Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.04.1952, Blaðsíða 8

Dýraverndarinn - 01.04.1952, Blaðsíða 8
22 DíRAVERNDARINN íslenzk lög og reglur um meðferð dýra. Hér á landi, eins og hjá öðrum siðuðum þjóð- um, hafa lög verið sett og reglur verið gefnar til að tryggja góða og mannúðlega meðferð á dýrum. Sumpart miðast þessi löggjöf fyrst og fremst við hagsmuni þeirra, sem eiga dýrin og lifa af afurðunum, sem þau láta i té. Er slíkum hagsmunum vanalega því betur borgið sem betur er með dýrin farið. Á hinn bóginn er löggjöfin til orðin af mannúðarástæðum, beinlínis vegna dýranna sjálfra, eða með öðr- um orðum þeim til verndar. Hvort heldur sem er stuðlar löggjöfin að betri meðferð á dýr- um en vera mundi án hennar. Lög og reglur af þessu tagi, sem gilda hér á landi, eru hvergi til prentuð í heild. Hefur það margsinnis komið sér illa, þvi að allir, sem dýraverndunarmálefnum sinna, og aðrir, sem vilja stuðla að sæmilegri meðferð á dýr- um, þó að þeir láti þessi málefni að öðru leyti afskiptalaus, þurfa iðulega á þvi að halda að vita með vissu, hvað eru lög í þessum efnum, og verður þá oft tafsamt að afla öruggra upp- lýsinga um það. Slíkar upplýsingar geta líka verið vandfengnar af ýmsum öðrum ástæðum. Dýraverndarinn mun nú leitast við að bæta úr þessum vandkvæðum eftir föngum með þvi að birta í heild öll gildandi ákvæði í íslenzk- um lögum og reglur, sem snerta mannúðlega meðferð á dýrum á einn eða annan hátt. En með því að blaðið á ekki kost á lögfræðilegri aðstoð, er ekki tekin ábyrgð á því, að öll kurl komi til grafar. Mikil brögð munu samt ekki verða að því. Ákvæði þessi eru öll til samans allmikið mál, og verður efninu skipt í kafla eins og hér segir: I. Lög um dýraverndun. II. Reglur um aflífun húsdýra, slátrun bú- penings og um fuglaveiðar o. fl. III. Lög og reglur um forðagæzlu og fóður- hirgðafélög. (Úr reglugerð um búfjár- rækt.) IV. Lög um útflutning hrossa. V. Reglugerð um útflutning hrossa og er- indisbréf fyrir umsjónarmenn. VI. Lög um gelding liúsdýra. VII. Ýmis ákvæði. Friðunarlög, s. s. lög um friðun fugla, hrein- dýra o. fl., snerta líka dýraverndunarmálið og mun hlaðið einnig hirta þau, áður en langt um líður. I. KAFLI. Lög um dýrauerndun. 1. gr. Sá, sem gerir sig sekan um illa meðferð á dýrum með því að ofhjóða þoli þeirra, með vanhirðu eða á annan liátt, skal sæta sektum eða varðlialdi. Hafi misþyrming átt sér stað, má beita fangelsi allt að einu ári. 2. gr. Frá 1. október 1917 skulu allir þeir, sem skepnur eiga, hafa næg hús fyrir þær allar. Rrot gegn þessu ákvæði varða sömu viðux-lög- um, sem brot gegn 1. grein. 3. gr. Ráðuneytið setur reglur urn aflifun allra húsdýra, slátrun búpenings og um fuglaveið- ar, svo og um rekstur og annan flutning inn- anlands á sauðfé til slátrunar og á sauðfé og lirossum til útflutnings, og einnig meðfei-ð á hrossun í brúkun. Skal það gert með reglu- gerð, sem jafnframt ákveður sektir fyrir brot á slíkum reglum. 4. gr. Með hrot gegn lögum þessum skal farið, sem opinber lögreglumál. II. K AFLI. Reglur um aflífun húsdýra, slátrun búpenings og um fuglaveiðar, svo og um meðferð á sauðfé og hrossum að ýmsu leyti. Samkvæmt lögunx nr. 31 frá 19. júní 1922, um breytingu á lögum um dýraverndun, 3. nóv. 1915, eru settar eftirfarandi reglur um aflif- un húsdýra, slátrun búpenings, aftöku ali- fugla og unx fuglaveiðar, svo og um meðferð á sauðfé og stórgripum að ýmsu leyti.

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.