Alþýðumaðurinn - 26.05.1966, Side 5
Það er brýn nauðsyn að hér á Ákureyri rísi upp fullkomin umferð-
armiðsfcð ekki einungis fyrir Ákureyrí, heldur fyrir Norðurland allf
segir KARL JÖRUNDSSON, forstjóri
Ferðaskrifstofunnar Sögu
JÆJA, GÓÐIR LESENBUR. Þá sleppum við blessaðri pólitíkinni
úr viðtali á 5. síðu AM, og undirritaður er nú svolítið feginn að
kosningahríðinni er lokið og nú er liægt að fara inn á rýmra svið
en að undanförnu. AM spjallar að þessu sinni við Karl Jörundsson
forstjóra Ferðaskrifstofunnar Sögu. Hann er ættaður frá Hrísey
og hjarta Eyjafjarðar gengur víst næst Svarfaðardal í augum s. j.
Hvað hefir þú starfað lengi að
ferðamálum Karl?
Ég hefi starfað að þeim mál-
um síðan að Ferðaskirfstofan
Saga var opnuð hér í byrjun
júnímánaðar 1963.
Er ekki starfsemi Sögu orðin
allvíðtæk og umfangsmikil?
Jú, það má segja það. Við höf-
um nú í afgreiðslu nálega öll
sérleyfi hér Norðanlands, má
tilnefna: Akureyri—Reykjavík,
Akureyri—Dalvík, Húsavík,
Austurland, Kópasker, Hjalt-
eyri og nú í sumar bætist við
nýtt sérleyfi, er ekki hefir verið
hjá okkur áður, en það er Akur
eyri—Siglufjörður. Má því segja
að Saga sé orðin nokkurskonar
umferðarmiðstöð á Akureyri.
En finnst þér ekki orðin nauð-
syn á að fullkomin umferðar-
miðstöð- rísi hér á Akureyri?
Jú, tvímælalaust. Nú er búið
að stofna fullkomna umferðar-
miðstöð í Reykjavík, og tel ég
því eðlilegt að Akureyri verði
næst til að koma á fót slíkri
stofnun. Ég legg áherzlu á það,
að einmitt þetta er ekki svo
veigalítið atriði ef Akureyri ætl
ar sér að gegna forustuhlutverki
í ferðamálum almennt eins og
verið hefir.
Ert þú bjartsýnn á að sú um-
ferðarmiðstöð rísi hér í náinni
framtíð?
Já, ég er mjög bjartsýnn í því
efni og treysti bæjarstjórn til
öflugrar forgöngu, en þetta þol-
ir enga bið, og er ég segi það er
mér ekki sízt í huga skipulags-
mál bæjarins, því að án efa þarf
slík miðstöð að vera staðsett
sem næst miðbænum.
En myndi ekki slík starfsemi
verða talin nokkur lýti á mið-
bænum?
Nei, engan veginn. Ég álít að
bæði sé hægt að koma upp fal-
legu einnar hæðar húsi með góð
um bílastæðum í kring og svo
að hinu leyti má gróðursetja
tré og rækta fallega grasbletti í
smekklegum reitum til fegrun-
ar staðnum.
Telur þú að Akureyri eigi sér
framtíð sem ferðamannabær?
Já, hiklaust. Akureyri tel ég
fegursta bæ landsins og ég vona
að við getum veitt gestum góða
þjónustu, og í sambandi við mót
tökur ferðamanna vil ég geta
legum viðskiptavinum. Þessi
fyrirgreiðsla er sem sagt endur-
gjaldslaus. Aftur á móti greiða
þau okkur umboðslaun hin
þess, að við höfum hér góð gisti-
hús og gistirými mun enn anna
hér eftirspurn, meira að segja
yfir sumarmánuðina. Hvað við
gerum fyrir ferðafólk, er rétt
að taka fram að við skipuleggj-
um skoðanaferðir um bæinn og
4 sinnum í viku eru farnar ferð
ir um næstu sveitir. En ég vil
taka fram að okkur vantar hér
árvissar hátíðir er aðrir staðir
hafa yfir okkur. Má þar til nefna
þjóðhátíð Vestmannaeyinga og
sæluviku Skagfirðinga og Hún-
vetninga. Þyrftu ferðaskirfstof-
urnar og ýmis félagasamtök
með tilstuðlan bæjarfélagsins að
hrinda í framkvæmd hátíðaviku
hér í höfuðstað Norðurlands.
Það myndi stuðla að auknum
ferðamannastraumi til Norður-
lands.
Þið annist fyrirgreiðslu fyrir
fólk er fer út fyrir pollinn?
Já, fólk sem hyggst ferðast
utan, snýr sér til okkar og önn-
umst við hverskonar fyrir-
greiðslu er það fer fram á t. d.
seljum við flugfarseðla með báð
um íslenzku flugfélögunum og
eins erlendum, einnig seljum
við farmiða með skipum, járn-
brautum og önnumst pantanir á
hótelherbergjum og aðra fyrir-
greiðslu er viðskiptavinir óska.
En þið takið auðvitað þóknun
fyrir alla þessa þjónustu?
Þetta er sú spurning er oft
ber á góma, þegar fólk skiptir
við okkur, en þessu er fljótsvar-
að. Við tökum enga greiðslu fyr
ir okkar þjónustu frá væntan-
Karl Jörundsson.
ýmsu þjónustufyrirtæki er við
skiptum við.
Svo í lokin Karl. Er ekki eitt-
livað nýtt á döfinni hjá ykkur?
Jú, víst má segja það. Mig
langar sérstaklega til að geta
svokallaðra IT-ferða sem við er-
um nú að skipuleggja til Reykja
víkur. IT-ferðir eru byggðar
upp þannig, að innifalið er í
flugferð fram og til baka, gist-
ing og morgunverður. Hvað
kostnað snertir eru þessar ferð-
ir mun hagkvæmari heldur en
fólk fari á sínum eigin vegum.
Eins má geta þess að við erum
orðnii' umboðsmenn fyrir Flug-
sýn h.f. í Reykjavík og mun
hefjast reglubundið áætlunai'-
flug milli Akureyrar og Nes-
kaupstaðar tvisvar í viku frá
júníbyrjun. Nú á næstunni mun
Flugsýn kaupa 32. sæta Douglas
flugvél, er annast mun farþega-
flug á milli. Er ekki nokkur vafi
á því, að fólk mun nota þessar
ferðir og þá sérstaklega áhafnir
Örlítið grín í lokin
NÚ MUN „huldumaðurinn11
vera búinn að yfirgefa Er-
ling því að engin véfrétt gat að
líta í síðasta Degi og óskum við
hér með Degi til hamingju að
vera nú aftur orðinn húsbóndi
á sínu heimili. En Akureyring-
ur er vissulega sakna véfrétt-
anna úr Degi skal hugga með
því að „huldumaðurinn“ mun
koma fljótt aftur því að stutt er
til Alþingiskosninga, því miður
fyrir Erling en lesendum Dags
til ánægjuauka. Margar léttar
sögur ganga um bæinn frá kosn-
ingaslagnum og mun AM birta
sumar þeirra í næsta blaði í
þættinum Heyrt, spurt, séð og
hlerað. Það er svolítill húmor í
þeim, eins og hjá Erlingi'í þætti
hans stórt og smátt, en einn
gamansamur Framsóknarmaður
sagði við AM í dag: „Ég kenni
í brjóst um Arnþór að hann
skyldi ekki falla með Ingi-
björgu“. AM heldur að þessi
Framsóknarmaður sé meiri grín
isti en jafnvel Erlingur.
norðlenzkra síldveiðiskipa sem
þurfa að bíða löndunar þar
eystra, eða ef bræla er og land-
lega verður.
Enn ein sþurning. Hvernig
líkar þér starfið, já, ög viðskipta
vinirnir?
Mér líkar starfið mjög vel og
samskipti mín við viðskiptavin-
ina einnig hefir verið mjög
ánægjuleg, og þá sérstaklega
hefir mér fundist gott að gera
fólki til hæfis í sambandi við
utanlandsferðir. Vil ég biðja
AM fyrir beztu kveðjur til allra
þeirra mörgú er leitað hafa til
Sögu um fyrirgreiðslu.
AM er ljúft að skila kveðju
Karls og svo þakka ég honum
fyrir innlitið og spjallið og við
sendum báðir hlýjar kveðjur út
í Hrísey (ég spurði að vísu ekki
Karl eftir því). Svo vona ég
með honum að senn rísi upp um
ferðarmiðstöð á Akureyri. Það
er eitt af því marga er koma
þarf ef Akureyri ætlar sér að
verða norðlenzk höfuðborg.
Þökk fyrir Karl. s. j.
Fáorð kveðja
til Verka-
mannsins
I’ SL. VIKU stiniplaðí Verka
niaðui-inn mig sem lygara
ódrengskaparmann og mál-
efnasnauðan aumingja. Ég
skal hlýta þeim dómi ef
næsti Verkamaður birtir
undirskrifaða yfirlýsingu frá
Herði Aðólfssyni og Am-
finni Arnfinnssyni að þeir
séu samþykkir dómsniður-
stöðu Verkamannsins og þá
einnig það að leitað hafi ver-
ið til þeirra hvað dóms-
úrskurð snertir. Ef svo reyn-
ist þá mun ég hverfa frá rit-
stjórn AM, því eigi skal lyg-
ari og ódrengskaparmaður
ritstýra lengur en orðið er
tnálgagni jafnaðarmanna á
Norðurlandi. Þú átt næsta
leikinn Björn Jónsson. Gerðu
svo vel.
Með sósíalískri kveðju.
Sigurjón Jóhannsson.
s
Miklir erfiðleiliar
Svarfaðardal 23. maí. E. J.
HÉR ER enn geysilegur snjór
og vart sér enn nokkur
gróður, þar sem autt er orðið.
Sauðburður er víðast langt kom
inn, og hefir þurft að hafa lamb-
fé allt í húsi og vita allir er til
þekkja, hve geysileg vinna og
erfiði liggur í því. Ef eigi fer að
hlýna í veðri er hætt við að all-
almennur heyskortur verði, en
“S
GLEYMDIST EKKI
STÆRSTISTÓLLINN
í leiðara blaðsins Dags stóðu
þessi smekklegu orð s.l. mið-
vikudag (gær): „Sumir skýra
þetta (fylgisaukningu Alþýðu-
fl. á Akureyri) með því, að veg-
ur Braga hafi vaxið, er hann
skipti um stól. Með sömu rök-
um mætti álykta, að tap Sjálf-
stæðisflokksms hefði orðið enn
meira en það varð, ef Sólnes
hefði farið úr sínum stól.“
En hvað segir þá Dagur um
stólinn, sem Jakob situr í og
flestir bæjarbúar vita um stærð
ina á? Á að skilja þessi oi'ð
blaðsins óbeint svo, að næsta lít
ið yrði úr fylgi Framsóknar hér
í bæ, ef Framsóknarmaður yrði
að standa upp úr honum?
vonandi fer nú að breyta til
batnaðar, en óhætt mun að full-
yrða að bændur hafa beðið mik-
ið tjón vegna þessara miklu vor-
harðinda, eftir mjög erfiðan vet-
ur. Eins og gefur að skilja munu
öll nauðsynleg vorverk verða
óvenju seint unnin vegna þess
hve snjóa leysir seint.
Um síðustu helgi hélt Sam-
band eyfirzkra kvenfélaga sam-
bandsþing sitt að Húsmæðraskól
anum að Húsabakka og mættu
fulltrúar frá flestum kvenfélög-
um í sýslunni.
Ferming verður hér á annan
í hvítasunnu.
■s
„HAFÖRNINN“ SKAL
ÞAÐ HEITA ,
Siglufirði 25. maí. J. M.
STJÓRN síldarverksmiðja rík-
isins var á fundi í gær í
Reykjavík. Þar var ákveðið
heiti á hinu nýja síldarflutninga
skipi verksmiðjanna, og kemus
skipið til að heita Haförninn.
Heimahöfn skipsins verðuií
Siglufjörður.
Sigurður Jónsson fram-
kvæmdastjóri S. R. fer utan um
helgina til þess að taka á móti
skipinu.