Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.02.1954, Qupperneq 8

Dýraverndarinn - 01.02.1954, Qupperneq 8
4 DÝRAVERNDARINN Dýralæknir og hjálparlið hans við uppskurð. sem áður, þar til svæfingarlyfið sviftir þá með- vitund. En skjaldbökurnar eru áreiðanlega hægustu og hljóðustu sjúklingar, sem til eru í heiminum. Á dýraspítalanum við Emdrúpsveg hafa verið skjald- bökur með drep í fótum, veik augu og ígerð undir skildinum, en alltaf er sama kyrrðin yfir þeim, hverju sem fram vindur. Ljón hafa líka verið á þessum spítala. Fyrst var það 4—5 mánaða gamall Ijónshvolpur, sem var þar í fóstri. Hann var góður og glaðlyndur og lék sér með mestu ánægju við jafnaldra schefferhvolp. Svo kom fullorðið Ijón vegna blóð- eitrunar, en þjálfari þess eða temjari var látinn vera hjá því á spítalanum. Yfirleitt eiga dýrin við sams konar eða svipuð veikindi að stríða og við mennirnir. Sumir algeng- ustu sjúkdómarnir meðal okkar eru líka með þeim algengustu hjá þeim, til dæmis bólga í tannholdi, tannpína o. fl. VI. Sú skoðun hefur rutt sér mjög til rúms á síð- ari árum meðal lækna, að hollast sé fyrir sjúkl- inga að fara sem fyrst á kreik eftir skurðaðgerðir, og nú á tímum mun vera farið eftir þessari kenn- ingu á flestum mannasjúkrahúsum. Sama er að DÝRASPÍTALINN við Emdrúpsveg í Kaupmannahöfn er elzta og merkasta stofnun á sínu sviði á Norður- löndum — tók til starfa 1915. Síðan hefur starfsemi hans aukizt jal'nt og þétt, einkum fyrstu 10 árin, verksvið hans víkkað og við- fangsefnin orðið fjölbreyttari. — Upphaflega hafði hann sjúkrarúm fyrir 60 dýr — nú 125. Sérstakri efnarannsóknarstofu var fljótlega komið upp, og smám saman hefur verið bætt við hann mörgum einangruðum deildum vegna næmra sjúkdóma. Árið 1950, þegar dýraspítalinn átti 35 ára afmæli, höfðu rúmlega 50 þúsund veik dýr notið þar hjúkrunar og Iæknishjálpar. — Þeirri reglu hefur undantekningarlaust verið fylgt í þessari stofnun að láta engan, sem leitað hefur á náðir hennar, synjandi burtu fara, þó að greiðsla fyrir veitta hjálp væri ekki væntanleg. segja, þar sem sjúklingarnir eru dýr. Strax á 1. degi eftir uppskurði eru dýrin nær því undan- tekningarlaust risin á fætur aftur, jafnvel eftir meiri háttar aðgerðir t. d. stóra magaskurði. Á dýraspítalanum eru tvær skurðstofur. Sú, sem venjulega er notuð, er ekki sérlegra stór, enda eru það oftast fremur lítil dýr, sem tekin eru til uppskurðar. Hin er stærri og höfð fyrir stór dýr. Meðal þeirra er hesturinn algengasti sjúklingur- inn. Á undan skurðaðgerðum munu flestir læknar láta sjúklingana fá róandi lyf, hvort sem það eru menn eða dýr, og það er ekkert smáræði, sem þarf af slíkum lyfjum handa stóru dýrunum. Ein- um hesti til dæmis nægir ekki minna en 800— 1200 cg. af phenemal. Þess má geta til saman- burðar að í tveimur til þremur venjulegum phene- maltöflum (lúminalettum) er aðeins l1/^ cg. Á daginn eru hundarnir látnir fara út í garð- inn við sjúkrahúsið, ef þeir hafa heilsu til þess, og þegar þangað kemur, hlífa þeir ekki raddfær- unum. Þarna gjamma þeir og spangóla af öllum lífs- og sálarkröftum og reyna að yfirgnæfa hvern annan með hávaðanum til að vekja sem mesta eftirtekt á sér. Svona geta þeir látið þangað til þeir verða svo hásir, að þeir geta engu hljóði upp komið.

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.