Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.03.1930, Qupperneq 12

Dýraverndarinn - 01.03.1930, Qupperneq 12
6 DÝRAVERNDARINN Dýraspítalinn að innan. Lengst til vinstri sésl kláfurinn, sem dýrin eru teymd inn í og látin síga í niður í baðþróna. sem upp er tekinn um allan rekstur Tungu. Hafa flestir þeirra skrifað mjög lofsamlega um þessar umbætur og starfsemi Dýraverndunarfélagsins, og hefir það birzt í öllum helztu blöðum bæjarins. En þó mun mörgum þessara gesta ekki hvað sízt hafa orðið starsýnt á gæðingana, sem alnir hafa ver- ið í Tungu í vetur. Voru þá 17 hestar í aðalhest- húsinu, sem fóðraðir hafa veriö þar í vetur, og allir prýðilega hirtir. Enda er orð á gert, að ráðsmað- urinn sé einstakur í sinni röð, sem ágætis hestahirðir. Er jnví vonandi, að Dýraverndunarfé- laginu haldist sem lengst á hon- um í þjónustu sinni. Þær raddir hafa látið til sin heyra, að stefnt sé frá hinu upp- haflega markmiði Dýraverndun- arfélags Islands með stofnun verndarstöðvarinnar í Tungu, þegar íarið er að ala þar hesta bæjarmanna vetrarlangt. En slík- ar raddir eru á miskilningi bygð- ar. Markmið verndarstöðvarinn- ar er að láta öllum dýrum, sem þangað koma, liða vel, hvort sem þau eiga þar langa dvöl eða skamma. Fjöldi þeirra kofa og skúrahér i bænurn, sem hestar hafaverið— og eru enn — hýstir í, eru svo lélegir, dimmir, kaldir og loftlausir, að engri lifandi veru getur liðið vel í þeim, enda er það á engan hátt samboðið jafn göfugu dýri og hesturinn er, að kúldrast í slíkum húsakynnum. Væri vel, að slíkum kofum fækkaði, og ekki úr vegi, að Dýraverndunar- félag Islands beitti sér fyrir því, og þá á þann hátt, að efla svo verndarstöðina í Tungu, að hún geti tekið í hús sín fleiri hesta en áður, og látið þeim líða betur, en kostur er á, annarsstaðar í þessum bæ. Gráni. (Hann var reiShestur Páls Guðmundssonar, bónda á Hjálmsstöðum í Laugardal. Var hann harðger og viljugur, traustur með afbrigðum og röskur, enda kom það sér oft vel, því að ekki var altaf mulið undir hann. Lentu þeir í mörgum svaðilförum um dagana, Páll og Gráni, en aldrei þraut Grána, hvorki í Mosfellsheiðar-byljunum eða í öðrum vetrarferð- urn, og voru þær þó á stundum alt annað en leik- fang, manninum og hestinum. Er það sama sagan, er svo margir hafa að segja hér í landi: að hesturinn hafi bjargað lífi eigandans oft og mörgum sinnum, þegar maðurinn stóð ráðþrota gagnvart tryldum öfl- um náttúrunnar. Sú saga endurtekur sig viðsvegar um land, þótt ekki sé haft hátt um það. En minn- ingarnar, hlýjar og bjartar, hita mörgum góðum dreng um hjartarætur. Gráni féll haustið 1918, þá 19 vetra, og kvaddi Páll hann þá með eftirfarandi stökum). * * * Sveimar hljótt í hugan inn harmur blandinn trega: nú er gamli Gráni minn genginn Heljar-vega.

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.