Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 06.11.1962, Qupperneq 4

Alþýðumaðurinn - 06.11.1962, Qupperneq 4
VEITIR UM 1300 MANNS ATVINNU í blaðinu íslenzkur iðnaður, ág.—sept. hefti, er m. a. farið svo- felldum orðum um iðnsýninguna hér í bæ á liðnu sumri: „Hinn 29. ágúst s.l. var þess minnst, að 100 ár voru liðin frá því, að Akureyri öðlaðist kaup- staðarréttindi. í tilefni þess var efnt til iðnsýningar í hinum nýju húsakynnum verksmiðjunnar Am- aro, þar sem gefin var góð heild- armynd af iðnaðarframleiðslunni eins og hún er á Akureyri í dag. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að iðnaðarstarfsemi á Ak- ureyri stendur með miklum blóma og fjölbreytni mikil. Þar er m. a. vefnaðariðnaður, fatagerð, skó- gerð og leðuriðnaður, skipasmíð- ar, járniðnaður, matvælaiðnaður, sælgætisgerð, húsgagnaiðnaður o. fl. Eru margar framleiðsluvörur fyrirtækja í þessum iðngreinum fyrir löngu orðnar landsþekktar og bera glöggt vitni um kunnáttu og þekkingu þeirra, sem að fram- leiðslunni vinna. í þeim iðngreinum, sem hér að ofan eru nefndar, var samanlagð- ur fjöldi vinnuvikna á s.l. ári tæp- lega 68 þúsund vikur, en það svar- ar til þess, að til jafnaðar haíi um 1300 manns starfað við iðnaðar- framleiðslu á því ári. Sýnir það glögglega, hversu veikamikinn sess iðnaðurinn skipar í atvinnu- lífi kaupstaðarins. Framleiðend- ur eru yfirleitt bjartsýnir á þró- unarmöguleika iðnaðarins bæði hvað framleiðslu fyrir innlendan markað viðvíkur og framleiðslu til útflutnings, sem þegar er hafin, þótt segja megi að hún sé enn í smáum stíl, ef fiskiðnaðurinn er undanskilinn. Iðnsýningar sem þessi eru ekki eingöngu nytsamlegar frá við- skiptalegu sjónarmiði. Nú sem stendur liggur gildi þeirra hér á landi e. t. v. meir í því, að með þeim gefst almenningi kostur á að kynnast auknum framförum og aækni, sem á sér stað á þessif sviði atvinnulífsins og þeim fram- tíðarmöguleikum, sem iðnaður- inn býr yfir.“ Skátum gefið amtmonns- húsið Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum 18. okt. s.l. að leggja til við bæjarstjórn, að Ak- ureyrarkaupstaður gæfi skátum á Akureyri húseignina Hafnarstræti 49 — amtmannshúsið — og léti þá hafa tilheyrandi lóð til um- ráða fyrir starfsemi sína í samráði við bæjaryfirvöld. Sú kvöð fylgir gj öfinni, að skát- ar mega hvorki selja né gefa hús- ið, né heldur leigja það til langs tíma án samþykkis bæjarstjórnar. Vegna afmælishátíðar skáta s.l. föstudag var þeim tilkynnt þá um gjöf þessa, þó formleg afgreiðsla fari fram á máli þessu á fundi bæjarstjórnar í dag. Allir bæjarstjórnarmenn höfðu utan fundar tjáð sig samþykka gjöfinni. Verður gerður æfinga- völlur á Gleráreyrum? íþróttaráð Akureyrar hefur lagt til við bæjarstjórn, að gerður verði knattspyrnu-æfingavöllur (malarvöllur) af fullri stærð á Gleráreyrum norður af Gefjun, norðan ár. Slíkan völl skortir nú algerlega hér í bæ og leggur íþróttaráð áherzlu á gerð vallarins þegar í stað. Hermann Stefánsson for- stöðumaður Sundlaugar Akureyrar Meirihluti íþróttaráðs Akureyr- ar hefur lagt til við bæjarstjórn, að Hermann Stefánsson, íþrótta- kennari, verði ráðinn forstöðu- maður Sundlaugar Akureyrar til 1. júní 1964 með sömu launum og hann hefur haft. Bæjarstjórn gengur formlega írá ráðningu þessari í dgg. JOLAMERKI F ramtíðarinnar fást á Pósthúsinu eins og undan- farið fyrir hver jól og rennur ágóðinn til Elliheimilis Akureyrar, sem loks er orðinn veruleiki eftir margra ára vinnu Framtíðar- kvenna og fleiri í þágu þess mál- efnis. Við skulum minnast þess, að margt smátt gerir eitt stórt. Allir, sem kaupa merkin, eru að leggja hönd að framhaldandi byggingu Elliheimilisins. Hitt er svo annað mál, en má þó gjarnan geta þess í leiðinni, að jólamerki Framtíðarinnar frá fyrri árum eru þegar orðin verð- mæt söfnunarmerki eigi síður en mörg frímerki. SÓLMÁN U Ð U R heitir ljóðabók, sem bókaútgáfa Menningarsjóðs hefur gefið út eftir Þórodd Guðmundsson frá Sandi. Bókina tileinkar skáldið móður sinni, Guðrúnu L. Odds- dóttur. Sólmánuður er 112 bls. bók í meðalbroti, og eru í henni nær 40 kvæði. Þetta er 4. ljóðabók höfundar auk einnar, sem voru þýdd ljóð. Árbók Ferðafélags íslands 1962 er nýkomin út og fjallar um Arn- arvatnsheiði og Tvídægru, þau heiðalöndin hérlendis, sem sveip- uð munu mestri dul og ævintýra- ljóma í hugum fjölda landsmanna. Þorsteinn Þorsteinsson frá Húsafelli, kennari á Hvanneyri, ritar bókina, sem er prýdd fjölda mynda. Kvenfélag Akureyrarkirkju þakkar innilega öllum hinum mörgu, er gáfu og keyptu muni á nýafstöðnum bazar félagsins. Þriðjudagur 6. nóvember 1962 þykktir fnlltrúafnndar á Vestur-, lorður- og: Austurlandi Fulltrúafundur kaupstaðanna á Vestur-, Norður- og Austurlandi var haldinn á Húsavík 17.—19. sept s.l. Mættir voru 20 fulltrúar frá öllum 8 aðildarkaupstöðunum. Fundarstjóri var Jóhann Her- mannsson, forseti bæjarstjórnar Húsavíkur. í stjórn til næstu tveggja ára voru kjörnir Ásgrím- ur Hartmannsson, bæjarstjóri, Ólafsfirði, Bj arni Þórðarson, bæj- arstjóri, Neskaupstað og Gunnþór Björnsson, bæjarstjóri, Seyðis- firði. Síðasta dag fundarins bauð bæjarstjórn Húsavíkur fulltrúum í ferð um héraðið og til kvöld- verðar í hótel Reynihlíð við Mý- vatn. Eftirfarandi tillögur voru m. a. samþykktar á fundinum: Fundurinn beinir þeim ákveðnu tilmælum til þings og ríkisstjórn- ar, að nú þegar verði endurskoð- aðar þær reglur, er gilda um lán á jarðbor til leitunar á heitu vatni og athugað verði og lögð á það Sfeinbeck hlaut bók- menntaverðlaun Nóbels í ár Sænska akademían úthlutaði nýverið bókmenntaverðlaunum Nóbels og hlaut þau að þessu sinni bandaríski rithöfundurinn John Ernest Steinbeck, en hérlendis er hann þekktastur fyrir skáldsögu sína Þrúgur reiðinnar, í þýðingu Stefáns Bjarman. Steinbeck varð sextugur 27. febr. s.l. „Þekkirðu staðinn, Fúsi?" Þegar í garðinn gætnir menn grjót til varnar bera, vita „Brekkubændur“ enn bezt, hvað þarf að gera: F riðardúfuf j aðragnið fellur strax af húsi. Þá er engin þörf á frið. Þekkirðu staðinn, Fúsi? Heimili og skóli, 3.—4. h. 1962 flytur m. a. þetta efni: Segir þú barni Jjínu alltaf satt? eftir II. J. M., Kynlíf, eftir Sigurjón Björnsson sálfr., Gamli maS- urinn og drengurinn hans (þýtt), Jón Þ. Björnsson áttræður, Það sem við skulum EKKI segja börnum okkar um guð (þýtt), Jóhannes Guðmundsson sjötugur, Börnin, sem enginn vildi hafa (þýtt) o. m. fl. varðandi uppeldismál og félagsmál kennara. Vorið, 3. h. þ. á. hefst á sögunni Ein heima, eftir II. J. M., sagt er frá aldar- afmæli Akureyrarkaupstaðar og mynd- ir af hátíðinni, þá er þýdd saga, í okk- ar eigin húsi, og önnur er nefnist Þýtur í skóginum, leikritið Sambýlingar eftir Indriða Ulfsson, smásaga eftir Astrid Lindgren o. m. fl. megináherzla, að slíkar fram- kvæmdir verði kostaðar af Ríkis- sjóði. Fundur Samlaka kaupstaðanna á Vestur-, Norður- og Austurlandi haldinn á Húsavík 17. til 19. sept. 1962, skorar á Alþingi, að gera eftirtaldar breytingar á lögum nr. 69/1962 um tekjustofna sveitar- félaga. 1. Að sveitarstjórnum verði heimilað að innheimta fasteigna- skatta og aðstöðugjöld eftir sömu reglum og útsvör. 2. Að sláturhús og mjólkurbú verði aðstöðugjaldskyld. 3. Að felld verði niður síðasta málsgrein 10. gr. laganna. 4. Að aðstöðugjald verði því aðeins frádráttarbært til útsvars, að það sé greitt að fullu fyrir ára- mót. 5. Að bankar og aðrar lána- stofnanir, tryggingafélög, sölu- sambönd, innflutningsfyrirtæki, skipafélög og flugfélög verði landsútsvarsskyld. 6. Að félög og fyrirtæki verði útsvarslögð á þeim stöðum, sem starfsemi þeirra fer fram (30. gr. b-lið verði breytt og 30. gr. j-liður felldur niður. Vekur fundurinn athygli á því, að á þessu ári eru sum stærstu fyrirtæki í aðildar- kaupstöðunum útsvarslögð að öllu leyti í Reykjavík. 7. Að felldar verði niður reglur um skiptingu útsvara sbr. d-k lið 30. gr. Æskulýðsráð fullskipað' Þegar Alþm. skýrði frá skipan Æskulýðsráðs Akureyrar, höfðu skátafélögin í bænum ekki tilnefnt fulltrúa sinn í ráðið, en hafa nú lokið því. Tekur Tryggvi Þor- steinsson, yfirkennari við Barna- skóla Akureyrar, sæti í ráðinu fyrir skáta sem aðalmaður, en Júdit Jónsbjörnsdóttir, kennari, sem varamaður. BÓKÁSÝN I NG Bókaverzlun Snæbjarnar Jóns- sonar, Reykjavík, efndi fyrra laug- ard. til bókasýningar á Gildaskála KEA. Var hún opin kl. 2—10 dag hvern þar til að kvöldi 1. nóv. Aðgangur var ókeypis. Þarna voru til sýnis (og sölu) nokkur hundruð bækur frá Ox- ford University Press og McGraw -Hill Book Company. Einnig voru þar bækur frá nokkrum öðrum út- gefendum. Þarna gaf að líta ýmsar handbækur, orðabækur, alfræðibækur, atlasa, ljóðabækur, skáldsögur, Manuscripta Island- ica, Konungsskuggsj á og orðabók Fritzners I—III. Sextugur varð 4. nóv. s.l. Runólfur Jónsson, Hamarstíg 38, Akureyri. 8. Að felld verði niður eftirfar- andi málsgrein í 47. gr. laganna: „Sveitarstjórn setur nánari reglur o. s. frv.“. 9. Að lögfest verði ákvæði um skyldur þeirra aðila, er kaupa eða hafa til sölumeðferðar fram- leiðsluvöru atvinnurekanda til að greiða útsvör þeirra, sbr. ákvæði, er var í frv. til tekj ustofnlaga er það var lagt fram á Alþingi, jafn- fraint- verði lögfest ákvæði um þóknun til atvinnurekenda fyrir störf þeirra skv. lögum. LEIÐRÉTTING Stefán Reykjalín, bæjarfulltrúi Framsóknarfl. hér í bæ, hefur vakið athygli blaðsins á því, að það sé ekki rétthermi í 34. tbl. Alþm., að hann hafi greitt tillögu Jakobs Frímannssonar atkvæði um undanþágu fyrir benzínsölur til að hafa opnar kvöldsölur með gosdrykki og sælgæti, heldur hafi hann greitt atkvæði gegn undan- þágunni. Þetta leiðréttist hér með og Stefán beðinn afsökunar á mis- herminu. Aðrir fulltrúar Framsóknar greiddu atkvæði með undanþág- unni, þ. e. Jakob, Arnþór og Sig- urður Óli, og stendur nýverið í blaðinu Degi, að sú „skelegga“ barátta gegn „sjoppunum“ hafi vakið landsathygli! Afengissalan I. júli til 30. sept. 1962. HEILDARSALA Selt í og frá: Reykjavík ... kr. 48.883.791.00 Akureyri ... — 7.788.744.00 ísafirði .. ... — 2.025.472.00 Siglufirði ... — 3.540.823.00 Seyðisfirði .. — 4.418.264.00 kr. 66.607.094.00 Á sama tíma 1961 var salan eins og hér segir: Selt í og frá: Reykj avík ... kr. 43.412.197.00 Akureyri ... — 6.694.452.00 ísafirði .. ... — 1.685.449.00 Siglufirði ... — 2.984.700.00 Seyðisfirði .. — 2.561.503.00 kr. 57.338.301.00 Fyrstu níu mánuði þessa árs nam sala áfengis frá Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins samtals kr. 168.700.824.00, en var sömu mán- uði 1961 kr. 142.119.403.00. Áfengisvarnaráð. (Heimild: Áfengis- og tóbaks- verzlun ríkisins).

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.