Alþýðumaðurinn - 20.12.1960, Side 1
XXX. árg.
Þriðjudagur 20. desember 1960
42. tbl.
(jtibú Búiwiarfc«nlwm g Ahoreyri
30
SÍÐASTLIÐINN sunnudag, 18.
desember, voru 30 ár liðin frá
stofnun útibús Búnaðarbanka ís-
lands á Akureyri, en það var opn-
að í húsakynnum Kaupfélags Ey-
firðinga 18. des. 1930.
í upphafi lagði aðalbankinn
útibúinu til 300 þús. kr. stofnfé,
og 1935 var það hækkað um 200
þús. kr., en 1948 var útibúinu
gert að greiða allt stofnféð upp
til aðalbankans og hefir einskis
stofnfjár notið síðan.
Til fróðleiks má geta þessa um
útlán útibúsins:
31. des. 1931 voru þau 266.-
383.30 kr. — 31. des. 1945 voru
þau 4.499.858.77 kr. — 30. nóv.
1960 voru þau 24.885.592.62 kr.
Eins og fyrr getur, var útibú
Búnaðarbankans hér fyrst til
húsa í húsakynnum Kaupfélags
Eyfirðinga, en árið 1939 keypti
útibúið Strandgötu 5 og hefir ver-
ið þar með skrifstofur sínar og af-
greiðslu síðan.
Fyrsti útibússtjóri Búnaðar-
bankans hér var Bernharð Stef-
ánsson, alþingismaður, og veitti
hann því forstöðu, unz núverandi
útibússtjóri, Steingrímur Bern-
harðsson, tók við 15. ágúst 1959.
Gjaldkeri útibúsins var um fjöl-
mörg ár Elías Tómasson, i og
gegndi hann raunar útibússtjóra-
starfi langtímum saman, þegar
Bernharð sat þing. Núverandi
gjaldkeri er Jóhann Helgason.
Utibú Búnaðarbankans hefir
gegnt miklu og nauðsynlegu hlut-
verki hér í héraði og nágranna-
sveitum og hefir sýnt og sannað,
að stofnun þess var sjálfsögð.
Það hefir notið vinsælda og
trausts undir stjórn og forsjá úti-
bússtjóranna, og er þá að sjálf-
sögðu hlutur Bernharðs Stefáns-
sonar stærstur, þar sem hann
studdi stofnunina fyrstu sporin og
kom henni á fullorðins ár, ef svo
mætti taka til orða.
Það eru gömul og ný sann-
indi, að fjármagn er afl þess, sem
gera skal. Því er það mikilsvert
ára
hverju byggðarlagi og hverjum
landsfjórðungi að eiga innan
sinna vébanda hæfilega margar
traustar lánastofnanir. Ein þeirra,
hvað okkur Norðlendinga snertir,
er útibú Búnaðarbankans.
Því munu allir, er þennan sann-
leik skilja, senda útibúinu þær af-
mælisóskir, að það megi enn vaxa
og vel dafna um ókomin ár.
FRAMSÓKN TRYGGÐI
EINARI SÆTI
í NORÐURLANDARÁÐ
í síðastliðinni viku var kjörið
á Alþingi í Norðurlandaráð, 2 í
efri deild og 3 í neðri deild, þ. e.
5 menn alls. Það bar til tíðinda
við kosningu þessa, að Framsókn-
armenn tryggðu kjör Einars 01-
geirssonar í ráðið með því að
stilla einum færra í neðri deild á
lista sinn en þeir gátu kjörið þing-
liðs síns vegna.
Og svo segja menn, að Fram-
sókn sé ekki holl vinum sínum!
Verður einn af togurnm G. A.
gerðnr út á línu í reynslnskyni ?
Verða vextir lækkaðir
úr áramótnm?
Þegar vextir voru hækkaðir
snemma á þessu ári, tók ríkis-
stjórnin það skýrt fram, að það
væri bráðabirgðaráðstöfun til að
minnka spennuna í óhóflegri fjár-
festingu og örva sparifjármyndun,
en lækkun vaxta mundi koma
strax til álita, þegar nokkurs jafn-
vægis tæki að gæta í peningamál-
um.
Nú hefir heyrzt, að ríkisstjórn-
in hafi undanfarna mánuði haft
vaxtaspursmálið til ítarlegrar at-
hugunar, og vel kunni svo að fara,
að vextir verði lækkaðir um nk.
áramót eða frá og með 1. marz nk.,
en helzt var gert ráð fyrir í upp-
hafi, að vaxtahækkunin stæði
einmitt í hámarki eitt ár til eitt og
hálft og færi svo að þokast niður,
svo að vel kann þessi fregn að
vera sönn, þótt Alþýðumaðurinn
hafi ekki staðfestingu fyrir því.
Eins og að venju lætur, talar
stjórnarandstaðan svo, sem vaxta-
lækkunin verði sér að þakka, ef af
henni verður, og treystir á, að al-
menningur hafi gleymt því, að
ríkisstjórnin lýsti því yfir í upp-
hafi, að vextir mundu lækkaðir
nokkuð, strax og fært þætti.
Krossanesverhsmiðjon
hefir sent á erlendan markað
meginhluta mjölframleiðslu sinn-
ar á þessu ári. Voru allar mjöl-
geymslur verksmiðjunnar orðnar
fullar og stóð á flutningum, en nú
hefir sem sagt rætzt svo úr, að til-
tölulega lítið er eftir ófarið af
mjöli, og mun það tekið til út-
flutnings þegar í næsta mánuði.
Talsverðar skipakomur hafa
verið hingað til bæjarins undan-
farið og gengið erfiðlega að fá
nógan vinnukraft til upp- og út-
skipunar, m. a. varð að leita eftir
nemendum í G. A. og mönnum ut-
an úr sveit til að vinna við mjöl-
útskipun frá Krossanesverk-
smiðju á dögunum.
TUNNUVERKSMIÐJAN
TEKUR TIL STARFA
Þegar eftir áramótin mun
tunnuverksmiðjan hér taka til
starfa og er tunnuefni væntanlegt
milli jóla og nýjárs.
Ætlunin er að geyma allar
tunnur undir þaki í vetur og verða
þær því jafnóðum fluttar í
geymslu, en ekki staflað úti, en á
því hafa tunnurnar þótt spillast
stórlega undanfarið.
Tunnuverksmiðjan veitir um
40 manns atvinnu, meðan hún
starfar, og skiptir það því miklu
fyrir atvinnulíf bæjarins, að hún
sé í gangi vetrarmánuðina, með-
an atvinna er þrengst á öðrum
sviðum.
Innbrot í íjárhús
Nokkuð hefir borið á því und-
anfarið, að óþurftarmenn hafi
gert það að leik sínum að brjót-
ast inn í fjárhús um nætur hér
ofan til í bæjarlandinu, hleypa
hrútum til ánna og skilja síðan
við húsin opin, svo að féð er
komið út í veður og vind, þegar
eigandi vitjar þess um morgun. 1
Hér er um slæman grikk að
ræða, og ekki innbrotsmönnum
að þakka, þótt ekki muni hafa
týnzt nein kind enn að fullu frá
húsi, en hins vegar bakað eigend-
um talsverða leit.
Nokkrir fjáreigendur munu
Horðanhríð
EINHVERN TÍMA hefði það
ekki þótt frétt, að norðanhríð
gerði í desembermánuði, en slík
einmunatíð hefir verið í vetur allt
fram til þessa, að hríðarveður er
viðburður.
Síðan hríðarákast kom undir
nóvemberlokin, hefir varla kom-
ið snjókorn úr lofti, og sl. viku
mátti heita rakin sunnanátt með
vægu frosti eða frostleysu, unz á
laugardag að brá til norðanáttar
og gerði hríðarveður um nær allt
land.
Gekk veðrið vestan yfir landið
og mun hafa verið stórhríðarveð-
ur með slögum á fjallvegum um
allt Norðurland á laugardag og
sunnudag, en fast að stórhríð í
byggðum norðaustanlands, enda
veðurhæð þar meiri.
Ekki fylgdi veðri þessu mikil
fannkoma, en þó mun færð hafa
orðið þung á ýmsum vegum, þar
sem ekki reif, og tafsamt varð
ýmsum, sem á ferð voru í bifreið-
um, meðan veðrið stóð.
Bezta veður var komið í gær.
in leitað eftir nokkurri fjárveit-
þegar hafa búið svo um hurðir
húsa sinna, að nokkuð óvænt geti
þar mætt þeim, sem við þær rjála
að óþörfu og í leyfisleysi, og væri
að vísu aðeins makleg málagjöld,
sem hrekk hafa í huga.
í ALLT HAUST og vetur fram
til þessa hefir verið góður afli
fyrir Norðurlandi á línu, og hafa
sumir bátanna haft prýðisgóða
vertíð.
Ilins vegar hefir verið hin mesta
ördeyða hjá togurunum, og er nú
svo komið, ef ekki rættist fljótt
úr, að vonlaust má með öllu telja
að halda slíkum tapveiðum áfram.
Stjórn Utgerðarfélags Akureyr
inga hefir haft í athugun undan-
farið að láta einn togara félagsins
hefja veiðar með línu í reynslu
skyni, en þar sem hér er um nýj
ung að ræða, sem alls ókunnugt
er um fyrir fram, hvernig muni
gefast, hefir framkvæmdarstjórn-
in leitað eftir nokkurri fjáráveit-
ingu úr fiskimálasj óði til þessara
tilrauna, en einnig þarf að semja
sérstaklega um kj ör háseta við
veiðar þessar, þar eð engin á-
kvæði í kjarasamningum sjó-
manna munu beinlínis fjalla um
kjör á línuveiðum á togurum.
Allt er þetta nú í athugun, en
segja má, að hér sé stefnt inn á
BREYTING A UT-
BURÐI
Sú breyting verður á útburði
jólapósts, að allur póstur, sem
auðkenndur er með árituninni
„Jól“, verður borinn til viðtak-
enda á Þorláksmessu og aðfanga-
dag, en ekki jafnóðum og hann
berst pósthúsinu ,eins og verið
hefur tvö síðustu ár. Það eru vin-
samleg tilmæli til bæjarbúa, að
þeir skili pósti sínum sem fyrst,
til þess að auðvelda vinnu, og alls
ekki síðar en fyrir kl. 24 mið-
vikudaginn 21. desember.
Búast má við, að póstsending-
ar, er síðar koma í póst, verði
eigi bornar út fyrr en eftir jól.
Athugið:
1. Skrifið greinilega utan á bréf-
in og auðkennið þau með á-
letruninni Jól.
Látið eigi peninga í almenn
bréf.
J ólakort með áprentuðum
heillaóskum og aðeins undir-
skrift sendanda má senda í
opnu umslagi sem prentað
mál, en handrituð jólakort má
ekki setja í umslög nema sem
bréf.
Frímerkið öll bréf í hægra
horni.
athyglisverða braut í veiðum, og
þá auðvitað alveg sérstaklega, ef
hún skyldi gefa góða raun. Betri-
fiskur ætti óumdeilanlega að fást-
á línu en í tog og þá um leið betri
vara vonandi úr hráefninu.
ALÞINGI FRESTAÐ
Alþingi var frestað i gær, en
mun væntanlega koma saman um
miðjan janúar.
Enda þótt fjárlög hafi verið af-
greidd fyrir 1961, bíða allmörg
þýðingarmikil mál afgreiðslu.
Má þar nefna endurskoðun
bankamála, skattamála og vænt-
anlega lögum um verkamannabú-
staði.
ÍBÚAR AKUREYRAR
1. des. sl. 8.785
Samkvæmt bráðabirgðaathug-
un manntalsins hér 1. des. síðastl.
reyndust íbúar Akureyrar (þeir
sem lögheimili áttu í lögsagnar-
umdæmi Akureyrar) 8785 tals-
ins.
Á manntalsskrár komu hér alls
liðlega 9.500 manns, en í þéirri
tölu eru, auk fastra íbúa Akureyr-
ar, skólanemendur í vetrardvöl
hér og aðrir staddir hér, en heim-
ilisfastir annars staðar.
2.
3.
Um 29 þiis. mál
síldar í Krossanes
Síðastliðið laugardagskvöld
munu hafa verið komin um 29*
þús. mál síldar í Krossanesverk-. ’
smiðju, síðan síldveiðin hófst hér,
á Pollinum og innanverðum Eyja-
firði í vetrarbyrjun. Áflahæst
síldveiðiskipanna er Gylfi. Hefir
aflað um 8 þúsund mál.
Síldveiðar þessar hafa veitt all-
mörgum hina beztu atvinnu ogy
prýðistekjur í aðra hönd, og
Krossanesverksmiðja, sem annars
mundi lítið sem ekki hafa starfað
umræddan tíma vegna siglinga
togaranna með aflann út, hefir
gengið dag hvern og veitt um 20
manns stöðuga atvinnu.
4.
Gleðileg jól!
(Frá Póststofunni.)
INNBROT
j PÓSTHÚSIÐ
Aðfaranótt sl. föstudags var
brotizt inn í Pósthúsið hér á Ak-
ureyri og hafði þjófurinn á brott
með sér 500 kr., en það voru einu
peningarnir, sem þar var að hafa.
Spjöll voru engin framin.
Heima er bezt,
jólaheftið, flytur m. a. þetta efni:
Líður að jólum eftir ritstjórann,
Steindór Steindórsson, Jólin vest-:
an hafs eftir Friðrik A. Friðriks-;
son, Tuttugu ára túristaþætti eftir
Rósberg G. Snædal, Um Fljóts-'
hlíð og Fljótshlíðinga eftir Þor-
stein Jósefsson, Lífið-í loftinu eft-
ir Steindór Steindórsson, þá eru ■
framhaldssögurnar eftir Ingi-
björgu Sigurðardóttur og Guð-
rúnu frá Lundi, þátturinn Hvað
ungur nemur, Bókahillan og
Myndasagan.
Margar myndir prýða að venju
ritið.