Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.12.1951, Blaðsíða 8

Dýraverndarinn - 01.12.1951, Blaðsíða 8
62 DYKAVERNDARINN HALLDÚRA HALLGRÍMSDDTTIR : Sötjtibi'fÞÍ tttn Jlttnh ntj bróðttr htttts Það var vorið 1949. Flestir, sem vinna sveitavinnu á Vestí'jörð- um og víðar, muna sjálfsagt enn full vel eftir þvi vori. Þá báru ær inni hér um slóðir og það liðu víst samfellt þrjár vikur án þess að þær kæmu út úr húsi. Þetta vor átti ég á, sem hér Langeyra. Hún bar nokkuð snemma og átti tvö hrútlömb, stór og falleg. Hún fékk nóg að borða, enda mjólk- aði hún vel og lömbin hennar döfnuðu að sama skapi. Þau hændust fljótt að mér. I hvert sinn, er ég kom í fjárhúsdyrnar, þutu þau upp í jötu og beina leið til mín. Mér þótti fjarska vænt um þau og var oft að klappa þeim og gæla við þau. undan mývargi við Sogið, einu sinni, (19. júlí 1914, 36 manns með 51 hesta). Þá gekk ferðin „i fluginu“, það eru engar ýkjur; það var svipaðast því að berast áfram í loftinu, rétt aðeins horfið til jarðar til að spyrna frá, endur og eins. — Ég hef séð lít- inn, jarpan hest dansa um grundir yfir stokka og steina með stærstu karlmenn á baki. Ég hef séð sama hest fara niður bratta skriðu í gili, svo bratta, að hann sat á rassinum niður; en hinum megin var bratt berg. Það er eitt hið merkilegasta, sem ég hef séð, að horfa á mann og hest hlaupa þar upp, báða jafnfima og mjúka, klifra eins og ketti. ----Já, ég hef séð og ég hef séð rauða, gráa, brúna, jarpa, alla vega lita og ólíka hesta, á sprettum og á hægri ferð, á alls konar vegum og vegleysum og í alls konar færð, — og sí og æ eru þeir jafn ólýsanlega dásamlegar skepnur. Margar eru minningarnar við ])á tengdar og flestar þannig, að þær lýsa ævilangt, geta ekki gleymzt, þótt minnið að öðru leyti bili. Sú þjóð, sem kann að sitja hest, ríða á hest- um frá vöggu til grafar, á þar dýra list, sem ekki má falla i gleymsku eða rýrna. (Skrifað upp úr litlu minnis-kveri, er höf. kallaði ,,Krunk“). Svo kom að því, að fé gat farið að vera úti, en þá vandaðist málið með minar kindur; lömbin vildu heldur elta mig en mömmu sína. Alltaf, þegar þau sáu mig úti, hlupu þau til mín og lýndu þá oft mömmu sinni. Svo varð að flytja hana á fjöll og var þá ekki við því að búast, að ég sæi lömbin aftur fyrr en um haustið. Leið svo sumarið. En um haustið, þegar smal- að hafði vcrið og reksturinn var kominn i rétt- ina, undraðist ég að sjá hvergi ána mína né lömbin, og varð ég að fara hnuggin í liuga heim frá réttinni, hafði hvorki heimt á né lömb. En ég hresstist fljótlega, því að þegar ég kom heim að bænum, sé ég hvar tveir rokna stórir hrútar koma á fleygiferð til mín og létu vinalega við mig. Þarna voru þá komnir báðir litlu hrút- arnir mínir, en nú voru þeir orðnir stærðar raumar og fallegir eftir þvi, svo að þeir báru af öllum hinum lömbunum. En nú vandaðist málið aftur lijá mér. Hér eftir gat ég ekki þverfótað fyrir utan dyr nema hafa báða hrútana í eftirdragi. Þeir eltu mig, hverl sem ég fór og vildu vera alls staðar, þar sem ég var. Mér þótti líka fjarska vænt um þá. En nú var komið haust, frelsið á fjöllunum búið, og á haustin verða flest hrútlömb að deyja. Horfumar voru því ekki góðar fyrir þessa fylgi- fiska mína, en það rættist betur úr þeim en á horfðist. Af því að þeir voru svo stórir og falleg- ir, voru þeir báðir látnir lifa. Annar var settur á hér heima, en hmn seldur til manna, sem engar kindur áttu, suður i Húnavatnssýslu að ég held. Ég vona, að þeir fari vel með kindurnar sinar þar. Já, annar hrútanna minna var heima og lát- inn lifa um veturinn. Eg fór að heiman þennan vetur, en um vorið, þegar ég kom heim aftur, urðu fagnaðarfundir. Þegar ég gekk heim að bænum eftir burtveruna, sá ég, hvar Junkur (það nafn hafði ég gefið hrútnum) var að bíta alllangt álengdar. Eg kallaði í hann og ætlaði nú að sjá til, hvort hann þekkti mig ekki. Hann (Sjá bls. 64)

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.