Alþýðumaðurinn - 10.03.1966, Blaðsíða 2
Kl. 2 e. h. hófst keppni karla, en þa'-Váf' körrtin þoka.
Karlaflokkur. 'í'. J.%. i • -sek,- - •' sek. sek.
1. ívar Sigmundsson Akureyri . 54,6 59.5 — 114.1
2. Hafsteinn Sigurðsson ísafirði .. . : C. 1 58,4' r— 57,8 : : 116,2
3. Björn Olsen Siglufirði . 58,3 — 60,5 = 118,8
4. Einar Jakobsson Ólafsfirði . 58,0 — 65,2 = 123,2
5. Magnús Ingólfsson Akureyri . 60.4 — 73.0 — 133.4
6. Sigurbjörn Jóhannsson Siglufirði . . 61.3 — 73.6 — 134.9
Keppendur voru 29 og luku 11 keppni. Hlið voru 50, fallhæð 160
m., lengd 520 m. ívar vann öruggán og wrðskuídaðan sigur og er
nú að uppskera ríkulega fyrir þrotlaúsar æfingar. Reynir Br. fór
fyrri ferð á 55,1 en hlekktist illa á j þeirri síðari og varð úr leik.
Gamlir nemendur Hermanns Stefánssonar gáfu til keppninnar
fagran verðlaunagrip, sem veita skal fyrir Alpatvíkeppni karla.
Þessi gripur á að varðveitast i Skíðahótelinu en sigurvegari fær
nafn sitt skráð á gripinn og minni afsteypu til eignar.
Alpatvíkeppni. stig
1. ívar Sigmundsson Akureyri. 0,00
2. Björn Olsen Siglufirði............................... 6,06
Hafsteinn Sigurðsson ísafirði......................... 7,63
Verðlaunaafhending fór fram í Skíðahótelinu strax að keppni
lokinni á sunnudag og fóru flestir aðkomumanna heim á mánudag.
Hermann Stefánsson afhendir ívari Sigmundssyni verðlaunabikarinn. Ljósm.: Haraldur M. Sig.
RITSTJÓRI: FRÍMANN GUNNLAUGSSON
„Tel Hlíðarf jall einn bezta skíðastað í Evrópu,
ef þar væri skíðalyfta,
¥¥ERMENNSMÓTIÐ fór fram um síðustu helgi í Hlíðarfjalli og
var keppt í stórsvigi á laugardag en svigi á sunnudag. Veður
var gott báða dagana en þoku gerði upp úr hádegi báða dagana.
Mótsstjóri var Hermann Stefánsson og brautarlagningu annaðist
Guðmundur Tuliníus. " " ~ - •* —
- - ‘O
Stórsvigið hófst á laugardag-kl, 3 með'képpni í kvennaflokki.
Kvennaflokkur. - - sek.
1. Kai'ólína Guðmundsdóttir Akureyrh_.j-. . .......... 106,6
2. Sigríður Júlíusdóttir Siglufirði *. r.. r..-...-. . . 111,5
Keppendur voru 2. Hlið 34, fallhæð 320 m. og lengd 1900 m.
Karólína vann yfirburðasigur yfir Sigríði -en þær virðast ekki í
annan tíma hafa verið betri. — ...........*
segir KRISTINN BENEDIKTSSON
¥|EGAR ÍSf gaf þá yfirlýsingu að gera ætti Akureyri að miðstöð
vetraríþrótta á fslandi, voru staddir í Hlíðarfjalli við æfingar
þeir Kristinn Benediktsson frá fsafirði og Eysteinn Þórðarson frá
Reykjavík, en þeir hafa keppt eða æft á flestum frægustu skíða-
stöðum Evrópu og Ameríku. fþróttasíðan snéri sér til þeirra og
leitaði álits á þessari ákvörðun ÍSf.
Hvað finnst þér um yfirlýs-
ingu ÍSf Kristinn?
Ég er mjög ánægður með
ákvörðun ÍSÍ og hún á eftir að
efla skíðaíþróttir á íslandi. Þetta
er mjög stórt stökk sem ÍSÍ hef-
ur tekið og gerir það að verk-
um áð hraða verður fram-
kvæmd með lyftu. Akureyri er
eini bærinn á íslandi sem sam-
einar gott skíðaland, gistimögu-
leika, góðar samgöngur og íbú-
ar Akureyrar eru tæplega 10
þúsund, sem er mjög stórt
atriði. Bæir sem eru með 1—3
þúsund íbúa eiga litla mögu-
leika á að koma slíkri íþrótta-
miðstöð í verk.
Hvernig finnst þér skíðaland-
ið í Hlíðarfjalli?
Skíðalandið hér er alveg sam
keppnisfært við beztu skíðastaði
Evrópu ef snjóalag er gott. Það
sem gerir þennan stað góðan, er
víðáttan og fjölbreytnin í lands
laginu og það sem ekki er minna
um vert er það, að hér eru
brekkur fyrir byrjendur og
beztu skíðamenn heims.
Það sem þessi skíðastaður hef
ur fram yfir skíðastaði Evrópu,
er víðáttan, því yfirleitt eru
skíðabrautir erlendis þröngar,
því þær eru höggnar í skógum.
Eins og fjallið er í dag og lyfta
væri á toppinn, þá myndi ég
taka þennan stað fram yfj.r alla
þá staði, sem ég hef verið á í
Evrópu.
Eysteinn, hvað finnst þér um
yfirlýsingu ÍSf?
Þetta er mjög nauðsynlegt
skref sem ÍSÍ hefur tekið og
Akureyri er heppilegasti stað-
urinn vegna samgangna og
fjölda bæjarbúa. Ég tel rétt að
sameinast um einn stað frekar
en að dreifa fjármagni á milli
margra staða.
Hvemig finnst þér skíðaland-
ið í Hlíðarfjalli?
Eins og snjóalag er nú jafnast
það fyllilega á við frægustu
Eysteinn Þórðarson.
skíðastaði heims, en það vantar
lyftur og þegar þær eru komn-
, ar.-þá er .hægt að halda hér allar
alþjóðlegai' keppnir.
Höfuðáherzlu verður að leggja
á að byggja lyftu að Strompi og
síðan frá Strompi og upþ. Nauð
synlegt er að hér sé staðsettur
(Framhald á blaðsíðu 13.)
Karlaflokkur. sek.
1. ívar Sigmundsson Akureyri . rr. ii6,o
2. Reynir Brynjólfsson Akureyri , . ... 116,3
3. Björn Olsen Siglufirði 121,1
4. Viðar Garðarsson Akureyri 122,4
5. Hafsteinn Sigurðsson ísafirði 125,2
6. Magnús Ingólfsson Akureyri 131,1
Keppendur voru 28 og luku 16 keppni. Hlið voru 45, hæðarmis-
munur 420 m. lengd 2300 m. ívar vann verðskuldaðan sigur en
hann og Reynir voru í sérflokki í keppninni.
Unglingaflokkur. sek.
1. Ingvi Óðinsson Akureyri 111,2
2. Árni Óðinsson Akureyri ............................ 115,8
3. Örn Þórsson Akureyri............................... 116,5
4. Guðmundur Frímannsson AkuréýZL .................. 116,5
5. Tómas Jónsson Reykjavík . ...... 77............... 119,0
6. Jónas Sigurbjörnsson Akuféýri......................... 119,3
Keppendur voru 12 og luku 9 keppni. Hlið voru 35, hæðarmis-
munur 320 m. lengd 1700 m. Allir keppendur duttu í brautinni en
þeir eru allir mjög góðir og keppni þeirra í milli mjög skemmtileg.
Á sunnudag hélt keppnin áfi'arri kl. 11 með keppni í kvenna-
flokki og unglingaflokki. Var þá sólskin og mjög gott veður.
Kvennaflokkur. sék. sek. sek.
1. Sigríður Júlíusdóttir Siglufirði ..... 39,9 : — 38,8 = 78,7
2. Karólína Guðmundsdóttir Akureyri > 41,0 — 39,6 = 80,6
Unglingaflokkur. sék. sek. sek.
1. Jónas Sigurbjörnsson Akureyri .... 35,8 ■ — 37,2 = 73,0
2. Ingvi Óðinsson Akureyri 35,5 — 38,4 = 73,9
3. Örn Þórsson Akureyri 36,6 — 37,6 = 74,2
4. Árni Óðinsson Akureyri 35,3 — 40,1 = 75,4
5. Tómas Jónsson Reykjavík 36,4 — 39,4 = 75,8
6. Guðmundur Frímannsson Akureyri . 39,0 — 42,4 = 81,4
Keppendur voru 14 og luku 12 keppnjj Hlið voru 34, fallhæð
130 m. lengd 400 m. Jónas vann í rnjög riwkillí keppni við Ingva,
Örn og Árna en þeir eru allir mjög svipaðir að styrkleika og
ógjörningur að segja um hver þéirra ei* stérkas'tur.
Kristinn Benediktsson.
Voss - Akureyri
BÆJARKEPPNI í svigi og
stórsvigi á milli Voss í
Noregi og Akureyrar verður
háð 19. og 20. marz og fer hún
fram í Voss. Keppendur Akur-
eyrar verða: Karólína Guð-
mundsdóttir, ívar Sigmundsson,
Reynir Brynjólfsson, Magnús
Ingólfsson, Viðar Garðarsson og
Þorlákur Sigurðsson. Farar-
stjóri verður Ólafur Stefánsson.
Hugmyndin er sú að þetta verði
árleg keppni, þannig að næsta
ár fari hún fram á Akureyri.
Hópurinn fer 10. marz en kem-
ur heim 22. marz. Ferðaskrif-
stofan Saga á Akureyri hefur
skipulagt ferðina.
s
Íbróttasíáa A.M.
2