Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.03.1930, Side 8

Dýraverndarinn - 01.03.1930, Side 8
2 DÝRAVERNDARINN saman hroÖanum, sem safnast hafði unclir gólfið. Af vana hnýsni fór eg aÖ róta í þessum óþverra, og hvað mundi eg finna? Eina snigilskelina mína. — Eg ætla mér að eiga hana, og hugsa að auðveld- ara verði að gæta hennar nú, heldur en meðan hún stjórnaðist af lifandi veru, sem þráði frelsi og greip fyrsta færi sem bauðst, til að komast úr fangelsinu, þó framundan væru opnar glufur og aðrar torfærur, sem hinir sniglarnir hafa sennilegt lent í. Eg hefi ekkert séð eftir af þeim. Eg hefi stundum verið að brjóta heilann um, hvað honum „Andra okkar“, svo sem Jónas Hallgrímsson kallaði H. C. Andersen, hefði getað orðið úr sögu sniglanna minna. Er sem eg sjái hann útmála alt þeirra lífshlaup, frá þvi þeir verða til og skelin vex með þeim þar til þeir eru fullvaxnir, njóta lífsins í kálgarðinum, vera stungnir upp með kartöflunum, látnir í poka og dembt niður i lest á stóru skipi, hreppa storma og heyra haföldurnar skella á skipinu, taka land og komast inn í Matardeildina í Hafnar- stræti og síðast heim i litla eldhúsið mitt, vera þar þvegnir, bornir inn í stofukytruna mína og látnir á hlýlegasta og bjartasta blettinn þar, með nægu fóðri, þráðu samt bera loftiö og ótakmarkað rúm og gripu tækifærið þegar það gafst, til að kanna óhindraðir ókunna stigu, lenda í nýjum raunum; skelj ungurinn minn endar líf sitt milli þaks og gólfs á svölunum, og skelin verður öskjuprýði hjá mér, og hinir lenda hvar ? Það veit skáldið eitt. Mig hefir jafnvel langað til að reyna mig á þvi að skrifa sögu þeirra, eins og mér finst hún viðburðaríkust og glæsilegust, en eg ger- ist ekki svo djörf að skrifa æfintýri. Eg álít að til þess þurfi meira en eg hefi yfir að ráða. Tlieódóra Tlioroddsen. Forustu-Gránl. Haustið 1881 lagðist vetur snemma að í Norður- landi, og mátti segja, að svo væri um fullan áratug, eða frá 1879—1890. Sum þessi ár urðu líka fellis- ár á Norðurlandi, og flosnaði þá margur upp, er við búskap fékst, enda flýðu ýmsir land á þeim árum, bæði bændur og búleysingjar, og fluttu til Ameríku. Og öndverðan þennan vetur (1881) flutt- ist eg alfarinn úr Norðuralndi til Reykjavíkur, en átti áður heima á bæ þeim, er Þóroddsstaðir heita: stendur hann austanvert við Hrútafjörð, en and- spænis Borðeyri. Síðari hluta októbermánaðar þetta haust, hlóð nið- ur all-miklum snjó, svo að hýsa varð alt fé á þess- um slóðum. Þó var fé haldið til beitar á degi hverj- um og lömb ekki komin á fasta gjöf, en látin fylgja fullorðna fénu. Morgun einn sem oftar var eg látinn reka féð í haga upp á Hrútaf jarðarháls (milli Þóroddsstaða og Reykja), og átti eg að standa yfir þvi þar um dag- inn og reka það svo heim til húsa að kveld.i Var snjóléttara þar efra í brúnunum og ofan við þær, og grynnra að krafsa þar til jarðar, en neðar í hálsin- um. Veðurútlit var ljótt, frostnæðingur og sleit úr honum öðru hvoru. Mér sóttist reksturinn sæmilega upp eftir, enda var i hópnum ágætur forustusauður, sem réði ferð- inni. Þó hafði eg stundum áöur séð hann renna djarf- ara á undan hópnum. Þennan morgun virtist hann undarlega tregur, eins og honum væri um og ó að leggja á hálsinn; stundum nam hann staðar og leit þá aftur yfir hópinn og til mín, en hélt þó jafnan áfram, þegar eg nálgaðist hann og benti honum. For- ustu-Gráni var þá 12 vetra, ullarsnoðinn og rýr, og flaug mér í hug, að þessi tregða hans stafaði af því að hann væri orðinn kulvís, gamla skarið. Hafði oft verið talað um að lóga honum og ákveðið aS gera það siðar um haustið, þegar sláturstörfum væri lokið. Þegar upp á hálsinn kom, tók féð að krafsa, og stóð vel á, þrátt fyrir éljagang öðru hvoru. Þó sinti Forustu-Gráni lítið krafstrinum; hann leit varla í jörð, svo eg tæki eftir, stóð stundum og hímdi eða rölti innan um fjárhópinn, og stjakaSi þá við félög- um sínum, eldri sauðunum. Þegar leið að nóni, fóru élin að þéttast, og eftir örlitla stund var skollin á ofsa norðanhríð með mik- illi fannkomu og grimdarfrosti. Sá eg þá, að ekki var til setunnar boðið, og flýtti mér að fara í kring- um féð og hóa því saman. Reyndi eg svo að nudda þvi af stað heimleiðis, en lömb og fullorðið fé vill oft ekki veröa samrekstra, einkum þó í fyrstu snjóum og hríðum, enda fór svo í þetta sinn. Lömbin vildu standa þar sem þau voru komin, en fullorðna féð

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.