Dýraverndarinn - 01.03.1930, Síða 22
DÝRAVERNDARINN
16
Til lesenda blaðsins.
Einar Þorkelsson hefir ekki treyst sér til, heilsu
sinnar vegna, aÖ halda áfram ritstjórn Dýraverndar-
ans, og hefi eg, fyrir beiÖni stjórnar Dýraverndunar-
félags íslands, tekiÖ að mér að sjá um blaðið fyrst
um sinn.
Er skylt að þakka Einari Þorkelssyni vel unnið
starf, þann stutta tíma, sem hann hafði ritstjórnina
nreð höndum, og verður að telja það mikið tjón, að
hans skuli ekki lengur við njóta um útgáfu Dýra-
verndarans.
Geng eg þess og ekki dulinn, að eg hefi færst mik-
inn vanda í fang, er eg nú gerist eftirmaður Einars
Þorkelssonar um ritstjórn Dýraverndarans. Finn eg
vel, að mig skortir flest til þess að feta í fótspor
fyrirrennara míns. En góðan vilja skortir mig ekki
til þess að reyna að leysa þetta starf af hendi eftir
beztu getu minni.
Eg vona, að allir góðir menn og dýravinir, hvar
sem eru á landinu, styrki mig til þess að efni blaðs-
ins verði bæði fjölbreytt og skemtilegt. Greinar um
dýraverndun og góða meðferð dýra, sögur um dýr
og vísur og kvæði, alt verður þetta þakksamlega
þegið og birt í blaðinu er.ástæður leyfa. Sérstaklega
vona eg þó, að þeir mörgu menn og konur, sem
birgðu blaðið að efni i ritstjórnartíð fyrirrennara
mins, haldi áfram að gera það, og láti ekki Dýra-
verndarann gjalda þess, að annar maður er seztur
við stýrið.
Einar E. Sœnnmdscn.
Formaður
Dýraverndunarfélags Islands biður að láta þess
getið, út af fyrirspurnum sem honum hafa borizt
viSvíkjandi kærumáli því, sem á er drepið i skýrslu
hans á bls. 14 hér að framan, að hann hafi nýlega
átt tal við skrifstofustjórann í dómsmálaráðuneyt-
inu, og að góðar horfur séu á, að málið verði Ijráð-
um til lykta leitt, svo að við megi una.
Fréttir frá Alþingi
um mál sem dýraverndun varða biða næsta blaðs.
DÝ R AVE R N DA R.l N N
kemur að minsta kosti á 11 a s i n n u m út á ári.
Dýraverndarinn er ódýrasta blaðið, sem nú er
gefiö út hér á landi- Árgangur hans kostar að eins
3 krónur.
Ætlunarverk Dýraverndarans er aS vinna að upp-
eldis- og menningarmáli allra þjóða, en það er sú
siöbót, sem fram kemur í verndun málleysingja og
miskunnsemi viö munaöarlausa.
Dýraverndarinn er oft prýddur myndum, og í
honum munu veröa ritgeröir og sögur ef.tir ritfæra
menn og merka.
Dýraverndarinn vill vinna sér traust og hylli
allra góöra manna, ungra og gamalla. Og er eigi
sízt leitaö liðsinnis kennara og ungmennafélaga um
aö kynna blaðið.
Þeir, sem útvega 5 kaupendur aö Dýravemdar-
anum, eöa fleiri, fá 20% í sölulaun.
Þeir kaupendur Dýraverndarans, sem enn eiga
ógreitt andviröi hans, eru vinsamlega beönir aö gera
skil sem allra fyrst.
Afgreiðslumaður
ÞORLEIFUR GUNNARSSON,
form. Dýraverndunarfél. íslands.
Félagsbókbandið. Reykjavík.
Lesendur
eru beðnir að afsaka drátt þann, sem orðið hefir
á útkomu blaðsins. Stafar hann meðfram af ritstjóra-
skiftunum svo og ]jví, að í sama mund og núverandi
ritstjóri tók við blaðinu, lagðist hann veikur. Því hafa
nú verið feld saman 1. og 2. blað, og jafnframt ætl-
ast til aö 3. blaðið komi út um miðjan mánuð.
Allar greinar
og annað efni, sem birtast á í blaðinu, sendist
ritstjóranum, og er utanáskrift hans: Einar E.
Sæmundsen, Reykjavík.
Ritstjóri: Einar E. Sæmundsen.
Ulgefandi: Dýraverndunarfélag íslands.
FélagsprentsmiCjan.