Dýraverndarinn - 01.09.1957, Page 2
Andstyggilegt og ólöglegt athæfi.
Blódbað á Suðurnesjum
1 febrúarblað Dýraverndarans skrifaði ritstjór-
inn grein, þar sem vikið var að því neyðarúrræði,
sem gripið hefur verið til vegna þess mikla tjóns,
sem háhyrningar hafa valdið útgerðar- og síld-
veiðimönnum á Suðvesturlandi.
Eins og öllum er kunnugt hafa geipistórar há-
hyrningavöður, sem eru að elta síldina, ætt um
veiðisvæði bátanna, rifið net og valdið veiðitjóni,
og hefur skaðinn numið mörgum milljónum króna.
Voru vöðurnar fyrst eltar með skothríð, en það
virtist ekki bera árangur, og var loks brugðið á
það ráð í fyrra og hittiðfyrra að fá herflugvélar
til þess að fljúga yfir miðin og varpa sprengjum
á hvalavöðurnar. Þessar aðgerðir ollu ægilegu
blóðbaði, urðu f jölda dýra að bana, en munu hafa
sært mörg svöðusárum. Er hörmulegt til þess
að hugsa, að þessi háttur verði framvegis hafð-
Efst búrhveli, til vinstri andanefja, til hægri grindhveli.
ur á um eyðingu háhyrninganna, og er þ.oð brýn
og bein skylda Fiskifélags Islands að leita til hug-
vitsmanna, innan lands og utan, um ráð til þess
að flæma dýrin burt af veiðisvæðum síldveiði-
flotans eða — ef þess reynist enginn kostur —
þá bana þeim með virkum, en mannúðlegum að-
ferðum.
Grind — eða grindhvalur — er tannhveli, 5—8
metra langt. Grindin lifir mikið á kollkrabba og
heldur sig oftast í stórum hópum. Æðir hún stund-
um inn í þrönga fjarðarbotna eða víkur og voga,
og kemur það þá stundum fyrir, að fleiri eða
færri hvalir fara svo nærri landi, að þeir festast
á grunni. I Færeyjum er það tíður atburður, að
grind syndi inn í þrönga firði, og fara þá menn
af stað í bátum og reka vöðuna á land. Sent er
grindaboð um byggðirnar, og menn drífur að
hvaðanæva. Hefst síðan hin ægilegasta slátrun,
og þykir hver mestur, sem flestum hvölum getur
banað, en börn og konur horfa á og hlakká til
að fá kjöt og spik, því að hvort tveggja þykir
Færeyingum hið mesta hnossgæti. Þó að við
grindadrápið séu grimmdarlegar og svaðalegar að-
farir, er það nokkur bót í máli, að Færeyingar
hafa búið sér til sveðjur, sem eru sérstaklega til
þess fallnar að bana með þeim dýrunum, og flest-
ir hafa fengið allmikla leikni í að leggja þau þar
með lensunum, sem sárið veldur skjótum dauð-
daga.
Fyrir nokkrum vikum gerðist sá atburður suð-
ur í Njarðvíkum, að vaða, sem í voru á annað
hundrað grindhveli, æddi inn á víkina, og brugðu
menn við fljótt og ráku hvalina inn á grunnsævi,
þar sem þeir voru síðan drepnir. Nú er það stað-
reynd, að í íslenzkum lögum er kveðið svo á, að
bana skuli öllum dýrum á sem kvalaminnstan hátt,
en þarna voru ekki notaðar byssur og ekki tiltækar
grindarsveðjur eða menn, sem vanir væru að
leggja grind á þann hátt, að laginu fylgdi skjót-
ur dauðdagi. Þarna fóru til hinir frömustu menn,
50
DÝRAVERNDARINN