Alþýðumaðurinn - 14.05.1957, Side 1
XXVII. árg.
18. tbl.
Þriöj udagur 14. maí 1957.
Skip sjdlf tru btitu sMðskipin
— segja Gunnlaugur Þórðarson oq Bragi Sigurjóns-
son og bera fram ó alþingi tillögu um að ungir menn
fói sumarstörf ó fiskiskipum.
Alþingi ályktar aö skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því við
stjórnendur útgerðarfyrirtækja, sem fengið hafa ríkisábyrgð fyrir
lánum eða lán til togarakaupa, að skráðir verði á skipin sem háset-
ar a. m. k. 2—3 unglingar á aldrinum 14—16 ára, þrjá til fjóra sum-
armánuði ár hvert. Einhver þar til hæfur skipverji skal síðan bera
ábyrgð á því, að ungmennin fái tilsögn í algengri sjóvinnu, hrein-
læti og snyrtilegri umgengni um borð. Skulu útgerðarstjórnir senda
atvinnumálaráðuneytinu á hverju hausti skýrslu um ungmenni þau,
sem verið hafa hásetar á vegum útgerðarinnar.
Þannig hljóðar tillaga, sem
tveir alþingismenn Alþýðuflokks-
ins, dr. Gunnlaugur Þórðarson
og Bragi Sigurjónsson lögðu fyr-
ir alþingi nýlega.
í greinargerð tillögunnar seg-
ir:
Undanfarin ár hefir það háð
íslenzkri togaraútgerð nokkuð,
að hana skortir vana sjómenn,
eins og það er orðað. Og vissu-
lega má það vera þjoðinni á-
hyggjuefni, að ungir menn skuli
í seinni tíð vera næsta fráhverfir
sjómennsku. Raunar eiga útgerð-
armenn sjálfir nokkra sök á
þessu, því að það hefir verið
vandkvæðum bundið fyrir ungl-
inga að komast á sjá að sumrinu
nema fyrir kunningsskap.
1) Á aldrinum 14—16 ára
er hvað mest um vert, að hug-
ir ungmenna hneigist að sjó-
mennsku, og það verður einna
helzt gert með því að gefa
þeim kost á að kynnast henni
af eigin raun. Það er ósenni-
legt, að íslenzka þjóðin hafi
efni á því í nánustu framtíð,
að halda úti skólaskipi, og
raunar eru fiskiskipin sjálf
beztu skólaskip, þótt ekki sé
nema stuttan tíma í senn, á
gefa vísbendingu um störf þeirra
og hæfileika.
Þess skal getið, að ein mesta
siglingaþjóð heims hefir áratug-
um saman viðhaft svipaða að-
ferð við uppeldi og þjálfun sjó-
mannsefna sinna.
Árið 1953 lagði Gils Guð-
mundsson fyrir alþingi frumvarp
til laga um sjóv'innuskóla, og
telja flutningsmenn tillögu þess-
arar, að þar hafi verið borið upp
mál, sem fyllilega sé þess vert,
að íekið yrði til nánari athugun-
ar af hlutaðeigandi stjórnarvöld-
um.
Suðurlandaferðir
Páls Arasonar
Ferðaskrifstofa Páls Arasonar
efnir til tveggja utanlandsferða í
júnímánuði. í fyrri ferðina verð-
ur lagt af stað 5. júní og komið
heim 27. eða 28. s. m. Viðkomu-
staðir verða: England, Frakkland,
Þýzkaland, Sviss, Ítalía, Austur-
ríki og Danmörk. Síðari ferðin
er 16 daga ferð til Bretlands,
Frakklands, Ítalíu, Monaco og
Þýzkalands. 1 þá för verður lagt
15. júní og komið heim um æstu
mánaðamót.
Ferðalög þessi eru miðuð við
að þátttakendur geti fengið sem
beztá innsýn í líferni og háttu
þeirra staða, sem komið verður
til og kynnzt lífi þeirra af eigin
raun.
Ferðaskrifstofa Páls Arasonar
hefir umboð fyrir ferðaskrifstof-
ur í öðrum löndum og skipulegg-
ur hópferðir suður um lönd í
samráði við þær.
N. k. föstudag og laugardag
verður staddur að Hótel KEA
hér í bæ fulltrúi frá skrifstofunni
og mun hann veita fólki allar
upplýsingar um ferðalögin, bæði
utan lands og innan.
Frá Iðnskólanum á Akureyri
Iðnskólanum á Akureyri var
slitið síðastliðinn þriðjudag, 30.
apríl. Skólastjórinn Jón Sigur-
geirsson, flutti skólaslitaræðu,
lýsti prófum og afhenti braut-
skráðum iðnnemum prófskírteini.
Skóólinn starfaði frá 1. októ-
ber, og voru nemendur alls 82.
Brautskráðir voru 17 iðnnemar.
Fjölmennustu iðngreinar voru:
Húsasmiðir 12, rafvirkjar 12,
bifvélavirkjar 8 og húsgagna-
smiðir 7.
Er skólastjóri hafði afhent
þann hátt, sem hér er bent á. ...... r,
, * , *. jprofskirtemi, flutti hann iðnnem-
Það er kostnaðarutið fyrir hið i
opinbera, ef þessi leið yrði far-
in. Hins vegar er sanngjarnt, i
að útgerðarfyrirtœki, sem not-
ið hafa fyrirgreiðslu hins op-
inbera við kaup á fiskiskipi,
taki á sig nokkrar skyldur
varðandi uppeldi sjómanns- ^
efna, og það mun án efa verða
þjóðinni til hagsbóta, er frarn
líða stundir.
unum ávarp, þar sem hann ræddi
i ýmis vandamál samtímans.
Loks kvaddi sér hljóðs Guð-
mundur Magnússon úr hópi hinna
brautskráðu nemenda og flutti
1 skólanum þakkir og kveðjur
I bekkjarfélaga sinna. Beindi hann
I orðum sínum sérstaklega til Jóns
Sigurgeirssonar, skólastj., þakk-
aði honum öll kynni þeirra fé-
j laga, góða og réttláta skólastjórn
2) Skýrslugerð sú, sem gert er Qg marga drengilega hj álp og
ráð fyrir í tillögunni, tryggir, að! skilning. Afhenti Guðmundur
hið opinbera geti fylgzt með því
að útgerðarfyrirtækin láti elcki
undir höfuð leggjast að skrá um-
rædd ungmenni í skiprúm, og
j afnframt veitir hún vitneskj u um,
hverja raun þessi ráðstöfun gef-
ur, t. d. hversu margir ungling-
anna haldi áfram sjómennsku.
Þá geta unglingarnir, þegar þeir
hyggja á frekara nám í sjó-
mennsku, lagt fram skilríki, sem
skólastjóra málverk að gjöf frá
nemendum 4. bekkjar. Jón Sigur-
geirsson þakkaði gjöfina og hlýj-
ar kveðjur og góðar óskir og
sagði síðan skólanum slitið.
Brautskráðir iðnnemar 1957:
1. Árni Þ. Sigurðsson, húsg.-
smiður, I. eink. 8.31.
2. Bjarni Gestsson, vélvirki, II.
eink. 7.10.
3. Bjarni Gíslason, rafvirki, I.
eink. 7.78.
4. Davíð Zóphoníasson, rafvirki,
II. eink. 7.18.
5. Guðmundur Magnússon, bif-
reiðasm., I. ág. eink. 9.10.
6. Hallgrímur Baldvinsson, ket-
il- og plötusm., II. eink. 6.55.
7. Hallgrímur Skaftason, skipa-
smiður, I. eink. 7.50.
8. Ingvi Árnason, ketil- og
plötusm., II. eink. 7.05.
9. Jóhann Smári Hermannsson,
rafvirki, I. eink. 8.29.
10. Jón Gíslason, skipasm. II.
eink. 6.02.
11. Kristinn J. Steinsson, húsa-
sm., I. eink. 8.01.
12. Niels Hansen, húsgagnasm.,
I. eink. 7.84.
13. Oskar Ingimarsson, bifvéla-
virki, III. eink. 5.85.
14. Reynir Jónsson, rakari, I.
eink. 8.56.
15. Sigurjón Bragason, ketil- og
plötusm., I. eink. 8.08.
16. Tryggvi Pálsson, rafvirki, II.
eink. 6.28.
17. Þórður Pálsson, húsasm., I.
eink. 8.84.
Óreglulegir nemendur, sem
hlotið höfðu burtfararpróf áður
í annarri iðn, hlutu þessar eink-
unnir í iðnteikningu:
Kristinn Árnason, ketil- og
plötusm., 8.50.
Reynir Kristjánsson, húsasm.,
9.00.
^íýjar ■nillilandafing'vélar
Flugfélag íslands hefir nú eign-
azt tvær nýjar flugvélar af Vis-
count-gerð. Komu þær til Reykja-
víkur 2. maí s.I. Flugvélar þessar
marka tímamót í sögu flugmál-
anna hér á landi sakir hrað-
fleygni þeirra. Þannig er flug-
tími þeirra aðeins 3 klst. til Glas-
gow, 4 klst. til London og 4)4
til Kaupmannahafnar, sem áður
var um 6% klst. Flugþolið er
3400 km. Þá er mikils um vert,
að loftþrýstiútbúnaður er í vélun-
um, svo að hægt er að fljúga
mjög hátt. Eykur það öryggi
flugsins, og veldur engum óþæg-
indurn. Titringur og vélagnýr er
ekki eins mikill og í hinum eldri
vélum. Þær rúma 48 farþega. —
Vélar þessar hafa hlotið nöfnin
Hrímfaxi og Gullfaxi.
Þegar vélarnar komu til
Reykjavíkur var þeim fagnað
með heilmiklu tilstandi eins og
Ahureyri sendi fulltriífl
Eins og kunnugt er, þá er Ak-
ureyri í hinu norræna vinabæja
sambandi. Vinabæir Akureyrar
eru: Álesund í Noregi, Randers í
Danmörku, Lahti í Finnlandi og
Vesterás í Svíþjóð.
Fyrir nokkru barst bæjarstjórn
Akureyrar bréf frá borgarstjóran-
um í Randers, þar sem frá er
skýrt, að haldinn verði fundur
þessara vinabæja í Randers 31.
maí og 1.—2. júní n. k. og er Ak-
ureyri boðið að senda fulltrúa
þangað. Samþykkti bæjarstjórn
að taka boðinu og kaus bæjarráð
bæjarstjóra Stein Steinsen til
ferðarinnar.
Það er ánægjulegt að Akureyr-
arbær skuli hafa séð sér fært að
taka þátt í þessu samstarfi. Vina-
bæjahreyfing Norðurlanda er
merkileg starfsemi, sem vinnur
að auknum skilningi og kynnum
milli hinna norrænu frændþjóða.
-» 4 <—
Byiting I hönhunum
Mánudagsblaðið birti „rosa-
frétt“ um fyrirhugaðar breytingar
á stjórn og fyrirkomulagi bank-
anna. Stofnaður verði nýr seðla-
banki undir stjórn Vilhjálms Þór.
Einar Olgeirsson verði banka-
stjóri í Landsbankanum og Út-
vegsbankanum breytt í eins kon-
ar samvinnubanka og þar skipað-
ir nýir bankastjórar. Ökunnugt
er oss hér nyrðra hversu mikið
sé satt í öllu þessu, en hitt er víst,
að fagnaðarefni mun það þorra
manna, ef ríkisstjórninni tækist
að losa bankana undan því ein-
ræði Thorsaranna, sem nú ríkir
þar. Mætti því segja, að sú stjórn
hefði verið að nokkru nýt, þótt
ekkert hefði hún annað unnið.
vera bar, þar sem um svo mikinn
atburð var að ræða.
Fyrra sunnudag kom svo
Hrímfaxi hingað til Akureyrar.
Enginn viðbúnaður var, og eng-
um tilkynnt um komuna. Enda
ekki um nokkur afbrigði að ræða
frá venjulegri flugvélarlendingu,
nema fjöldi fólks kom fyrir for-
vitni sakir. Er það svo, að áhugi
manna hér fyrir flugmálum er al-
mennur, og hefði farið vel á að
einhver viðhöfn hefði verið, er
svo merkur atburður gerðist í
samgöngumálum. Ekki sízt þegar
Flugfélagið bauð ýmsum betri
borgurum Reykjavíkur í ferðina.
Slíkt eru að vísu smámunir.
Aðalatriðið er að fagna nýjum
áfanga í flugmálunum, og vona
hins bézta um góðan árangur.
Óskar blaðið Flugfélaginu til
hamingju með hinar nýju vélar.
Brogi Sigurjðnsson, rit-
stjóri teliiir sœti
d
Bragi Sigurjónsson, ritstjóri á
Akureyri, annar varaþingmaður
Alþýðuflokksins, tók á fimmtu-
dag sæti á alþingi fyrir Pétur Pét-
ursson, sem farinn er utan til
nokkurra vikna dvalar í Banda-
ríkjunum. Hann var í fram-
boð fyrir Alþýðuflokkinn í
sumar í Austur-Húnavatnssýslu
og hefir verið í framboði fyrir
flokkinn oft áður, en þetta er í
fyrsta skipti að hann kemur inn
á alþingi.
Á fundi í sameinuðu þingi
gerði Áki Jakobsson, framsögu-
maður kjörbréfanefndár, grein
fyrir áliti nefndarinnar og kom í
ljós, að Sjálfstæðismenn ætluðu
sér enn að sitja hjá eins og áður
við afgreiðslu kjörbréfa uppbót-
arþingmanna Alþýðuflokksins og
varamanna þeirra og sátu Sjálf-
stæðismenn því enn hjá við at-
kvæðagreiðsluna, en kjörbréf
Braga var samþykkt með 27 sam-
hljóða atkvæðum.
___*____