Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.03.1930, Síða 10

Dýraverndarinn - 01.03.1930, Síða 10
4 D ÝRAVERNDAIUN N Tunga og umbæturnar þar. Tunga; íbúðarhúsiS lengst til vinstri, hlaða og aðalhesthúsið til hægri. I. í 4.—5. bl.'Dýraverndarans síðastliÖi'Ö ár, bls. 42 —43, birtist grein um verndarstöðina í Tungu, og er þar lýst all-ítarlega „hvílíkt nauðsynjaverk mann- úðar og menningar hefir unnið verið með stofnun 'hennar"; og verður það ekki rakið frekar að þessu 'sinni. En jafnframt var á það bent, að enn væri mikið óunnið af nauðsynlegum umbótum i Tungu, og þess getið, að í þær mundi ráðist þá innan stundar. Hafa gripahúsin um langt skeið verið af vanefn- um ger, aðalhesthúsið dimt og lágkúrulegt, bás- um illa komið fyrir og ýmislegt fleira, sem ábóta- vant þótti. Hafði stundum verið á þetta bent á aðal- fundum félagsins, og farið þess á leit við stjórn- ina, að hún fyndi ráð til að bæta úr þessu. Viður- kendi stjörnin þörfina, en bar jafnan fyrir sig fá- tækt félagsins og breytta aðstöðu síSari ára. Og þar við sat. Þegar ráðist var í að kaupa Tungu og koma þar upp verndarstöð dýra, var búist við að stöðin mundi hafa allmiklar tekjur af því að hýsa og geyma hesta ferðamanna, sem hingað sæktu til bæjarins haust og vor, og þó sérílagi þeirra, sem hingað kæmu laus- ríðandi að vetrinum eða þyrftu á þeim tíma að flytja fát á hestum frá og til heimila sinna. En eins og kunnugt er, hafa slíkar ferðir að mestu lagst niður, síðan bifreiðir tóku að sér að annast alla mann- og vöruflutninga austur yfir fjall og hingað suöur. Er það þvi næst- um undantekning, móts við það sem áður var, að ferðamannahest- ar sjáist hér i borginni, nema þá lengra að komnir, og þá aðeins haust og vor. Vetrarferðir með hesta hingað til bæjarins eru svo að segja horfnar úr sögunni, og er það sizt að lasta hestanna vegna, sem oft voru miður haldn- ir í vondri færð og illviðrum, viö að In-jótast yfir heiðarnar hér nær- lendis. En þessi breyting, sem orð- ið hefir vegna bættra samgangna og fullkomnari farartækja, hefir komið mjög hart niður á rekstri Tungu. Þar hafa hesthúsin staðið auð tímunum sam- an, tekjurnar rýrnað ár frá ári, og sum árin orðið all-verulegt tap á rekstrinum. En slíkt er mjög baga- legt fyrir fátækt félag, sem úr litlu eða engu hefir að spila, en vill þó láta margt gott af sér lei'ða. Sáu félagsmenn lika, að við svo búið mátti ekki standa, og að eitthvað þurfti að gera til þess, að rekstur Tungu gæti betur borið sig. Hafa komið fram ýmsar tillögur í þessa átt, en sú tillaga feng- ið einna beztan byr, að taka af bæjarmönnum hesta til vetrarfóðrunar í Tungu. Hafa nokkrir hestar verið fóðraðir þar undanfarna vetur, en of fáir til þess, að bjarga rekstri stöðvarinnar. Létu ýmsir hest- eigendur ótvirætt í ljósi, að þeim líkaði ekki húsa- kynnin þar, og á meðan sú væri almenn skoðun hest- eigenda, þurfti ekki að gera ráð fyrir mikilli aðsókn. II. Síðastli'ðið ár rýmkaðist fjárhagur félagsins lítils- háttar, og lét stjórnin þá ekki á sér standa. Hún hófst þegar handa, og hefir nú látið framkvæma margháttaðar og kostnaðarsamar umbætur, bæði inn- an og utan fénaðarliúsanna i Tungu, sem þó er ekki að öllu lokið enn. Þykir nú hlýða, að skýra nánar frá framkvæmdum stjórnarinnar í þessu efni.

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.