Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.04.1952, Blaðsíða 5

Dýraverndarinn - 01.04.1952, Blaðsíða 5
DYRAVERNDARINN 19 Ratvís hestur. Veturinn 1916 var mikill snjóavetur frá árs- byrjun og fram á vor og þar af leiðandi oft vont að ferðast. Áður greindan vetur, þann 13. febrúar kl. 6 síðdegis, lagði ég af stað frá Neðra-Ási í Iljalta- dal til Ásgeirsbrekku í Viðvikursveit og var ferðin gerð til að sækja ljósmóður, er þá sat í Ásgeirsbrekku. — Vegalengd þessi mun vera um 7—8 km. Fönn var mikil, hestfæri vont, ófærðin milli hnés og kviðar eða kafhlaup. Norðaustan stórhríð var á og fannkoma. Ég Ir.gði af stað frá Neðra-Ási i ferðina með tvo liesta og kom við í Viðvík. Viðvík er næsti hær vestan Hjaltadalsár og var þá prestsetur. Sat þar þá séra Guðhrandur Björnsson, síðar prófastur. Ég vissi, að séra Guðhrandur átti ratvissan liest, gráan að lit, er kallaður var Kjarvalingur, — ættaðan frá Kjarvaldsstöðum í Iijaltadal. — Ég var fylgdarmaður séra Guðhrandar um- ræddan vetur og þar af leiðandi þekkti ég hest- inn vel, ekki sízt þar sem prestur notaði hann vanalega í vetrarl'erðir. Ég bað nú prest að lána mér hestinn í feröina og var liann vel- kominn. Unglingspiltur, 11 eða 12 ára, var í Viðvik og vildi prestur, að hann færi með mér, þar sem ég hafði þrjá liesta, og varð það úr, að drengur- inn færi með. 1 Viðvík lagði ég lmakk minn á Kjarvahng, en teymdi rauðblesóttan liest, er ég átti sjálfur. Drenginn setti ég upp á rauðskjóttan hest, þriðja hestinn, sem við höfðum. Kveð ég svo síra Guðbrand og legg af stað út í stórhríðina í nafni drottins — áleiðis til Ásgeirsbrekku með þrjá hesta og óþroskaðan dreng sem ferðafélaga. Taumana á Kjarvaling lét ég liggja lausa fram á makka og henti hon- um svo beint vestur frá Viðvík, þá leið, er við prestur vorum vanir að fara til Hofsstaða og Rípur (það eru kirkjustaðir). Hesturinn liélt áfram óhikað, unz hann allt í einu snar stanzaði og þykist ég þá vita, að hann sé kominn vestur að svokölluðu Dalagili. Fór ég þá af baki og kannaði fyrir mér, en sá ekkert frá mér. Tók ég nú það ráð að reka liann á undan mér, því ckki vildi ég snúa honum neitt frá því liorfi, er hann var i, ef hann skyldi vera á réttri leið. Kjarvalingur heldur hiklaust áfram og yfir illfært kafhlaup, sem var eitthvað um fjórar hestslengdir. Þóttist ég nú vera viss um, að þetta væri Dalagilið. En allt í einu stanzar hesturinn við gamlar heitarhúsatóttir frá Mikla-Hóli. Þá þekkt ég mig og vissi, að við vorum á réttri leið. Þarna var ævinlega farið á veturna. Ég stanzaði augna- hlik við tóttirnar, en þá hnippti Kjarvaling- ur i mig með hausnum og litur svo heint fram í hríðina. Þóttist ég þá vita, að hann væri að tilkynna mér, að við værum á réttri leið. Sté ég svo á bak honum, klappaði honum og talaði við hann. Bað ég hann að stefna heint að hæn- um í Enni, því að þar lá leiðin um túnið. Reið ég svo af stað og fór svo hart sem ég gat, og mátti ég hafa slerkar gætur á drengnum, sem vart íylgdi mér eftir. Þannig héldum við ferö- inni áfram og þykir mér vera orðið langt að Enni. En þá allt í einu er blessaður hesturinn að fara inn fyrir túnhliðið, og það þótti mér vænt um. Fór ég svo sem leið liggur um lilaðið á Enni og út uni túnliliðið neðan við bæinn. Er ég var kominn dálítið niður fyrir hliðið, að mér fannst, tók ég ofurlítið í vinstri taum á hest- inum og sveigði hann í þá átt, sem mér fannst stefan á Ásgeirsbrekku vera. En eins og menn vita, sem kunnugir eru þar, er nokkuð langi frá túnhliðinu í Enni og upp að Ásgeirsbrekku, því að bærinn stendur svo liátt uppi við fjallið. Allt er í fangið og erfitt að i’ata þangað í stór- hríð og náttmyrkri. Nú henti ég Kjarvaling, hað hann í öllum hænum að taka Ásgeirshrekku og lierði svo á sem mest ég get, því að mér fannst ég vera húinn að vera svo lengi á leiðinni, og innan stundar er Ásgeirsbrekku náð. Þá lofaði ég guð fyrir að vera kominn á leiðarenda, klapp- aði klárnum og kyssti hann fyrir ratvísina og sagði við hann, að nú væri hann viss um leið- ina heim aftur í kvöld. Stutta stund stóð ég við í Ásgeirsbrekku. Ljósmóðirin var fljót að húa sig til ferðar,

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.