Alþýðumaðurinn - 11.08.1966, Page 2
NSN*
S
Í|>róllasíAa A.M.
RITSTJÓRI: FRÍMANN GUNNLAUGSSON
NIHIIIHIIttllllHtHIIHIIIIHIIIIHHIHHIIIIIIHH ....IHIIHHHIHHHHHHHHHHHHHHHHHHHII
ÍBA-Keflvíkingar jafntefli 1:1
SlÐASTLIÐINN sunnudag
léku í I. deild á Njarðvíkur-
velli Akureyri og Keflavík. Var
þetta sjöundi leikur liðanna.
Eftir sex leiki hafði Keflavík
7 stig en Akureyri 6 og var með
al áhorfenda, sem leikmanna
mikill spenningur fyrir leikn-
um. Leikurinn var nokkuð
skemmtilegur, harður og vel
leikinn á köflum.
Akureyrarliðið var sterkari
aðilinn í fyrri hálfleik, skapaði
sér oft góð tækifæri, sem byggð
ust yfirleitt upp hægri væng
vallarins, með Kára sem aðal-
driffjöður. Akureyri náði svo
forystu um miðjan hálfleik, er
Sævar krækir í knöttinn svo til
upp við endamörk, leikur á einn
varnarleikmann Keflavíkur og
rennir knettinum milli stangar
og markvarðar.
Ekki nýttust fleiri tækifæri í
hálfleiknum þó hurð skilli oft
nærri hælum. Valsteinn átti tvö
góð tækifæri en skaut framhjá,.
Kári kemst innfyrir og á aðeins
éftir markvörðinn, spyrnir að
marki en markvörður rekur
tána í knöttinn og gerir horn.
Fyrstu tuttugu mínútur af
seinni hálfleik hafa Keflvíking-
ar leikinn í sínum höndum og
sækja fast en fá ekki hættuleg
tækifæri og í þessari sóknar-
lotu Keflvíkinga er dæmd auka
spyrna á Akureyri inn við víta
punkt. Keflvíkingar fram-
kvæma spyrnuna laglega, mið-
herjinn rennir knettinum til
Handknattleiksmót
kvenna
SL. SUNNUDAG fór fram í Ár
skógí kvennamót UMSE í hand
knattleik, með hraðkeppnisfyrir
komulagi. Sex lið tóku þátt í
mótinu og varð röðin þessi:
1. Umf. Ársól, Árroðinn Ong-
ulsstaðahreppi, unnu alla sína
leiki. '
2. Umf. Svarfdæla, Dalvík.
3. Umf. Reynir Árskógs-
Iixeppi.
4. Umf. Framtíð Hrafnagils-
hreppi.
5. Umf. Narfi Hrísey.
6. Umf. Svarfdæla, b-lið, Dal
vík.
Liðið úr Öngulsstaðahreppi
þótti sýna beztan leik og vann
réttlátan sigur, skoraði það sam
tals 12 mörk gegn aðeins 1.
Magnúsar Torfasonar, sem er
meter frá honum, Magnús vipp
ar knettinum laglega upp í
hægra horn marksins og skor-
ar. Leikurinn jafnast nú við,
þetta mark og sótt er á báða
vegu og eru Akureyringar mjög
ágengir síðustu mínúturnar en
ekkert mark er skorað og end-
ar leikurinn 1:1.
Ævar Jónsson og Skúli
Ágústsson léku nú ekki með lið
inu, voru báðir forfallaðir. Jón
Friðriksson meiddist um miðj-
an fyrli hálfleik og kom Jón
Stefánsson í hans stað. Einn ný
liði lék nú með liðinu, Gunnar
Austfjörð, sem lék vinstri bak-
vörð-ogdofar hann góðu. Akur-
eyrarliðið var í heild samstillt
p ,- , ---- .—, rr-
og var mkill baráttuvilji í lið-
inu.
Keflvíkingar mættu nú með
sitt sterkasta lið og bar þar
mest á Magnúsi Torfasyni
hægri framverði.
Grétar Norðfjörð dæmdi leik
inn og gerði það nokkuð vel.
■ 'i w M'f* " x-
■■ -.J u.rlW #:
• I - r »««••»
r tr' -* * “
Knattspyrnumót
drengja
UMSE gekkst fyrir hraðkeppnis
móti drengja í knattspyrnu 28.
f. m. að Árskógi. 4 lið tóku þátt
í mótinu og varð röð þeirra
þessi:
Sigurvegarar urðu drengir úr
Umf. Ski-iðuhrepps. 2. lið frá
Umf. Ársól," Árroðinn. 3. Umf.
Reynir og 4. drengir úr Umf.
Svarfdæla á Dalvik.
KNATTSPYRNUMÓT
UMSE
HÉRAÐSMÓT UMSE í knatt-
spyrnu hófst fyrir skömmu og
taka sex lið þátt í því. Staðan
í mótinu er þessi:
Umf. Reynir 5 stig.
Umf. Ársól, .Árroðinn 4 stig.
Umf. Framtíð 2 stig.
Umf. Dagsbrún, Öxndæla 2 s.
Umf. Svarfdæla 2 stig.
Umf. Skriðuhrepps 1 stig.
Þess skal getið að liðin hafa
ekki öll leikið jafn marga leiki.
Valur vann Akranes.
Síðastliðinn sunnudag léku
Valur og Akranes á Laugardals
vellinum og vann Valur 1:0. og
var markið skorað í seinni hálf
leik. J. S.
AKUREYRARMÓT
í KNATTSPYRNU
tTtVEIR leikir hafa nú farið
fram í Akureyrarmóti í
knattspyrnu. í fyrri viku fóru
fram leikir í 4. og 5. flokki. KA
sigraði Þór í 4. flokki með 3
mörkum gegn engu. í 5. flokki
varð jafntefli 1:1. Leikurinn í 5.
flokki var leikinn aftur í fyrra-
kvöld og sigraði KA þá með 3:0.
Unga Akureyri
i SM hefur borizt blaðið Unga
-íA-T-l- Akureyri^ r upplýsingarit
um æskulýðsstarfsemi á Akur-
eyri og er það géfið út af Æsku
lýðsráði Akureyrar og er þetta
þriðji árgangur ritsins. Ritið er
smekklegt og er það unnið í
Valprent h.f.
Efni blaðsins hefst á athygl-
isverðu ávarpi eftir Friðjón
Skarphéðinsson bæjarfógeta,
þá er birt skrá yfir námskeið á
vegum æskulýðsráðs á síðasta
vetri. Kynning er á vinabæjum
Akureyrar á Norðurlöndum.
Upplýsingar um æskulýðsfélög
í bænum og önnur félög, er í
þágu æskulýðs starfa. Einnig
prýða blaðið fjöldi mynda.
REYKHÚSIÐ VIÐ NORÐURGÖTU 2B
Akureyri, er til sölu
Kauptilboð sendist fyrir 15. þ. m. undirrituðum í
Reykliúsið, sími 1-12-97, sem gefur nánari upplýs-
ingar.
Akureyri 9. ágúst 1966.
- ■ ■' >.r. F. h. H. S. H.
Finnbogi.Bjamason.
- SKIPULAGNINGAR ÞÖRF
4 - •■* |
„Með tilliti£tihþeirrar óvissu,
sem nú er fyrir hendi í kaup-
gjaldsmólum almennt og verð-
lagsmálum landbúnaðarins sam
þykkir fundiirinn'að freSta störf
um þegar lokið er afgreiðslu
þeirra mála, sem fyrir liggja,
og felur stjórn -sambandsins að
boða til frámhaldsaðalfundar
fyrir miðjan npvenjber næst-
komandi.“ —
« - ... -—-- ■— ■ -
EGILL ÞÓRLÁKSSON
Minning
(Framhald af blaðsíðu 5)
og þakka honum, — hljóðum
huga, ef ekki á annan hátt.
Og víst mundi hinn hjarta-
hreini og hjartahlýi vinur okk-
ar vilja þakka, ef við nú mætt-
um heyra rödd hans, þakka góð
vinum og samferðamönnum,
innan kennarastéttar og utan,
en umfram allt fósturbörnum
sínum og brúði,. sinni, henni,
sem staðið hefir fneð honum í
lífi og starfi, styrk og trúföst, í
full 50 ár.
Blessuð er og verður minning
hans.
Almáttugur Guð varðveiti að
eilífu upprisinn anda hans, leiði
hann fagnandi í æðri átthaga
og hýbýli lífsins og opni hug
hans og hjarta fyrir æ fegri sýn
um hins góða, fagra og sanna.
(Minningarorð flutt af séra
Friðrik A. Friðrikssyni, Hálsi,
Fnjóskadal). ’
(Framhald af blaðsíðu 1)
um málfrelsi á aðalfundi Stétt-
arsambandsins, sem séð hafa í
gegn um áróðursnet „bænda-
flokkanna“ tveggja.
AM birtir hér nokkrar til-
lögur, er fundurinn samþykkti:
„Með því að sýnt er að mjög
skortir á að bændur fái á þessu
ári fullt verðlagsgrundvallar-
verð fyrir framleiðsluvörur sín
ar svo sem þeim þó ber lögum
samkvæmt, felur aðalfundur
Stéttarsambands bænda 1966
stjórn sambandsins að fara þess
á leit við ríkisstjórnina, að hún
leggi fram fé í þetta sinn, er
tryggi bændum það verð fyrir
framleiðsluna, er þeir eiga full-
an rétt á, enda verði að því unn
ið að skipuleggja framleiðslu
landbúnaðarvara með tilliti til
markaðsmöguleika svo sem
unnt er, en til þess hefur bænd
um ekki gefizt ráðrúm.
Bændur eru lægst launaða
stéttin í þjóðfélaginu og sú
tekjuskerðing, sem bíður þeirra
á þessu ári, eins og nú horfir,
er meiri en þeir þola fjárhags-
lega.
Væntir fundurinn þess, að
ríkisvaldið líti með skilningi á
þetta mál og virði hinn ský-
lausa rétt bænda til framlags
hliðstætt því, sem aðrar stéttir
hafa fengið.“