Alþýðumaðurinn - 10.11.1966, Síða 7
- SÓKN TIL SICURS
(Framhald af blaðsíðu 1) til langframa í landinu á friðar
vegna þróunar kaupfélaganna
og telur, að þau hafi brugðizt
skyldum sínum til verðlaekkun
ar á vörum og þjónustu til al-
mennings.
Húsnæðismál
Þingið fagnar þeirri öru og
jákvæðu þróun, er nú og undan
farið hefur átt sér stað í hús-
næðismálum almennings. Þing-
ið telur nauðsyn bera til að
fylgja þeirri þróun fast eftir og
stefna að lækkun bygginga-
kostnaðarins með nýrri tækni,
fjöldaframleiðslu íbúða og end-
urskoðun ákvæðisVinnutaxta —
og betri nýtingu fjármagns þess,
sem til bygginganna er varið,
m. a. með eflingu byggingarfé-
laga verkamanna og byggingar
samvinnufélaga, sem og höml-
um og útrýmingu á því taum-
lausa braski, er nú á sér stað í
húsnæðismálunum. Þingið for-
dæmir hið svívirðilega brask á
íbúðarhúsnæði almennings, sem
fram fer hemjulaust, og krefst
þess að gripið verði strax í
taumana.
Þingið leggur áherzlu á, að
unnið verði öfluglega að útrým
ingu lélegs og heilsuspillandi
húsnæðis í landinu.
Menntamál
Þingið fagnar eflingu mennta
og menningar í landinu, en tel-
ur, að enn verði að herða róð-
urinn. Þingið leggur áherzlu á,
að beitt verði nýtízku tækni og
aðferðum við kerinslu, kennur-
um og nemendum verði búinn
góður aðbúnaður við námið og
laun kennara verði svo góð, að
hæfustu menn séu jafnan fáan-
legir til kennslu. Þingið telur,
að fagna beri hinni nýju iðn-
fræðslulöggjöf og auknum
námsstyrkjum til þeirra, er
stunda langskólanám. Þingið
fagnar íslenzku. sjónvarpi og
væntir þess, að öfluglega verði
að því irnnið, að það nái innan
skamms til landsins alls. Þingið
-leggur til að skólasjónvarp, er
nái til landsins alls, verði stofn
sett hið fyrsta. Þingið telur
brýna nauðsyn bera til að
hindra frekari misnotkun félags
heimila í sveitum landsins en
gera þau í staðinn að heilbrigð-
um samkomustöðum fólksins í
landinu.
Utanríkismál
Þingið lýsir ángæju sinni yfir
farsælli meðferð utanríkismála
nú og fyrr. Það lýsir yfir ein-
drengnum stuðningi sínum við
norræna samyinnu og telur, að
;: Islendingum beri að ástunda
|;|í ■ vinsamleg samskipti við allar
þjóðir. Þingið lýsir yfir stunðn-
ingi sínum við starfrækslu At-
lantshafsbandalagsins en telur
óviðunandi að erlendur her sé
tímum. Þingið telur að sendi-
nefnd landsins á Allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna eigi að
greiða atkvæði með aðild kín-
verska alþýðulýðveldisins að
samtökum Sameinuðu þjóð-
anna. Þingið harmar styrjöld
þá, sem nú geisar í Vietnam og
fordæmir íhlutun utanaðkom-
andi ríkja. Þingið fordæmir
kúgun þá og ofbeldi sem ýmsar
þjóðir og þjóðaminnihlutar eru
beittir. Þingið telur, að ísland
eigi að taka upp öflugan stuðn-
ing við þróunarlöndin og skor-
ar á ríkisdtjórnina að leggja
fram frumvarp á Alþingi um
stofnun þróunarsjóðs til stuðn-
ings við þróunarlöndin, er í
renni, eftir nokkurt árabil 1%
af verðmæti þjóðarframleiðsl-
unnar.
Ályktanir:
21. þing SUJ skorar á félags-
málaráðherra að láta fram fara
athugun á því, hvort unnt sé að
stofna lánadeild heimilisstofn-
unar innan vébanda Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins.
Þingið ályktar að skora á rík
isstjórn og Alþingi að beita sér
fyrir því, að iðnnemar fái aðild
að viðbótarlánum húsnæðis-
málastjómar, þeim er verka-
lýðsfélögin náðu fram með
samningum á sínum tíma. Tel-
ur þingið það mjög athugandi
að veita þessum yngstu laun-
þegum hærri viðbótarlán en
meðlimir verkalýðsfélaganna fá
nú.
Bendir þingið á, að iðnnemar
búa nú við ein lökustu launa-
kjör hér á landi. Telja má alls
ógerlegt fyrir svo lágt launaða
stétt sem iðnnemar eru, að
keppa um íbúðir á leigumark-
aði með uppsprengdu verði.
Skorar þingið því á hlutaðeig-
andi aðila að hraða afgreiðslu
þessa máls sem mest má verða.
21. þing SUJ
telur nauðsynlegt, að eðlileg
endurnýjun eigi sér jafnan stað
í röðum þeirra, sem til opin-
berra trúnaðarstarfa veljast af
hálfu Alþýðuflokksins. Því tel-
ur þingið, að eðlilegt sé, að
ungir, hæfir menn verði í rík-
um mæli frambjóðendur flokks
ins við 'væntanlegar alþingis-
kosningar. Það bendir á, að
þingflokkur Alþýðuflokksins á
Alþingi hefur oft haft einna
lægstan meðalaldur þingflokk-
anna, og þá farnast vel. Það
væntir því þess, að í komandi
kosningum verði kjömir til
þingsetu fyrir Alþýðuflokkinn
fleiri ungir menn.
21. þing SUJ
lýsir yfir stuðningi sínum við
hugsjónir um bindandi áfengis-
og tóbaksnotkun. Þingið harm-
ar áhrifaleysi þessarar hugsjón
ar og skorar á stjórnmálaflokk-
ana og verkalýðshreyfinguna
að gefa hinum jákvæða mál-
stað betri gaum og meiri stuðn
ing en verið hefur til þessa.
Þingið fordæmir þá auglýsinga
herferð sem seljendur og um-
boðsmenn tóbaksframleiðenda
hér á landi reka til þess að fá
fleiri til að neyta þess. Krefst
þingið þess, að tóbaksauglýs-
ingar verði bannaðar.
21. þing SUJ
fordæmir þau miklu tollsvik,
sem nú tíðkast og tíðkast hafa
um langt skeið. Þingið krefst,
að þegar verði leitað allra ráða
til að fyrirbyggja smygl á alls
konar varningi til landsins.
Þingið telur að ófremdarástand
hafi svo lengi ríkt í þeim efn-
um, að ekki verði lengur við
unað. Það krefst því styrkra ög
undanbragðslausra ráðstafana
gegn smyglinu.
21. þing SUJ
fordæmir öll þau svívirðilegu
skattsvik, sem viðhöfð eru í
þjóðfélaginu. Þingið krefst þess
að skattalögreglan verði efld
svo, að unnt verði að uppræta
skattsvik með öllu.
21. þing SUJ
mótmælir þeirri tilhneigingu,
sem á sér svo víða stað í þjóðfé
laginu, að völdum og trúnaðar-
störfum er safnað í hendur ör-
fárra manna. Þingið mótmælir
og Varar við þessari valdasam-
söfnun og krefst þess, að trún-
aði og valdi sé jafnan dreift í
eðlilegum mæli meðal þegn-
anna.
21. þing SUJ
mótmælir og yarar við þyí, að
ýmsar' Öflugar þjóðfélagsstofn-
anir og embaettismenn í háurn
trúnaðarstöðum nái í sínar
hendur æ meir af því valdi, sem
þjóðin hefur fengið í hendur
Alþingi og alþingismönnum og
öðrum kjörnum trúnaðarmönn
um. Telur þingið þróun þessara
mála hina alvarlegustu og hvet
ur þingmenn og aðra til að
spyrna við fótum.
21. þing SUJ
telur ástand heilhrigðismála í
landinu svo ábótavant, að ekki
megi lengur dragast að hefjast
handa um verulegar umbætur
og nýskipan þeirra mála. Telur
þingið nauðsynlegt að mál þessi
verði tekin fastari tökum en nú
er gert. Þingið skorar á Alþýðu
flokkinn og ríkisstjórnina að
koma til leiðar brýnum og nauð
synlegum úrbótum í því efni.
21. þing SUJ
harmar þá fálmkenndu stjórn,
er verið hefur á dómsmálum í
landinu síðustu árin. Þingið tel
ur mikla þörf á algjörri nýskip
an þessara mála og skorár á A1
þýðuflokkinn og ríkisstjómina
að beita sér fyrir henni.
21. þing SUJ
lýsir enn sem fyrr yfir eindregn
um stuðningi sínum við þá
stefnu að kosningaréttur og
kjörgengi verði miðað við 18
ára aldur. Þingið skorar á Al-
þýðuflokkinn og ríkisstjórnina
að hrinda þessu máli í fr^im-
kvæmd og æsku landsins að
fylkja sér til baráttu fyrir fram
gangi þess.
21. þing SUJ
telur deilur þær, er nú geisa og
geisað hafa í samtökum komm
únista og lagsbræðra þeirra hér
á landi, sanni, að stefnt hafi
verið í ranga átt með klofningi
verkalýðssamtakanna og Al-
þýðuflokksins áriri 1930, 1938
og 1956. Það skorar því á alla
lýðræðissinnaða . vinstriménn,
einkum þó hið yngra fóík, að
flykja sér í raðir AlþýðuflóSks
ins, er nú stendur heill og
óskiptur sem sterkasti yinstri-
flokkur landsins.
Akureyrarskáld kveða
(Framhald af blaðsíðu 5)
mótuðust eru af íslenzkum
bragreglum. í 5. kaflanum
„Minni“ eru t. d. kyngimögnuð
eftirmæli um Hall Haraldsson.
Þar er þessa vísu að finna.
Hvort er sem þinn anda uggi
illt, þó drífu niður muggi,
muni fátt, sem hjálpi, huggi,
hættur steðji að?
Hugar — raunir hann ber
nógar,
heill, sem gengur ei til skógar.
hvekkta sál við hnjaski ógar,
hvarlar stað úr stað.
Ég vil að lokum þakka K. f.
D. fyrir þær ánægjustundir,
sem ég hef notið við lestur bók
ar hans. Og meðan slíkir vor-
menn vaka, þarf íslenzka þjóð-'
in ekki að leita sér ljóða utan
landsteinanna. S. A. F.
Þökkum inniiega auðsýnda samúð og hjálp vegna
andláts og jarðarfarar
BENEDIKTS ÞORLEIFSSONAR,
Bitrugerði.
Laufey Vilhjálmsdóttir,
Hulda Benediktsdóttir, Sigurjón Benediktsson.
s •
WEED
SNJÓKEÐJUR
margar stærðir
á fólksbíla og vörubíla.
ÞVERBÖND
LÁSAR
KRÓKAR
KEÐJUTENGUR
HJÓLBARÐAR
520x13, kr. 759.00
750x14, kr. 1175.00
670x15, kr. 1154.00
640x15, kr. 1115.00
550x16, kr. 1224.00
670x16, kr. 1843.00
700x16, kr. 1669.00
750x16, kr. 3550.00
700x20, kr. 2901.00
900x20, kr. 5665.00
1000x20, kr. 6991.00
1000x20, kr. 8035.00
1100x20, kr. 8309.00
BÍLASALAN H.F.
Glerárgötu 24
Sími 1-17-49
NÝK0MIÐ:
Telpuskór
Drengjaskór
Inniskór barna
Inniskór kvenna
SKÓBÚÐ
BÍLASALA HÖSKULDAR
Volkswagen, árg. 1966
Volkswagen 1500, árg. ’65
Greiðsluskilmálar.
Moskvits, árg. 1966,
verð kr. 125 þús.
Ford Bronco, árg. 1966
Ford Zephyr, árg. 1955
Skipti á nýrri bíl
Volga, árg. 1958,
verð kr. 40 þús.
Útborgun 10—15 þús.
o. m. m. fl.
Einnig Ford Trader,
árg. 1963, hægt að taka
ódýrari bíl upp í.
BÍLASALA HÖSKULDAR
Túngötu 2, sími 11909