Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1957, Blaðsíða 9

Dýraverndarinn - 01.09.1957, Blaðsíða 9
.íW^'X cyv 3?- )06H /% /v.T. '4^ Æfmtýrin hans Tralla K*e Tralli sigrar bolabít. Ein gildvaxnasta og sterkasta tegund hunda er bolabíturinn, en ekki er hann fríður eða sviphýr að sama skapi. Tralli, vinur okkar, er alls ekki stór, en hann er hýr og greindarlegur. Hérna um daginn eignaðist skipstjóri í þorpinu bolabít, stóran og grimmdarleg- an. Tralli sá hann nokkrum sinnum, en hypjaði sig strax heim á leið til þess að verða ekki á vegi ófétisins. Svo var það í fyrradag, að Tralla varð gengið niður á götu. Hann sá þar liggja krókstaf og hugsaði með sér, að þennan grip skyldi hann færa húsbónda sínum. Hann greip stafinn milli tannanna og labbaði af stað, mjög stoltur og glaður yfir þessum fundi sínum. En þegar hann skauzt fyrir hornið á pósthúsinu, brá hon- um heldur en ekki í brún. Þar kom þá bolabíturinn og réðst umsvifalaust á Tralla. Tralli skalf og nötraði af hræðslu, en fljótur var hann að hugsa, enda lá mik- ið við. Hann lyfti stafnum og sló honum af öllu afli í hausinn á óvini sínum, sem kiknaði og féll. Og Tralli þaut sigri hrós- andi heim með stafinn. fJC ' r°° i GRftRRo SN DÝRAVERNDARINN 57

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.