Alþýðumaðurinn - 21.04.1966, Qupperneq 1
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
PEDROMYNDIR Akureyri
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
ALÞYÐUMAÐURINN
WW
XXXVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 21. apríl 1966 — 13. tbl.
TVEIR SÆKJA UM
MÖÐRUVELLI
SÉRA Sigurður Stef ánsson
vígslubiskup . hefur látið af
prestsstörfum í Möðruvalla-
klaustursprestakalli. Umsóknar
frestur um stööurja er nýlega út
runninn og sóttu tveir préStar
um starfið, séra Bolli Gústafs-
son í Hrísey og séra Ágúst Sig-
urðsson, er verið hefir aðstoðar
prestur í prestakailinu að und-
anförnu.
=<K>0c
Atliugasemd frá Norðurleið li.f.
VEGNA klausu í síðasta blaði,
um að Norðurleiðir hafi
neitað skólafólki um far frá
Blönduósi nema farseðill væri
keyptur alla leið til Akureyrar,
hefir AM borizt eftirfarandi a,t-
hugasemd við spurningu blaðs-
ins hvort þetta væri rétt.
„Þessari spurningu er fljót-
svarað, því hún er í hæsta máta
barnaleg, en upplýst skal eftir-
farandi:
t Beðið var um bíl á leigu strax
að morgni frá Blönduósi til
Sauðárkróks. Þar sem Norður-
leið hafði aðeins bíl fyrir norð-
an en ekki bílstjóra, var gengið
það langt að skólafólkinu var
bíllinn til reiðu ef þau gætu
sjálf útvegað sér bílstjóra, og
þyrfti ekki að nota hann á sér-
leyfið til Reykjavíkur þennan
dag. Jafnframt var tekið fram
að áætlunarbíllinn myndi fara
til Akureyrar seinni part sama
dags.
¥|ESSI FALLEGA og sviphýra 10 ára stúlka, ber fram
* sumarkveðjur AM; jafnt til velunriara og andstæðinga.
Hún heitir Guðrún Frímannsdóttir og sólskinið í brosi henn-
ar og augum eiga að minna lesendur AM á það, að þótt fjúki
snjókorn við glugga um sumarmál, þá sé sumarið á næsta
leyti, þótt því miði hægt og hægt.
Hún heitir Guðrún Frímannsdóttir er kynnir allar sumar-
kveðjur AM, og þið sjáið það góðir lesendur á svip hennar,
að birta er á bak við kveðjur AM. AM óskar Guðrúnu gleði-
legs sumars með hjartans þakklæti fyrir sólskinið. Myndina
af ungfrúnni tók Níels Hansson.
Þessu var ekki svarað en þeg
ar Norðurleið kom á Blönduós
áleiðis til Akureyrar, fór allt
skólafólkið með, án þess að gera
boð á undan sér, en regla er
fyrir því að farþegi á að láta
bóka' sig með bílnum fyrir
ákveðinn tíma.
Skólafólk frá Sauðárkróki,
tók einnig Norðurleið umrædd-
an dag, en gat að öllu leyti sjálft
ákveðið hvernig það færi til
Akureyrar.
Tekið skal fram að umrætt
skólafólk, virðist hafa það að
reglu að skipta ekki við Norður
(Fxamhald á blaðsíðu 7)
--------------------
ÞEIR SKIPA FJÖUUR
EFSTU SÆTIN
á lista Alþýðuflokksins og
óháðra á Dalvík.
1. Árni Arngrímsson
kaupinaður.
Gleðilegt sumar góðir Akureyringar
ÁM bsrtir hér síuíí ávarp frái
ÁlþýðuflokkRum á Akureyri J
Stutta en skýra stcfnuyfiiiýsiiigu
Gerið þið svo vel
ALÞÝÐUFLOKKURINN Á AKUREYRI mun að
fenginni aukinni fulltrúatölu í bæjarstjórn, beita sér ^
fyrir myndun ábyrgs meirihluta í komandi bæjar- ^
stjórn, sem endurkjósi núverandi bæjarstjóra og semji
í upphafi kjörtímabilsins starfsáætlun fyrir kjörtíma- i
bilið út.
Starfsáætlunin hafi það að höfuðmarki:
1. Að stuðla að aukningu atvinnulífsins í bænum og^
hvers konar nýframkvæmdum, er horfa til vaxtar <X
bæjarfélaginu. A
2. Að efla fjárhagslegt öryggi bæjarfélagsins, íbúa N
þess og stofnana. ^
3. Að bæta menntunaraðstöðu í bænuin, svo sem með ^
auknu húsnæði skóla og umbótum á starfsskilyrð-
um þeiria.
4. Að örva til vaxandi menningarlífs í bænum með <$,
öflugum stuðningi og hvatningu við vísindi og list-
ir bæjarbúa.
5. Að vinna að aukinni aðhlynningu og umsjá bama(
og unglinga, betri hcilsugæzlu í bænum og aukinni <5
og bættri aðstöðu við hjúkrun og lækning sjúkra .Á
og umsjá með aldurhnignu fólki í bænuin.
6. Að gera bæjarbúum sein ánægjulegast að búa á Ak- ■
ureyri, m. a. með seni beztri þjónustu hvað vatn,
rafmagn, gatnagerð og allan þrifnað í bænum ^
snertir.
Þar sem verkefni bæjarfélagsins á þessum sviðum og £
fleirum eru ótæmandi og í sííellu tekur eitt við af X
öðru, telur Alþýðuflokkurinn nauðsynlegt, að starfs- ^
áætlun bæjarstjórnar sé við það miðuð, að verkefnum ^
sé komið sem fyrst og hagkvæmast frá hendi og þau K
brýnustu gangi fyrir. i
Heitir flokkurinn á alla þá kjósendur í bænum, er ^
líta sömu augum og hann á hlutverk bæjarstjórnar og js
forgöngu liennar um úrlausn mála sem að framan get- ^
ur, að veita honum nægilegt brautargengi við komandi ^
kösningar, til að geta eftir þær haft áhrif á þá forystu &
um verkefni og hér getur. <&
AM segir: Þetta er fyrsta kynning blaðsins á stefnu-
skrá jafnaðarmanna í hönd farandi kosninga. AM "
gengur bjartsýnn út í orustuna. AM veit að þið gerið ^
að engu fyrirætlanir Sjálfstæðis og Framsóknar um'?
kapítalískt tveggja flokka kerfi. AM veit einnig að i
„vinstri sósíalistar“ munu lofa kommúnistum að róa X
einum á báti. AM er sigurviss og baráttuglaður og ^
heitir á alla velunnara sína, jafnt unga sem aldna, að T
duga vel.
2. Ingólfur Jónsson
liúsasmíðaineistari.
3. Helgi Þorsteinsson
skólastjúri.
4. Gunnar Jónsson
sérleyfishafi.
LEIÐARI: Nýtt leikhús og félagsheimili
AM heimsækir Matthíasarsafn, sjá bls. 5
Opið öll kvöld til kl. 20.00
VERZLUNIN BREKKA
Skipuleggjum ferð-
ir endurgjaldslaust
LÖND O G
I
Fyrir hópa og
einstaklinga
L E I Ð I R . Simi 12940