Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1950, Side 9

Dýraverndarinn - 01.06.1950, Side 9
DtRAVERNDARINN 31 anum. En svo tók ekki betra við fyrir henni, þegar tveir menn voru komnir og ógnuðu með nærveru sinni. Skelfingin skein út úr augum litla dýrsins, sem langaði sjáanlega að biðja um frið, en var þó ákveðiö að verjast til síð- ustu stundar. Viö horfðum á það litla stund, en síðan læddist ég með aðra hendina niður með bakkanum og tók utan um hálsinn á því, Hausinn á lágfótu litlu sést út úr um- búðunum. án þess þó aö meiða það. Brá þaö nú fljótt við og ætlaði að beita öllum sínum vopnum, sem vonlegt var, en fann þó fljótt, að það var yfirbugaö og gaf upp alla vörn. Við virtum það fyrir okkur, vöfðum það síð- an inn í jakka og skoðuðum það dálitla stund. Ekki gátum við hugsað til þess, aö svifta þetta litla dýr frelsi sínu, en afréðum aö taka mynd af því, úr því að svo vel vildi til, að myndavél var með í ferðinni. Á myndinni sést höfuð litlu tófunnar út úr jakkanum, ef vel er að gáð, en hún er óskýr, því að degi var tekið að halla, og filman var á enda, svo að ekki var hægt að taka fleiri stillingar. Svo lofuðum við lágfótu litlu að fara út í hina frjálsu náttúru og óskuðum henni góðrar ferðar. Hún var ekki lengi að átta sig og hljóp með fimum fótaburði yfir uröir og móa svo langt sem við sáum. Guðm. Ó. Guðmundsson, Brekku, Ingjaldssandi. — ^drá ijncýótu, leiendunum — Jökull Ég var í sumarbústað í Kaplakrika í Hafn- arfjarðarhrauni. Þar voru 5 aðrir bústaðir. Einn þeirra hét Sólberg. Þar var hundur, er Jökull hét. Ég var hálfhrædd við hann í fyrstu, því að hann var ungur og fjörugur. En eftir því sem leið á sumarið minnkaöi hræðslan, og við urðum mestu mátar. Alltaf þegar hann sá mig, kom hann til mín. Eitt sinn, er ég var að leika mér úti með krökkunum varð mér litið upp að Sólbergi. Sá ég þá, hvar tveir menn eru að elta Jökul um allt tún. Ég hljóp upp eftir til að forvitnast um, hvað gengi á. Jökull var búinn að koma auga á mig og kom á harðahlaupum í áttina til mín. Ég hljóp nú til húsbóndans og spurði hann, hvað ætti aö gera við Jökul. Hann sagði mér þá, að þeir væru að reyna að venja hann á að reka hænsin heim á kvöldin. Kvöld eitt nokkru síðar um 7 leytið varð mér litið út. Sá ég þá, hvar Jökull gekk upp túnið með milli 20—30 hænsni í eftirdragi upp að hænsnakofa, og svo beið hann við hús- ið, þangað til allar hænurnar voru komnar inn. Þá labbaði hann í burtu. Dagbjört Hafsteinsdóttir 12 ára. Góðir v i n i r Mér vefzt nú tunga um tönn, þegar ég á að fara að segja frá einhverju dýri, sem mér hef- ur þótt vænt um, því að í raun og veru þykir mér vænt um öll dýr, sem ég hef umgengizt, en það er nú hesturinn og hundurinn, sem mér þykir sérstaklega vænt um. Og það er af því, að hesturinn veitir manni svo mikla á- nægju, þegar manni gefst tækifæri að sitja á honum á góðum vegi. Svo þykir mér vænt um hundinn, af því, að hann er alltaf svo tryggur og vinalegur, aö minnsta kosti hundurinn, sem ég hef mest kynnzt, og hann var alltaf fljótur að hlaupa, ef ég þurfti á hjálp hans að halda. Ég var í sveit s.l. sumar og kynntist þá eigin- lega dýrunum í fyrsta sinn. Hundurinn á bæn-

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.