Dýraverndarinn - 01.05.1937, Page 12
24
DÝRAVERNDARINN
tektirnar hefði oröiS helzt til daufar. Því aS aðeins
tveir menn heföi svaraÖ bréfunum. KvaÖ ræÖumað-
ur því sýnt, aÖ um útbreiÖslu blaðsins yrði aðallega
að treysta á Reykvíkinga og skoraöi fastlega á fund-
armenn og aöra félagsmenn, aö bregöast nú vel viö
og útvega blaðinu sem ílesta nýja kaupendur.
Þá bar Sæmundur jónsson fram eftiríarandi til-
lögur:
1. Aðalíundur Dýraverndunarfélags Islands árið
1937 felur stjórninni aö sjá uin, aö flutt veröi
í útvarpinu stutt ávörp, sem hvetji menn til
mannúðar og miskunnsemi við dýrin. Sérstaklega
verði þetta gert á vorin um varptímann, á haust-
in í sláturtíð, og á öðrum þeim tímum, sem dýr-
in er helzt hjálparþurfa.
2. Ennfremur felur fundurinn stjórninni að athuga
möguleika fyrir því, að íélagið fái útvarpskveld
til umráða, málefnum sínum til eflingar.
3. Fundurinn skorar á ritstjóra Dýraverndarans að
hafa alt af eitthvað við barnahæfi i hverju blaði,
og ef fært er, þá að gefa út aukabtöð fyrir börn,
enda komi samþykki stjórnarinnar til í hvert sinn.
Um tillögur þessar urðu nokkurar umræður, en
síðan vóru þær bornar upp og samþyktar með öll-
um greiddum atkvæðum.
Reglur
um sölu og afhendingu deyfilyfja
lil geldingar húsdýra.
t. gr. — Lyfsalar og læknar, sem hafa rétt til
lyfjasölu, mega afhenda geldingamönnum, sem skip-
aðir eru samkvæmt lögum nr. 123, 27. desember
1935, um geldingu húsdýra, nauðsynleg deyfingarlyf
til þessara aðgerða (svo sem klóralhydrat, klóróform,
eter og venjuleg staðdeyfingarlyf, önnur en kókain),
i hæfilegum skömtum, gegn venjulegum eiturbeiðn-
um og einnig að öðru leyti samkvæmt ákvæðum í
auglýsingu landlæknis til lyfsala og lækna 19. nóvem-
ber 1913, um sölu á eiturefnum til annarra afnota
en lækninga (sbr. Lögbirtingablaðið 1913, nr. 52).
Dýralæknar landsins gefa mönnum kost á að læra
geldingu og meöferö deyfingarlyfja.
2. g.r — Geldingamenn, sem hafa í vörzlum sín-
um deyfingarlyf þau, er um getur í 1. gr., skulu
geyma þau í lokaðri hirzlu, er enginn hafi aögang
að, nema þeir sjálfir, og hin eldfimu efni fjarri eldi,
DÝRAVERNDARINN
kemur að minsta kosti átta 'sinnum út á ári.
Dýraverndarinn cr údýrasta blaöiö, sem nú er
gefið út hér á landi. Árgangur hans kostar að eitts
3 krónur.
Ætlunarverk Dýraverndarans er að vinna að upp-
eldis- og menningarmáli allra þjóöa, en það er sú
siðbót, sem fram kemur i verndun málleysingja og
miskunnsemi við munaðarlausa.
Dýraverndarinn er oft prýddur myndum, og i
honum munu verða ritgerðir og sögur eftir ritfæra
menn og merka.
Dýraverndarinn vill vinna sér traust og hylli allra
góðra manna, ungra og gamalla. Og er eigi sízt
leitað liðsinnis kennara og ungmennafélaga um að
kynna lilaðið.
Þeir, sem útvega 5 kaupendur að Dýraverndar-
anum, eða fleiri, fá 20% í sölulaun.
Nýir kaupendur fá eldri árganga blaðsins, sem
til eru, fyrir kr. 1.50 árganginn.
Gjalddagi blaðsins er 1. júli ár hvert.
Afgreiðslu blaðsins og innheimtu annast Hjörlur
Hansson, Aðalstræti 18 (Uppsölum), 2. hæð. Póst-
hólf 566. Reykjavík.
Dýraverndunarfélag Islands.
þailnig, að sem tryggilegast sé girt fyrir, að hætta
hljótist af þeim. Þeir mega og ekki í neinu skyni
láta lyf þessi af hendi til annarra.
3. gr. — Brot gegn reglum þessum varða sektum,
50—100 kr., nema þyngri refsing liggi við sam-
kvæmt lögum.
Reglttr þessar, sem settar eru samkvæmt 4. gr.
laga nr. 123, 27. desember 1935, öðlast þegar gildi
og birtast til eftiriireytni öllum, sem hlut eiga að
rnáli.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 28. apr. 1937.
77ermann Jónasson.
Vigíús Einarsson.
HEIMILISFANG
ritstjórans er á Grettisgötu 67 og þangað sendist
efni það, sem birtast á í blaðinu.
Útgefandi: Dýraverndunarfélag íslands.
Ritstjóri: Einar E. Sæmundsen.
Félagsprentsmiöjan.