Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.09.1957, Page 13

Dýraverndarinn - 01.09.1957, Page 13
Hjónin í hylnum Eitt sinn vorum við Einar Oddur Kristjánsson, gullsmiður á Isafirði, staddir inn í Laugardal í ögurhreppi. Veður var hlýtt og gott, og við geng- um niður að á, fleygðum okkur hlið við hlið á ár- bakkann og tókum að rabba saman, rólega og því nær letilega, og horfðum út á ána. Þarna var hylur við bakkann. Hann hafði mynd- azt við malarrif, sem stóð þó ekki alveg upp úr vatninu, nema rétt á stöku stað. Hylurinn mjókk- aði til beggja enda, en var breiðastur einmitt þar undan, sem við lágum. 1 honum miðjum var stór steinn, er stakk aðeins upp úr svörtum kollin- um. Annars var steinninn loðinn af slýi. Næst honum var alldjúp rák, og þegar vel var aðgætt, sást, að þarna mundi vera hringiða. Já, þarna voru strá, sem hreyfðust ósköp hægt kringum steininn. Áin suðaði og suðaði utan við rifið — og hún virtist eitthvað dul í máli, — nærri því ibyggin var hún. ,,Sko!“ hvíslaði Einar og benti. Jú, þarna kom þá silungur upp hylinn, ekki mjög stór, miðlungs reyðarsilungur, fór sér ósköp hægt. Og þarna kom annar, fór með sömu hægð, var svolítið stærri — þessi. Ógn fóru þeir sér ann- ars rólega, bökin svört — svona að sjá í vatn- inu, bleikir kviðir, kannski á þeim einhverjar dröfnur. Það var varla, að séð yrði, að sporð- arnir hreyfðust, helzt, að eyruggarnir blökuðust. Nú hvarf sá fyrri á bak við steininn, en hinn var á að gizka einum metra á eftir. Þar kom sá fyrri í ljós aftur, en hann hélt ekki áfram upp eftir, heldur sveigði með sömu hægðinni og áður, synti — eða barst, næstum því án þess að hreyfa sig, niður með steininum, og þarna var hinn líka kominn í ljós, sá stærri, virtist nákvæmlega haga ferðinni á sama hátt og með sama hraða. Nú sveigði sá fyrri á ný, hvarf aftur á bak við steininn, kom enn í ljós, var að þessu sinni nær steininum en áður og rétt aðeins þokaðist áfram — eins og stráin, sem fylgdu iðunni. Hinn kom emnig, og þannig fóru þeir fjóra hringa í að því er ^irtist ofurlítið mismimandi fjarlægð frá stein- lnum. Þegar þeir svo höfðu komið í ljós i fimmta sinn, þá . . . Ja, hvað var þetta? Ójú, það streymdi rauðgulur lögur út úr kviðnum á þeim minni, streymdi og streymdi. ,,Sérðu!“ sagði Einar og rak í mig olnbogann. Og ég benti honum á stærri fiskinn, en sagði ekki neitt. Út um gotrauf hængsins rann hvítur lögur. Sami hraði, sama hringbraut hjá báðum, og hinn hvíti vökvi streymdi yfir þann rauðgula, blandaðist honum í tæru vatninu. Allt í einu stanzaði hrygnan, en hængurinn hélt áfram með sömu hægðinni, unz hinir tveir líf- vökvar voru á bak við hann eins og litförótt bog- lína. Þá synti hann fram að hlið hrygnunnar, og skyndilega viku þau sér bæði frá steininum, tvö dökk bök, tveir sporðar. Þau juku hraðann, og þegar kom niður á grynninguna í mynni hyls- ins, heyrðist allhávært busl. Svo voru þau horfin. Áin virtist halda niðri í sér andanum, og við steininn var hafin hringferð þess, sem þarna átti að tryggja framhald lífsins, hringferð kringum slýjaðan stein í lygnum hyl. Við Einar horfðumst í augu, en sögðum ekki neitt um hríð. Svo mælti Einar hljóðlátlega: „Furðulegt er þetta, dásamlegt er þetta.“ Ég kinkaði kolli. Við höfðum orðið áhorfendur að einu af undr- um lífsins. Guðmundur Gíslason Hagalín. Konungurinn og gæsahirðirinn. Einu sinni þegar Kristján 4. Danakonungur var að ganga sér til skemmtunar, varð hann þess vísari, að hann hafði gleymt einhverju heima, sem hann þóttist ekki geta án verið. Hann hitti þá dreng, sem sat yfir gæsum. Bað dreng- inn skjótast með bréf hcim í höllina og kvaðst mundu gæta gæsanna á meðan. Drengurinn stökk af stað, en sá fljótt, að kóngi fórst illa gæsavarzlan. Hann sneri því við og sagði við konung, að hann þyrði ekki að fara, gæsirnar mundu týnast á meðan hann væri í burtu. Konungur sagði: „Vita skaltu það, drengur minn, að ég er sjálfur kon- ungurinn, sem stjórnar öllu ríkinu.“ Drengurinn svaraði: „Það má vel vera, að þú sért góður við þess háttar, en þú hefur ekki vit á að gæta gæsa.“ . DÝRAVERNDarinn 61

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.