Alþýðumaðurinn - 06.11.1962, Side 2
2
ALÞÝÐUMAÐURINN
Þriðjudagur 6. nóvember 1962
Ekkert lé ónotað
ALÞÝÐUMAÐURINN
Ritstjóri:
Bragi Sigurjóntion,
Bjarkarstíg 7. Sími 1604.
Útgefandi:
AlþýSuflokksfélag Akureyrar
Verð kr. 50.00 á íri.
Lausasala kr. 2.00 blaðið.
Prentimiðja Björnt Jónttonar hf.
Mindu þejr
m góðir
Ef einhver hluti félagsmanna í
Kaupfélagi Þingeyinga og Kaup-
félagi Eyfirðinga tækju upp á
þeim vinnubrögðum á aðalfund-
um félaganna ár eftir ár að deila
á félagsstjórnina fyrir allt í senn:
of háa álagningu á vöruna, of
litlar framkvæmdir, of háa vexti á
út- og innlánum, „frystingu“ á
innlánsdeildarfé og fé í öðrum
sjóðum félaganna og tregðu á því
að lána bændum og öðrum félags-
mönnum til ýmissa framkvæmda,
svo sem bygginga og vélakaupa,
eins og lánbeiðendur teldu sig
þurf a, mundu kaupfélagsstj órarnir,
Finnur Kristjánsson og Jakob
Frímannsson, telja sig hafa sjálf-
sögð svör á höndum: Verði álagn-
ing minnkuð, minnka tekjur kaup-
félaganna.
Minnki tekjurnar, er minna fé
afgangs til framkvæmda. Lækki
þeir innlánsvexti, minnka innlagn-
ir og minna fé fæst í reksturinn
eða til útlána.
Lækki þeir útlánsvexti, og auki
lánastarfsemi, mundi hvort
tveggja gerast, að þeir réðu ekki
við eftirspurn og hefðu þó gengið
á nauðsynlega reksturssjóði sína,
svo að þeir yrðu að leita æ meir á
náðir banka um rekstursfé, unz
einn góðan veðurdag yrði þar al-
gerlega skrúfað fyrir vegna hotn-
lausra skulda.
Eitthvað á þessa leið mundu
Finnur og Jakob svara gagnrýn-
inni og jafnvel ekki stilla sig um
að sveigja að gegnrýnendum um
fávísi í fjármálum.
Og langflestum kaupfélags-
mönnum mundi þykja svör Finns
og Jakobs skynsamleg og rök
þeirra augljós. Ekki fyrir að
synja, að gallharðir Framsóknar-
menn bættu við í hugskoti sínu:
Anzi er nú framkvæmdarstjórinn
okkar skynsamur maður og
greinaglöggur! —
Nú hefur það hins vegar gerzt
á alþingi, á 4. ár, að stór hópur
þingmanna, stjórnarandstaðan,
hefur haldið uppi nákvæmlega
sömu gagnrýni á fj ármálastefnu
ríkisstjórnarinnar og hér var að
framan rakin sem hugsanleg gagn-
rýni á fj ármálastj órn K.Þ. og
K.E.A.
Það er mikið talað um „bind-
ingu“ sparifj ár, sem líka er kölluð
„frysting“. Nota Framsóknarmenn
það mjög 1 áróðri, að hundruð
milljóna liggi „ónotaðar“ í
geymsluhólfum Seðlabankans, og
stafi það af samdráttarstefnu og
illvilja ríkisstjórnarinnar og
bankastjóranna, að þetta fé er
ekki lánað út innanlands.
Gylfi Þ. Gíslason fletti rækilega
ofan af þessum blekkingum, er
hann malaði Eystein í einvíginu
í neðri deild í fyrradag. Þá upp-
lýsti Gylfi, að engir peningar
liggja ónotaðir hjá Seðlabankan-
um, heldur hefur bankinn látið
alla sína peninga annað hvort í
afurðalán eða í gj aldeyrisinneign
þjóðarinnar erlendis.
Ef einstaklingur ætlar að leggja
fyrir 800 krónur til öryggis fyrir
fjölskyldu sína, verður hann að
taka þá peninga af kaupi sínu eða
öðrum tekjum. Hann getur ekki
bæði lagt krónurnar fyrir og eytt
þeim. Eins er með ríkisbúskapinn.
Fremstir í þessum gagnrýn-
endahópi standa menn eins og Ey-
steinn Jónsson, varaformaður
S.Í.S., Karl Kristjánsson, formað-
ur stjórnar K.Þ., og Skúli Guð-
mundsson, sem mikið hefur verið
við kaupfélagsmál riðinn. Þeir
heimta lækkun á tekjum ríkisins
(tollalækkanir), en hækkun niður-
greiðslna, uppbóta og fjárfram-
laga til ýmissa framkvæmda.
Þeir heimta lækkun innláns-
vaxta, sem mundu minnka innlán,
en krefjast jafnframt meiri útlána.
Þeir styðja allar kröfur um
hækkað kaup, hverjir, sem þær
gera, en jafnframt halda þeir
fram, að allar atvinnugreinar
landsmanna séu að sligast undan
rekstursvandræðum, og verður þá
ýmsum spurn: Hvar á að taka
auknar kaupgreiðslur?
Ríkisstj órnin svarar gagnrýni
stj órnarandstöðunnar með líkum
rökum og Finnur og Jakob mundu
svara líkri gagnrýni á reksturs-
háttu sína, en nú bregður svo við,
að það, sem þeim þykir sjálfsagt,
að þeir geri í kaupfélagsrekstri
sínum, og fylgismenn þeirra dást
að þeim fyrir, það finnst þeim —
og a. m. k. einsýnustu fylgjendum
þeirra — forkastanlegt, að ríkis-
stjórnin geri.
Nú heitir það ekki:
Anzi er kaupfélagsstjórinn okk-
ar skynsamur maður og greina-
glöggur —
heldur:
Voðalegir öfuguggar í fjármál-
um sitja í ríkisstjórn.
Gaman væri hins vegar að heyra
Eystein, Karl og Skúla fella dóm
um það á aðalfundi S.Í.S. eða
einhvers kaupfélags, hve mikið
mannkaup væri í þeim, er gagn-
rýndu S.Í.S. eða kaupfélög með
líkum hætti og þeir gagnrýna nú
ríkisstjórnina og með sömu rök-
um. Auðvitað mættu þeir ekki
skynja hliðstæðuna, og mun þá
heldur enginn efast um niðurstöðu
þeirra.
Ef íslenzka þjóðin vill eiga 80
milljóna gjaldeyrissjóð, verður
hún að taka hann af tekjum sín-
um. Það er þetta, sem hinar
bundnu inneignir í Seðlabankan-
um gera.
Gylfi upplýsti, að í stórum
dráttum væru ástæður Seðlabank-
ans sem hér segir:
Bankinn hefur þetta fé:
Seðlavelta............. 600 millj.
Eigið fé .............. 200 millj.
Mótvirðisfé ........... 350 millj.
Sparifé ............... 500 millj.
Samtals 1650 millj.
Bankinn notar féð svona:
Lán landbúnaðar .... 258 millj.
Lán sjávarútvegs .... 563 millj.
Gjaldeyrisforði .... 816 millj.
Samtals 1637 millj.
Af þessu verður augljóst, að
eigi að taka bundna spariféð af
bankanum, verður annað hvort að
minnka útlán til framleiðslunnar
eða eyða gjaldeyrissjóðnum. Gylfi
Kvöldvökuútgáfan á Akureyri
(Kristján Jónsson, bæjarfógeta-
fulltrúi) gefur á þessu hausti út
þrjár bækur. Er ein þeirra, Lára
miðill, þegar komin á markaðinn
og hefur verið getið hér í blaðinu,
en um hinar tvær hefur útgáfan
sent blaðinu eftirfarandi upplýs-
ingar:
I. íslenzkar ijósmæður.
1. bindi safnritsins íslenzkar
ljósmæður. Sr. Sveinn Víkingur
hefur verið ráðinn ritstjóri verks-
ins. í þessu bindi birtast frásögu-
þættir og æviágrip 26 lj ós-mæðra,
hvaðanæva að af landinu, sem
lærðu fyrir 1912. Suma þættina
skrifa ljósmæðurnar sjálfar, en
aðrir eru skrifaðir af kunnugum
og færum mönnum.
íslenzkar ljósmæður eiga langa
og merka sögu, sem er nátengd
ævikjörum og lifnaðarháttum ís-
lenzku þjóðarinnar. í bókinni seg-
ir frá margs konar hetjudáðum
ljósmæðranna sjálfra, ævikjörum
íslenzkrar alþýðu og viðburðarík-
um ferðalögum á sjó og landi.
Árið 1946 hóf sr. Björn 0.
Björnsson 'söfnun efniviðar í
þetta verk á vegum Bókaútgáfunn-
ar Norðra og vann þar mikið og
gott starf. Á síðastl. vetri yfirtók
Kvöldvökuútgáfan safn sr. Björns
og réð sr. Svein Víking, eins og
áður segir, til að vinna úr því og
halda efnissöfnun áfram.
Kvöldvökuútgáfan er þess full-
viss, að með útgáfu þessa 1. bind-
is sé hafið gott og merkt verk.
Saga ljósmæðranna í landinu er
lærdómsríkt dæmi um fórnarlund
íslenzkra kvenna, mannkærleik
þeirra og líknarstörf, sem jafnan
hafa verið unnin, án þess að séð
væri til endurgjalds.
krafði Eystein um svar, hvort
hann vildi láta gera. Vafðist það
fyrir Eysteini, sem von var.
Ef Seðlabankinn dregur úr lán-
um til framleiðslunnar kemur það
við kjarna efnahagslífsins. Ef hins
vegar bankinn eyðir gjaldeyris-
forðanum, lendum við aftur í hin-
um gömlu gjaldeyrisvandræðum,
verðum fljótlega skuldugir erlend-
is, verðum að taka upp víðtæk
innflutningshöft og horfast í augu
við vöruskort. Er það þetta, sem
Eysteinn vill? Er það þetta, sem
þjóðin vill?
Eysteinn Jónsson stóð sjálfur
að setningu laga um Seðlabanka,
þar sem binding sparifjár var
heimiluð. En nú er hann í and-
stöðu og þekkist ekki fyrir sama
mann, •— berst á móti binding-
unni. Framsókn er að reyna að
veifa framan í landsmenn 500
milljónum, sem hún muni lána út,
ef hún fær ráðið. En þessar 500
milljónir eru ekki lausar. Ef þær
væru teknar og lánaðar út, mundi
fylgja gj aldeyrisvandræði, er-
lendar skuldir, innflutningshöft
og vandræði.
Því heitir útgáfan á alla, sem
eiga í fórum sínum þætti um látn-
ar eða lifandi lj ósmæður, að koma
þeim til sr. Sveins Víkings eða
Kvöldvökuútgáfunnar og stuðla
að því að æviágrip núlifandi ljós-
mæðra verði skráð.
Kvöldvökuútgáfan treystir því,
að þessari bók verði vel tekið og
með því tryggt framhald verksins.
II. Því gleymi ég aldrei.
Þetta eru frásöguþættir eftir 21
höfund um ógleymanleg atvik úr
lífi þeirra.
í bókinni eru fimm þættir úr
verðlaunasamkeppni útvarpsins,
verðlaunaþættir Ragnheiðar Jóns-
dóttur, Kristjáns Jónssonar og
Þórunnar Elfu Magnúsdóttur, og
auk þeirra þættir Jochums Egg-
ertssonar og Árna Óla. Hins veg-
Stjórn Eimskipafélagsins hefur
ákveðið að leita tilboða erlendis
frá í smíði tveggja eða þriggja
vöruflutningaskipa, sem fermi
sem næst 900 tonn af vörum og
hafi um 70 þúsund teningsfeta
lestarrými. Slík skip eru um 1000
tonn D.W.
Eimskipafélagið hefur allt frá
upphafi látið smíða skip sín af
traustustu gerð með þeim full-
koinnasta úthúnaði, sem hverju
sinni hefur verið fáanlegur og
verður ekki vikið frá þeirri stefnu.
Með því að smíða slík skip tel-
ur Eimskipafélagið möguleika á
að bæta verulega þjónustu sína
við hafnir úti á landi, þannig að
Stekkm nokkrum kros!
í Framsóknarblaðinu Einherja
lesum vér 27. okt. s.l. svofellda
„LEIÐRÉTTING
í grein, sem birtist í Einherja
29. sept. s.l., um Svein Guðmunds-
son, kaupfél.stj. á Sauðárkróki í
tilefni af 50 ára afmæli hans 28.
apríl s.l., segir, að afmælisbarn-
inu hafi verið íærð gjöf ásamt
skjali, sem undirritað hafi ver-
ið „af stjórnarnefndarmönnum,
gömlum og nýjum . . . .“
Þar sem ég undirritaður hlýt að
teljast meðal nýrra stjórnarnefnd-
armanna Kaupfélags Skagfirð-
inga, vil ég, til þess að fyrirbyggja
misskilning, hér með lýsa því, að
að ég hefi eigi undirritað skjal
það, er hér um ræðir.
Með þökk fyrir birtinguna.
Sauðárkróki, 6. okt. 1962.
Jóh. Salberg Guðmundsson.“
Þeim til skýringar, sem ekki
þekkja Salberg, er hann sjálft yfir-
vald Skagfirðinga og einn af for-
ystumönnum Framsóknar í hér-
aði, og verður þá leiðréttingin
neyðarlegt umhugsunarefni Ein-
herjum Framsóknar.
ar eru allir hinir þættirnir nýir og
áður óbirtir, og er þar þá fyrst að
nefna þátt eftir þjóðskáldið Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi. Aðrir
höfundar eru: Árelíus Níelsson,
Einar Ásmundsson, Einar Krist-
jánsson, Eiríkur Sigurðsson,
Hólmgeir Þorsteinsson, Ingólfur
Kristjánsson, Kristján frá Djúpa-
læk, Magnea Magnúsdóttir, Páll
Kolka, Rósberg Snædal, Sigurður
Einarsson, Stefán E. Sigurðsson,
Stefán á Svalbarði, Sveinn Vík-
ingur og Þorsteinn Stefánsson.
Margir þessara þátta eru sér-
stæðir og stórvel skrifaðir, og
þykjumst við mega vænta, að
marga fýsi að kynna sér þá, enda
eru slíkir menningarþættir yfir-
leitt eftirsótt lesefni. Verði þessari
bók svo vel tekið sem við væntum,
hefur útgáfan í hyggju að halda
áfram á sömu braut á næstunni.
eitt af þessum skipum sigli í áætl-
unarsiglingum umhverfis landið
og hin tvö skipanna, milli íslands
og Evrópuhafna, með það fyrir
augum fyrst og fremst, að þau
flytji vörur beint til hafna úti á
landi án umhleðslu í Reykjavík.
Með þessu móti fá vörueigendur
vörurnar fyrr í hendur en ella, og
við það sparast einnig mikill um-
hleðslukostnaður.
Hugmyndin er að hraða nú sem
mest nauðsynlegum undirbúningi
að fyrrgreindum framkvæmdum
og verður fyrst unnið að öflun
tilboða í nýsmíðarnar, útvegun
lána og nauðsynlegra byggingar-
leyfa.
Alþ.bl. 20/10 ’62.
B«ehur iró Kvöldvöhuúlgdfunuí
EIMSKIP HYGGST SMÍÐA ÞRJÚ
V ÖRUFLUTNIN G ASKIP