Dýraverndarinn - 01.04.1952, Síða 10
24
DÍRAVERNDARINN
heim að húsum og bæjum. FélagiÖ keypti, bæði
í fyrra og núna, talsvert af fuglafóðri og fékk
skólabörn til þess að gefa það. Þá hefur það
einnig látið Jóni Steingrímssyni, Lækjargötu 7,
í té nokkurt fóður til þess að ala önn fyrir dúf-
um. Alls hefur verið greitt fyrir fuglafóður á
reikningi þessa árs kr. 1174.80. En auk þess
liefur félagið hvatt almenning til þess að gefa
fuglunum. Bæði í fyrra vetur og núna hefur
vikulega verið hvatning í blöðum bæjarins um
það.
Og s.l. vor birti stjórn félagsins smágrein i
blöðum bæjarins, þar sem almenningi var
])ökkuð umhyggja fyrir smáfuglunum, en það
var vitað, að mjög margir lögðu sig fram um
að hlynna að þeim og kostuðu jafnvel miklu
til þess.
Jafnframt var í þessari grein varað við sinu-
brennum að vorinu um varptímann og það at-
hæfi fordæmt að ráðast að farfuglum, svo sem
öndum og gæsum, með skotum, en að því munu
hafa verið nokkur hrögð hér á hverju vori.
Að öðru leyti hefur félagið litið unnið á rit-
vellinum, og mætti e. t. v. vinna eitthvað meira
á þeim vettvangi framvegis en hingað til. Vil
ég i því sambandi minna á málgagn Dýra-
verndunarfélags íslands, Dýraverndarann,
hvort ekki væri rétt af félaginu að vinna að
útbreiðslu hans meir en gert hefur verið.
Sumum kann að finnast, að litið fari fyrir
störfum Dýraverndunarfélags Akureyrar þetta
ár. Sjálfsagt hefði það getað starfað meira og
betur, en nokkurs virði mun þó þetta vera,
sem hér er greint frá. Vil ég þar sérstaklega
tilnefna björgun hestsins og undirbúning dýra-
verndunarlaganna. Ég tel það sannmæli, sem
gjaldkerinn (þ. e. Guðbrandur Hlíðar) okkar
sagði eitt sinn við mig, að það réttlætti að fullu
tilveru félagsins, ef þvi tækist að koma því til
leiðar, að fullkomin dýraverndunarlög yrðu
sett hér á landi, jafnvel þótt annað lægi ekki
eftir það. Eiríkur Stefámson.
Á síðasla aðalfundi félagsins var Jakob
Karlsson gerður að heiðursfélaga. Form. gat
]iess í skýrslu sinni, að honum hefði verið til-
kynnt það formlega skömmu síðar með þeim
ummælum, að hann væri kjörinn heiðursfé-
D ýraverndarinn
Útgefandi: Dýraverndunarfélag Islands.
Ritstjóri: Sigurður Helgason,
Brávallagötu 12, Reykjavík. (Sími 5732).
Afgreiðslu og innheimtu annast:
Hjörtur Hansson,
Bankastræti 11 (miðhæS), pósthólf 566, Reykjavik.
Ber að senda honum andvirði blaðsins og tilkynn-
ingar um nýja kaupendur.
Prentaður i Félagsprentsmiðjunni h.f.
lagi vegna margháttaðrar starfsemi í þágu
dýraverndunarmálsins.
Enn fremur er í skýrslunni getið nánar en
hér kemur fram um björgun Iiestsins úr Jökul-
dal við Tungnafellsjökul og tillögur þær um
ný dýraverndunarlög, sem fram eru komnar
að tilhlutun félagsins. Vegna þess, að Dýra-
verndarinn hefur áður sagt frá þessu hvoru
tveggja (7. thl. 1951 og 1. tbl. 1952) er því
sleppt úr skýrslunni.
Úr fundargerðinni.
Meðlimir félagsins eru 114, þar af nær helm-
ingur börn og unglingar. Á fundinum voru 1,3
nýir félagar teknir inn.
Félagið á i sjóði kr. 6658,54, og var eigna-
aukning á árinu kr. 4527,10,
Guðbrandur Hliðar baðst undan endurkosn-
ingu i stjórnina, þar sem hann er á förum af
landi hurt til dvalar erlendis um skeið. 1 hans
stað var kosinn Kjartan Ólafsson, bæjarpóst-
ur. Stjórnina skipa nú:
Eiríkur Stefánsson, kennari, formaður; Árni
Guðmundsson, læknir, ritari; Kjartan Ólafs-
son, póstur, gjaldkeri; Hannes J. Magnússon,
skólastjóri og sr. Pétur Sigurgeirsson, með-
stjórnendur. Varaformaður er Sigtrvggur Þor-
steinsson.
Að loknum aðalfundarstörfum flutti form.
])átt um íslenzka hestinn. Þá flutti Sigrún Páls-
dóttir (12 ára) kvæðið Fákar eftir Einar Bene-
diktsson. Eftir ]>að sagði Stefán Steinþórsson
sögur af hesti, sem hann átli eitt sinn. Að lok-
um flultu þrjú börn (Hugrún Steinþórsdóttir,
Atli Örn Einarsson 12 ára, og Grétar Einars-
son 10 ára) kvæði um liesta.
Síðasta atriði fundarins var stutt kvikmynd
af dýrum, (Samkv. lieimild frá form. félagsins).