Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1931, Side 18

Dýraverndarinn - 01.05.1931, Side 18
44 DÝRAVERNDARINN DÝRAVERN DARI NN kemur að minsta kosti á 11 a s i n n u m út á ári. Dyraverndarinn er ódýrasta blaðið, sem nú er geíiö út hér á landi- Argangur hans kostar að eins 3 krónur. Ætlunarverk Dýraverndarans er aö vinna aö upp- eldis- og menningarmáli allra þjóöa, en það er sú siöbót, sem fram kemur i verndun málleysingja og miskunnsemi við munaðarlausa. Dýraverndarinn er oft prýddur myndum, og i honum munu verða ritgerðir og sögur eftir ritfæra menn og merka. Dýraverndarinn vill vinna sér traust og hylli allra góðra manna, ungra og gamalla. Og er eigi sízt leitað liðsinnis kennara og ungmennafélaga um að kynna blaðið. Þeir, sem útvega 5 kaupendur að Dýravemdar- anum, eða fleiri, fá 20°/o í sölulaun. Þeir kaupendur Dýraverndarans, sem enn eiga ógreitt andvirði hans, eru vinsamlega beðnir að gera skil sem allra fyrst. Afgreiðslumaður HJÖRTUR HANSSON, Austurstræti 17. •— Reykjavík. — Pósthólí: 566. an sauð í réttinni, sem ráfaði þar um alveg eirðar- laus, og sama óróann og hræðslublandinn kvíða mátti sjá á flestum kindunum í réttinni. Eitthvað fleira ræddu þau um þetta, en árangur- inn af þessu samtali varð sá, að verzlunarstjórinn tók til óspiltra málanna og lét hækka og þétta grind- urnar, svo að úr réttinni sást hvorki út á blóðvöll- inn né til gálganna, sem stóðu lengra frá. Og aðrir kaupmenn fylgdu dæmi Möllers og höfðu fjárréttir sínar eins og hans. III. Þessi dæmi, þótt gömul séu, sýna, að margt er hægt að gera til þess að dýrunum líði betur, ef menn aðeins hafa hugfast, að þau eru skynsemi gædd og eiga sínar tilfinningar. Og eg gæti bent á margt fleira, sem litla fyrirhöfn kostar, en miðar þó engu að síð- ur í sömu átt: að búa sem bezt við öll þau dýr, sem við höfum undir höndum. Sá maður, sem fyrst og fremst gerir sér far um að skilja dýrin og hugsanir þeirra, hann mun jafn- framt sjá og finna, hvað þeim er fyrir beztu og breytir við þau eftir því. Á þessum skilningi bygg- ist hin rétta meðferð dýra, og sá er dýravinur, sem lætur mannúð ráða í breytni sinni við málleysingja. Eg veit það með sannindum, að meiri og dýpri vitsmuna gætir hjá þeirn dýrum, sem eiga við gott atlæti að búa, en hjá hinum, sem lítið eða ekkert er hirt um. Og þetta er ofur eðlilegt. Því að þau dýr, sem enga vini eiga meðal manna, þeim er aldrei veitt eftirtekt, og geta af þeim sökum aldrei gert sig skiljanleg fyrir neinum, Hundar og hestar, sem oft og mörgum sinnum taka við að rata, þegar maðurinn er þrotinn og vilt- ur orðinn, þeir ættu þó að eiga einn vin, að minsta kosti, á hverju þvi heimili, sem þeir eiga heima á, — en, því miður, vill helzt til oft verða misbrest- ur á því. En það er skylda allra, að vera dýrunum vinveitt ir og sýna þeim nærgætni og mannúð i allri meðferð. Verndarstöðin í Tungu. Þar hefir verið skift um ráðsmann frá 1. maí að telja. Hefir verið mikil aðsókn að Tungu í vor, svo að, t. d. í maímánuði, hafa þar verið fleiri hestar á eldi, en nokkuru sinni fyrr. Er Reykvíkingum að skiljast það, smátt og smátt, að óvíða muni betur uni hesta þeirra fara, en í Tungu. — Núverandi ráðs- maður í Tungu er Sigurlás Nikulásson frá Lamb- haga á Rangárvöllum. Heimilisfang ritstjórans er á Grettisgötu 67, og sendist þangað alt það efni, sem birtast á í Dýraverndaranum. Munið að gjalddagi blaðsins er 1. júlí. Ritstjóri: Einar E. Sæmundsen. Útgefandi: Dýraverndunarfélag íslands. Félagsprentsmiðjan.

x

Dýraverndarinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.