Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1931, Qupperneq 8

Dýraverndarinn - 01.05.1931, Qupperneq 8
34 DÝRAVERNDARINN Hljóta ungir hörku reið, liugur kvíða fyllist. 'J'eknir strax á tölt og skeið, tilfinningin spillist. Upphaflegum eðlisgang að er minni þreyta, Því er mikið færst í fang fljótt um liann að lireyta. Ekki er fögur sjón að sjá suma ganginn þvinga; af þvi minna fjör oft íá fákar Islendinga. Eg við þetta efni skil, oft sem hugann fyllir, finn að margt er fleira til fjörinu sem spillir. Hundarnir á Akri. Eftir Ingnnni Pálsdóttur, frá Akri. 1. Lappi og Píla. Hunda þessa áttu foreldrar mínir. Var Lappi eldri og heimaalinn, en Pila kynjuð frá Leysingjastöðum (næsta bæ fyrir framan Þingeyrar), en þar bjó þá mágur minn, Guðjón Jónsson, Ásgeirssonar, frá Þingeyrum. Hafði Pila kornið hvolpur að Akri. Bæði vóru þau í stærra lagi að vexti til og mjög falleg í hárafari. Áttu þau alstaðar vinum að fagna, vóru fjörug og léttlynd, en þó árvökul í starfi sínu og dugleg, enda fjárhundar ágætir. Og svo vitur vóru þau og.eftirtökusöm, að segja mátti að þau skildu nálega alt, sem við þau var sagt. Ætla eg mér til gamans að rifja hér upp fáeinar sögur af þeim, en margt er gleymt, því miður, sem gaman hefði verið að segja frá. — Haust eitt, síðla kvelds, kom fólk að Akri, sem rekið hafði sauðíé til slátrunar á Blönduósi. Átti fólk þetta fram yfir Húnavatn að sækja. En veðri hafði verið svo farið í nokkura daga, að allmikið frost var um nætur, en þiðnaði á daginn. Þetta kveld hafði þó frostið verið með mesta móti, svo að ekki þótti gerlegt að fara með hesta yfir á vað- inu. Ferja er í Akri og var surnt af fólkinu, ásamt öllum farangri, ferjað yfir um kveldið. En hestarn- ir skildir eftir á Akri og liýstir; þar gistu einnig menn þeir, sem eftir urðu. Guðjón mágur rninn á Leysingjastöðum var einn þeirra manna, sem heimleiðis hélt um kveldið. En þegar hann kom á ferjustaðinn, saknar hann hunds- ins síns, sem Kobbi liét; þótti Guðjóni miður að hafa taj)að rakkanum, sem var ungur og litt vanur ferðalögum, en þó mjög fylgispakur honum. En við þessu var ekkert lrægt að gera í svipinn; ferjumann- inn mátti ekki tefja með því að skreppa heim að Akri og vita livort Kohhi væri þar, sem sennilegast ])ótti. Varð Guðjón svo að fara í það sinn, Kol>ba- laus heim til sin. Leið svo fram um hádegi næsta dag. Er Guð- jón þá staddur úti á hlaði heima hjá sér, og sér hvar þrír hundar koma tritlandi utan göturnar, sem liggja lieim að bænum. Þekkir hann brátt Kobba sinn og í fylgd með honum Akurshundana, Lappa og Pilu. Bjóst þá Guðjón við að einhver maður frá Akri væri rétt á eftir, en svo var ekki. Hundarnir komu með miklum fagnaðarlátum til Guðjóns, eins og þeir væru að heilsa honum, en fóru svo óboðnir inn í eldhús til Steinunnar systur minnar, því að liúsfreyjuna þurftu þeir að lritta, og sjálfsagt að fagna henni, ekki síður en bóndanum, enda var hún vön að hygla þeim. Þegar svo að ílátin vóru tæmd og mestu gleðilætin af, lögðust allir hundarnir fram- an við eldavélina og höfðu hægt um sig. Sú hvíld varaði þó ekki lengi. Eftir stundarkorn risu allir hundarnir á fætur og fylgdust að út á hlað. En þar skildi með þeim. Lappi og Píla tóku á rás út göt- ur, en Kobbi litli sat eftir á hlaðinu, og mændi á eftir þeim. Nú víkur sögunni að Akri. Þar var farið að hafa gætur á fénu, og daglega gengið til þess og í kring- um það; var það gert seinni hluta dags. En þegar maðurinn, sem fjárins gætti, bjó sig að heiman ]>enn- an dag, var hundanna fyrst saknað, og kunni eng- inn neitt til þeirra að segja. Eftir örlitla stund komu þau þó Lappi og Píla, en höfðu enga viðdvöl heima, er þeim var sagt að fjármaðurinn væri farinn; lilupu ]>au rakleiðis út tún, og náðu manninum fljótlega. Þegar við sáum þau svona sundblaut, Lappa og Pílu, og að Kol>l>i var ekki með þeim, ]>ótti litill vafi leika á því, hvaðan þau kænm. Þau höfðu ekki treyst Kobba einum til ]>ess að synda yfir Húnavatn,

x

Dýraverndarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.