur skraut- lega græna búninginn, sem forfeður þeirra báru fyrir mörgum öldum og niðjar Jæirra munu bera um aldir enn. Villa sást lítið um sumarið. En haustkvöld eitt vappaði hún upp hólinn, með alla ungana sína á eftir sér. Svo skreið hún upp í glugga- tóttina á gamla bænum með öll börnin sín, og hún barði með nefinu í litla gluggann, en það var vani hennar, þegar hún var svöng. Dreng- irnir opnuðu gluggann og köstuðu út brauð- molum. Ungarnir urðu hræddir og flugu út í síkið, og þegar Villa hafði fengið nægju sína, flaug hún út í kvöldhúmið til unganna sinna. Um haustið sást hún sjaldan, en það vissu menn þó, að hún hélt sig í nánd við Hvítá. Og flestir héldu, að hún væri horfin að fullu og öllu úr hópi hinna tömdu anda. Kaldur vetur kom, og einn morguninn lá

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.