Alþýðumaðurinn - 24.03.1966, Qupperneq 8
Margar atliyglisverðar ályktanir
samþykktar á ársþingi í. B. A.
FOSTUDAGINN 4. niarz var
síðari fundur ársþings íþrótta
bandalags Akureyrar haldinn í
Sjálfstæðishúsinu á Akureyri.
Fundur þessi var nijög vel sótt-
ur, og nær allir kjörnir fulltrú-
ar mættir auk fjölda gesta.
Meðal þeirra var forseti f.S.Í.
Gísli Halldórsson, framkvæmda
stjóri f.S.f. Hermann Guðmunds
son, Þorvarður Árnason og
Sveinn Björnsson úr fram-
kvæmdastjórn Í.S.Í., Stefán
Kristjánsson, formaður Skíða-
sambands íslands og Magnús E.
Guðjónsson, bæjarstjóri.
Formaður bandalagsins, ísak
J. Guðmann, setti þingið og
bauð fulltrúa og gesti velkomna.
Síðan var tekið til þingstarfa
samkvæmt dagskrá.
Tekið var fyrir álit nefnda og
tillögur og þær ræddar. Verður
þeirra að nokkru getið hér á
eftir. Fyrsta málið, sem rætt
var um, var hið svonefnda
íþróttahússmál. Nefndin, sem
fjallaði um það mál, hafði hald-
ið tvo fundi, og þann síðari með
bæ j arstj óranum, Magnúsi E.
Guðjónssyni. Umræður höfðu
þá nær eingöngu snúist um leið
til sameiginlegrar lausnar
íþróttahússmálsins á þeim
grundvelli, sem lagður var á al-
mennum fundi, boðuðum af
íþróttaráði 27. okt. 1964, með
þátttöku íþróttafélaganna, skól-
anna og annarra félagasamtaka,
svo og fulltrúum ýmissa opin-
berra aðila. Bæjarstjóri tók
nefndinni mjög vel, og reynd-
ust umræður þessa fundar mjög
gagnlegar. Þær leiddu til þess
sameiginlega álits bæjarstjóra
og nefndarinnar, að þegar í stað
yrði að hefjast handa um allan
■s
Óbreytt hjá Framsókn
DAGUR hefur nú birt lista
Framsóknar við bæjar-
stjórnarkjör í vor og skipa 5
efstu sætin sömu menn og við
síðustu kosningar, þeir Jakob
Frímannsson, Stefán Reykjalín,
Sigurður Oli Brynjólfsson, Arn-
þór Þorsteinsson og Haukur
Ámason.
undirbúning að byggingu nýs
íþróttahúss með fullri aðild
íþróttasamtakanna og skólanna
í bænum. Eftir umræður um
álitsgerð nefndarinnar var eftir
farandi tillaga samþykkt.
„Á þessu stigi málsins leggur
Allsherjarnefnd til, að stjórn
Í.B.A. og Allsherjarnefnd haldi
umræðum áfram við stjórnir
íþróttafélaganna og forráða-
manna bæjarins til þess að finna
lausn á þessu máli, sem allir
geti við unað.“
í þessari nefnd áttu sæti for-
menn K.A., Þórs, Í.M.A., íþrótta
ráðs Akureyrar og íþróttafull-
trúi bæjarins.
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt.
„Nefndin leggur til, að stjórn
Í.B.A. verði falið að gera athug-
un og breytingar á reglum um
ferðalög, telji hún það æskilegt,
og gefi þær þá út fyrir 1. maí
n. k. Verði þess þá krafist og
stranglega fylgt eftir, að þær
reglur verði í heiðri hafðar.“
Tillögur til íþróttaráðs voru
samþykktar um, að það beitti
sér fyrir því, að lóð sundlaugar-
innar verði endanlega frágeng-
in og.ennfremur tillaga, þar sem
(Framhald á blaðsíðu 2.)
=000«=
=s
TRYGGVÍ FLYTIR
FARÞEGA OG PÓST
ff
Raufarhöfn 21. marz. G. Þ. Á.
TÉR ER óbreytt ástand, allt
á kafi í snjó og allir vegir
ófærir og nú er hann enn að
bresta á með stórhríð. Við fá-
um mjólkina sjóleiðina frá
Húsavík, tvisvar til þrisvar í
viku, en fyrir kemur að skipin
komast ekki inn, og þá verðum
við að sætta okkur við að vera
mjólkurlausir.
Það má segja að það sé helzt
Tryggvi Helgason flugmaður,
er rýfur einangrunina, en hann
hefur oft komið hingað í vetur
með farþega og póst, en reynt
hefur verið til þessa að ryðja
snjó af flugvellinum.
Lokið vinnu í tunnuverksmiðjunni
H
fÆTT var vinnu í Tunnu-
verksmiðjunni á Akureyri
s.l. þriðjudag. Verksmiðjan hóf
starfrækslu þann 10. janúar. —
Smíðaðar voru 28000 tunnur og
við verksmiðjuna störfuðu 44
menn. Verkstjóri var Björn
Einarsson. AM átti stutt símtal
við Björn og kvað hann verk-
smiðjuna búa við mjög óhag-
stæð skilyrði og voru ummæli
verkstjórans staðfesting á því,
sem blaðið vissi raunar um áð-
ur. Tunnuverksmiðjan er alger-
lega' á hrakhólum með vöru-
geymslu og virðist þetta fyrir-
tæki vera algert olbogabam
ríkisins, hvað alla fyrirgreiðslu
snertir. AM vill í fullri einurð
skora á fulltrúa kjördæmisins á
hinu háa Alþingi, hvar í flokki
sem þeir annars eru, að beita
áhrifum sínum til þes að að-
stæður verksmiðjunnar verði
bættar. Akureyri hefur ekki
efni á því að missa þessa at-
vinnugrein úr bænum.
ALÞYÐUMAÐURINN
XXXVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 24. marz 1966 — 11. tbl.
MÓTMÆLA STÓRIÐJU, ÖLI OG
HÆGRI HANDAR AKSTRI
FUNDUR var haldinn í Full-
trúaráði verkalýðsfélaganna
á Akureyri hinn 8. þ. m. Var þar
m. a. rætt um hina fyrirhuguðu
aluminverksmiðju, og var eftir-
farandi tillaga samþykkt með
samhljóða atkvæðum:
„Fundur haldinn í Fulltrúa-
ráði verkalýðsfélaganna á Akur
eyri 8. marz 1966 lýsir yfir
stuðningi sínum við ályktun
miðstjórnar A.S.Í. varðandi fyr-
irhugaða samninga um alumin-
vinnslu við Straumsvík.
Fundurinn vill alvarlegá vara
allan almenning við þeim fyrir-
ætlunum stjórnarvaldanna að
leyfa erlendum auðfélögum að
ná tangarhaldi á atvinnurekstri
og atvinnulífi í landinu.“
N
Unglingameistaramót íslands
á skíðum haldið í Hliðarfjalli
UM NÆSTU HELGI verð-
ur háð hér á Akureyri
Skíðamót fslands fyrir ungl-
inga, sem er hið fyrsta í röð-
inni. Verða þátttakendur 49
frá 7 héraðssamböndum, þar
af 21 frá Akureyri. Keppt
verður í svigi, stórsvigi,
göngu og stökki.
Keppni í Alpagreinum fer
fram vig Strompinn og sunn-
an hans, í stökki við Ásgarð
en gangan fer fram við
Skíðahótelið. Hefst mótið kl.
2 á laugardag með keppni í
stórsvigi stúlkna, síðan verð-
ur stórsvig drengja, þá ganga
en á sunnudag verður keppt
í svigi og stökki.
Verðlaunaafhending fer
fram á mótsstað að lokinni
hverri grein. Veitingasala
verður við Strompinn. —
Skíðaráð Akureyrar sér um
mótið, en mótsstjóri er Guð-
mundur Tuliníus.
Þá var og samþykkt með
þorra atkvæða svofelld tillaga:
„Fundur í Fulltrúaráði verka
lýðsfélaganna á Akureyri hald-
inn 8. marz 1966 mótmælir harð
lega framkomnu frumvarpi á
Alþingi um bruggun og sölu á
áfengu öli, og skorar á hæstvirt
Alþingi að fella það.“
Og ennfremur:
„Fundur haldinn í Fulltrúa-
ráði verkalýðsfélaganna á Akur
eyri 8. marz 1966 leyfir sér að
mótmæla eindregið, framkomnu
frumvarpi á Alþingi um hægri
handar akstur.“
Sviðsmynd úr leiknum „Allt er þá þrennt er“, sem leikfélagið
Iðunn í Hrafnagilshreppi sýnir um þessar mundir. Ljósm.: N. H.
=s
MALVERKASYNING
Á AKUREYRI
HIN góðkunna listakona Helga
Weisshappel opnar mál-
verkasýningu í Landsbanka-
salnum n. k. laugardag kl. 3.
Mun frúin sýna þar 26 málverk.
Frú Helga hafði hér sýningu í
ágústmánuði 1964 og mun Akur
eyringum þykja fengur í þvi að
kynnast á ný listaverkum henn-
ar. Sýningin mun standa í 8
daga.
Það má telja til merkra við-
burða, ef málverkasýning er hér
haldin og því munu bæjarbúar
þakka frú Helgu fyrir framtak
sitt með því að fjölmenna á sýn-
ingu hennar.
Tvímenningskeppni
bridge
Húsavík 21. marz.
ATÝLOKIÐ er
G. H.
tvímennings-
A ’ keppni í bridge. Úrsli urðu
þessi: Stig.
1. Guðjón og Guðmundur 661
2. Óli og Jónas 623
3. Páll og Kristinn 600
4. Jón og Þorvaldur 599
5. Björn og Vilhjálmur 596
6. Þorgrímur og Sigtryggur 595
7. Þórður og Ólafur 573
8. Gerður og Haraldur 572