Alþýðumaðurinn - 03.06.1966, Blaðsíða 4
'•'lllIllllllllHlimillllllllllllllllllHIHIIIUHIIIIHHHIlllllHIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIllllllllllIllíl lUHHIIHJIIIIIIll!lIII 1:11:1111:UIUIUIUnUIIJIISIHIIIUIIIIIIIHI!HII!3IU9HHIIIHIIIHIHIIH!HIIHIIIIIIHUIIUinH!IUI3i:UII!H!HUU!ll93!::
ms,
Ritstjóri: SIGURIÓN JÓHANNSSON (áb.).
Útgefandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR-
EYRAR. — Afgreiðsla og auglýsingar:
Strandgötu 9, II. hæð, sími (96)11399. —
Prentverk Odds Björnssonar h.f., Akureyri
A LÞYÐUIV! AÐU R ! N N
X\V~.—.—
Tcgaraútgerðin norðanlands |
TIINN 31. maí s.l. var aðalfundur IJtgerðarEélags Ak- i
ureyringa h.f., en það rekur nú einu togaraútgerð- i
ina norðanlands, og er Akureyri einn af þremur bæj- 1
um landsins nú, þar scm togaraútgerð er enn við líði. f
Hinir eru Revkjavík og Hafnarfjörður.
Því var spáð, að togaraútgerð mundi takast hér verr i
en á hinum stöðunum tveimur, a. m. k., en reynslan i
hefir sýnt annað, et ekki hitt jafnvel, að hér hiafi hún i
farlð fullt eins vel úr hendi, þegar á allt er litið.
ÞÁÐ er kannske ekki af miklu að státa, að hér hafi i
luin gengið minnst illa, því að alls staðar hefir ver- i
ið um taprekstur að ræða, en þegar allar aðstæður eru i
athugaðar, er ekki hægt að lesa annað út úr rekstri =
ÚA s.l. ár en að þessa fyrirtækis sé sé hér vissulega f
þörf og togaraútgerð eigi hér fullan rétt á sér.
Samkvæmt reikningsyfirliti ÚA greiddi það kr. 41,5 |
rnillj. í beinar kaupgreiðslur á s.l. ári, togararnir öfl- i
úðu fyrir 63,7 millj. og hraðfrystihús, saltfisk- og i
skreiðarverkun framleiddu verðmæti til útflutnings i
fyrir 52,4 millj. kr.
REKSTURSHALLI varð að vísu kr. 2,5 millj. alls, |
en þá hafði líka 3,6 millj. af tekjum féliagsins ver- =
ið varið til afskrifta á skipum, húsum og tækjum fé- f
lagsins lögum samkvæmt. Að vísu hefur ÚA notið |
styrkja til þessa reksturs síns, reglum- samkvæmt frá f
ríki og nokkuð frá bænum að auki, en framangreind- f
ar tölur taka af öll tvímæli um, að hér yrði lítt bæt- 1
anlegt skarð fyrir skikli, ef togaraútgerð þessi legð- f
ist af. i
IjAÐ F.R hinsvegar höfuðverkur ráðamanna ÚA, f
* hvernig henni verði haldið áfram senn hvað líður, f
þar sem skip þess fara hvert af öðru að heltast úr lest i
fyrir aldurs sakir, en bolmagn skortir tii kaupa á nýj- f
um. f
Hér verða bær og ríki að leggjast á eitt um það að í
finna færa leið til úrlausnar. i
AMEÐAN Akureyringar háðu
sína kosningabaráttu, stóðu
eyfirzkir bændur og raunar
þingeyskir og austfirzkir einnig
í stórstyrjöld og mun illvígari,
en það var baráttan við óvenju
langæ vorharðindi, eftir barð-
an og snjóasaman vetur. — f
þeirri baráttu var eigi spurt
um vinnutímafjölda, lieldur
hitt, hvort sigur ynnist í orrust
unni og þá er enn luildi snjór
tún úti í Svarfaðardal og enn
væri eigi vitað hvort sigur ynn
ist var kunngjört, að þeim
skyldi refsað fyrir dugnað sinn
og því skyldi haldið ránshendi
85 aurum af hverjum mjólkur-
lítra, er þeir höfðu lagt inn s.l.
ár, unz smjörfjallið væri upp-
étið. Enn fékk sogkraftur Stór-
Reykjavíkur öflugan banda-
mann, ef að á slíkan hátt á að
verðlauna dugnað bænda, og
enn skal stuðla að því, að fs-
land verði aðeins Suðurnes.
Iandbúnaðarmálum benda vissu
lega til þess.
MVILL enn spyrja: Því
eiga eyfirzkir bændur
fremur að gjalda „smjörfjalls-
ins“ en þeir sunnlenzku? Eigi
er það bændum við Eyjafjörð
að kenna, að hér er engin Stór-
Akureyri.
HEYRT
SPURT
r
HLERAÐ
A ÐEINS 18% af mjólkurinn-
leggi bænda á félagssvæði
KEA fór til neyzlu. Það eru
fleiri en Akureyri og Akureyr-
ingar, er goldið hafa stöðnunar
í vexti höfuðstaðar Norður-
lands, einnig og ekki síður,
eyfirzkar og aðrar norðlenzkar
byggðir. AM væntir þess, að
hin nýkjörna bæjarstjórn Ak-
ureyrar geri Akureyri að þeirri
lífæð, er allt Norðurland þarfn
ast.
MSPYR: Er það ætlan
ráðamanna hændasam-
takanna og ríkisvalds að stuðla
að því að nokkrir ríkisbændur
verði einráðir í landbúnaði, en
þeir smærri eigi að leíta í ál-
inn í Straumsvík? Horfurnar í
SKRIFAR: Ég treysti
bæjarfulltrúum jafnað
armanna til að hafa forustu um
þá norðlenzku sókn, er nauð-
synleg er, ef Akureyri á eigi að
bregðast skyldu sinni fyrir
Norðurland allt. Lítum t. d. á
starfsskilyrði Iögreglunnar. Jú,
það er svo sem að rísa ný lög-
reglustöð, en ef liún á að vera
eins lengi í smíðuin og ráðhúsið
okkar þá guð komi til. Ég
treysti krötum til að pollurinn
gárist, eins og AM hefir stund-
um sagt og í þeirri trú eru þeir
er elfdu A-listann til sigurs.
1 NDI „huldumannsins“ svífur
ennþá yfir vötnunum í síð-
asta Degi. Þar er linútukast til
bæjarstjóra okkar og látin sú
óskhyggja í ljós, að starf bæjar
......s
stjóra verði auglýst laust, sök-
um þess að hann liafi sýnt á
of áberandi hátt að hann sé
jafnaðarmaöur. Ef slíkt á að
telja okkar ágæta bæjarstjóra
til foráttu, væri eigi ósann-
gjarnt að fordæma fram-
kvæmdastjóra KEA fyrir þá
lireinskilni sína, að hann hefir
aldrei leynt því að hann sé
Framsóknarmaður. Kratar áfell
ast ekki Jakob fyrir slíka hrein
skilni, en neita því hins vegar
að samvinnumenn séu svika-
lirappar nema að þeir séu Frain
sóknarmenn. AM biður Erling
við Dag að benda á þó ekki
væri nema eitt atriði þar sem
Magnús E. Guðjónsson hefir
látið stjórnmálaskoðanir ráða
fremur en bæjarheill. Ef hann
getur fært sannanir fyrir því
mun ritstjóri AM stuðla að því
að kratar bjóði honum, þótt
fátækir séu í reisu til sálfræð-
ings Alþýðubandalagsins Sigur
jóns Björnssonar, og mætti
liann gjarnan taka huldumann-
inn með sér.
VIÐ sjáum í leiðara síðasta fs-
lendings að enn er innifai-
in gremja yfir því ef kratar
gára lygnuna á polli Sólness og
Jakobs. AM hefir trú á því að
það sé jákvætt norðlenzkum
byggðum, að stormur norðan
heiðar heimsæki Stór-Reykja-
vík, og AM treystir bæði Þor-
valdi og Braga að upphefja
þann storm í bæjarstjórn Akur
eyrar. AM treystir þeim yel
ásamt því dugmikla og unga
fólki er skipaði A-listann til að
breyta uin taflstöðu, að sanna
bæði höfuðborgarvaldi og ríkis
valdi að Norðurland sé til.
(Framhald á blaðsíðu 7.)
TjJORMAÐUR Útgerðarfélagsins, Albert Sölvason, f
* upplýsti á aðáirundinum, að framkvæmdastjórar |
félagsins hefðu kynnt sér nokkuð nýjar gerðir togara I
úti, en þar sem breytingar á togaragerðum virtust \
nokkuð í deiglunni, teldu þeir sig ekki enn geta mælt |
ákveðið með nokkurri sérstakri nýgerð, lielzt þó vísast \
einhvers konar skuttogarasærð. I
TTÉR mætti skjóta því inn í, að ríkið hefir í athug- |
** un að gera út einn eða tvo togara til reynslu á ný- i
gerðum Jaeirra, og ættu Akureyringar að kalla eftir, |
að Jiessi tilraun, a. m. k. að einum togara til, yrði gerð |
héðan, Jiar sem hraðfrystihús ÚÁ skortir fremur hrá- |
efni en hitt, og útgerð togara héðan er sannarlega |
fyllilega samkeppnisf;er við togaraútgerðina við Faxa- f
flóa, þar sem þá líka atvinnutækin eru fleiri en svo, f
að þessi tilraun sé þar nauðsyn til atvinnuaukningar. i
F'ORMAÐUR Útgerðarfélagsins vakti athygli á, að \
* félaginu og staðnum vagri meiri nauðsyn að fá nýj- |
an skipakost til fiskveiða én t. d. síldvéiða, sm sumir |
væru að mæla með. Eins og sfldveiði væri nú háttað, |
væri a. m. k. óvíst, að síldveiðiskip héðan ykju á at- I
vinnu manna hér í hæ nema áhafna þeirra, en fiski- f
skip, sem legðu hér upp fisk til vinnslu, sköpuðu |
(Framhald á blaðsíðu T)
• AF NÆSTU GRÖSUM#
MESSAÐ í Akureyrarkirkj u ld.
10.30 árd. á sunnudaginn kem
um. — Trínitatis. — Sálmar
nr: 29, 34, 41, 647, 678. P. S.
GUÐSÞJÓNUSTUR í Grundar
þingum: Hólum sunnudag-
inn 5 .júní n. k. kl. 1.30 e. h.
FERMINGARBARNAMÓT
E y j a fjarðarprófastsdæmis
verður sunnudaginn 5. júní
MINJASAFNIÐ á Akureyri.
Frá og með sunnudeginum 5.
júní verður safnið opið dag-
lega frá kl. 1.30—4 e. h. Á
öðrum tímum verður þó tek-
ið á móti ferðafólki, ef óskað
er. — Sími safnsins er 11162,
sími safnvarðar er 11272.
LEIÐRÉTTIN G. f fréttabréfi
í síðasta blaði stóð: í hús-
mæðraskólanum á Húsa-
bakka — en átti auðvitað að
vera Heimavistarskólanum á
Húsabakka.
MUNIÐ minningarspjöld Elli-
heimilis Akureyrar. Fást í
Skemrnunni.
HJÓNAEFNI. Á hvítasunnu-
dag opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Svanfríður Jónsdóttir
Sólgörðum, Dalvík, og Eirík-
ur Birkir Helgason, Ytri-
Másstöðum í Skíðadal.
NONNAHÚS verður opnað sd.
4 .júní. Verður opið í sumar
alla daga vikunnar kl. 2—4 e.
li. Upplýsingar í símum 11396
og 11574.
AKUREYRINGAR! Munið Að
alsafnaðarfundinn, er hald-
inn verður 12. júní. — Sjá
auglýsingu í blaðinu í dag,
LEIÐRÉTTING. í upptalningu
um brautskráða iðnnema á
Akureyri féll niður nafn Jó-
hanns R. Sigurðssonar húsa-
smiðs. Hann hafði I. einkunn
8,84, sem var þriðja hæsta
einkunnin. Jafnframt biður
AM Jón Sigurgeirsson skóla-
stjóra afsökunar á línu-
brengli í síðasta blaði, þar
sem birtur var kafli úr ræðu
hans.
BRÚÐHJÓN. Á hvítasunnudag
voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju ung-
frú Elín Pétursdóttir og Run-
ólfur Engilbertsson. Heimili
þeirra er að Gránufélagsg. 23.
AKUREYRINGAR! — Munið
fjársöfnunina til Brekku-
hjóna.