Alþýðumaðurinn - 10.11.1966, Síða 8
Fögur sýning Iistakonu
Frú Sigrún Jónsdóttir og fagrir kirkjumunir hennar.
IÞESSARI VIKU hefir frú
Sigrún Jónsdóttir kynnt Ak
ureyringum all sérstæð lista-
verk unnin úr batik og er sýn-
ing hennar fyrsta sinnar teg-
undar hér á Norðurlandi.
Frú Sigrún er landsþekkt fyr
ir listmuni sína og Akureyring
um áður að góðu kunn, því að
hátíðahökullinn I Akureyrar-
kirkju er verk frú Sigrúnar, en
einmitt fyrir það fagra verk
eða teikningu af listaverkinu
hlaut Sigrún verðlaun fyrir í
Svíþjóð, er hún dvaldist þar
við nám.
Batikskreytingar er forn
AM veif a§
Akureyring-
ar munu
hjálpa henni
austurlenzk listgrein, sem nú er
mjög að ryðja sér til rúms á
Vesturlöndum og er frú Sigrún
brautryðjandi þessarar list-
greinar hér á landi.
AM þakkar frú Sigrúnu fyrir
komuna norður og hefur blaðið
sannfrétt að sýning hennar hef
ur vakið mikla athygli bæjar-
búa. Einnig vill blaðið þakka
frú Þóru Sigfúsdóttur kaup-
konu fyrir forgöngu liennar að
þessari sýningu.
í stuttu viðtali er AM átti við
frú Sigrúnu bað hún blaðið að
færa sérstakar þakkir Jóhanni
ívESSI fallega stúlka heilir Helga Einarsdóttir og á heima
í Álfabyggð 8 á Akureyri. Hún er 11 ára og hefur aldrei
gengið heil til skógar. Hefur hún þjáðst af nýrnasjúkdóm
frá fæðingu. Til þess að lmn fái fulla bót meina sinna, þarf
liún að ganga undir uppskurð, sem eklti er hægt að fram-
kvæma hérlendis enn scm komið er. Það er búið að tryggja
Helgu litlu sjúkrahússvist í New York, þar sem færustu
læknar munu annast uppskurðinn, en slíkt kostar offjár
eða nálægt 200.000.00 kr., en hjónin í Álfabyggð 8 eru engir
milljónamæringar. Því vill AM heils liugar þakka frainlag
Varöar, félags ungra Sjálfstæðismanna, er þegar hefur gefið
15.000.00 kr. til hjálpar Helgu, og jafnframt vill blaðið minna
Akureyringa á að taka vel á móti sendimönnum Lions-
klúbbsins Hugins, er hjóða mun ljósaperur til sölu n. k.
sunnudag til hjálpar Ilelgu. Akureyringar!. Hver pera, sem
þið - kaupið af Lionsklúbbnum Húginn stuðlar að því, að '
Helga,. fallega telpan í Álfabyggð 8, nái fullri heilsu. AM
þakkar Lionsklúbbnum Iluginn og stjórnmájáféláginu Verði
fyrir veittán stuðriing Helgu til handa og veit að allir Ak-
ureyringar muni stuðla að því, að Helga litla nái fullri
heilsu og muni því kaupa ljósaperur Lionsklúbbsms Hug-
ins n . k. sunnudag. í trausti á Akureýringa óskar AM Helgu
litlu góðs bata.
Ljósm.: N. H.
Ingimarssyni forstjóra, frú
Þóru Sigfúsdóttur og Zonta-
klúbb Akureyrar fyrir ómetan-
lega fyrirgreiðslu í sambandi
við sýninguna.
=s
Flugvöllurinn á Rauf-
arhöfn tekinn i notkun
ÞÁNN 7. þ. m. hófst áætlunar
flug til Raufarhafnar og var
þá hinn nýi flugvöllur þar form
lega tekinn í notkun. Verður
flogið þangað 2 daga í viku. Á
mánudögum um Akureyri í
báðum leiðum og á fimmtudög-
um með viðkomu á Húsavík í
báðum leiðum. Hinn nýi flug-
völlur er mjög kærkomin sam-
göngubót fyrir íbúa Raufar-
hafnar.
ALÞYÐUmAÐURINN
XXXVI. árg. — Akureyri, fimmtudaginn 10. nóv. 1966 — 39. tbl.
Inn vigtunarg j aldið
elvki innlieiint
IERÉTTATILKYNNINGUfrá
Framleiðsluráði landbúnað
arins segir að ákveðið hafi ver-
ið að innheimta ekkert af hinu
svokallaða innvigtunargjaldi er
haldið var eftir af útborgunar-
verði á mjólk yfir sumarmán-
úðina. Einnig er tjáð að smjör-
verð eigi að hækka í áföngum,
en þær hækkanir verða greidd-
ar niður úr ríkissjóði, þá er enn
fremur kunngjört að verðmiðl-
unargjaldið á selda mjólk, yfir
mánuðina október, nóvember
og desember lækki úr 30 aurum
niður í 10 aura á hvern lítra.
í téðri skýrslu er greint frá
því, að smjörbirgðir hafi að
mun minnkað frá því um síð-
ustu áramót, en þá voru þær
1168 lestir, en voru 1080 lestir
í lok september.
=000«
Framtalsnefnd Ak.
SAMÞYKKT var á síðasta
bæjarstjórnarfundi að kjósa
5 menn í framtalsnefnd í stað
4 áður. Eftirtaldir voru kjöm-
ir í framtalsnefnd. Aðalmenn:
Gísli Jónsson, Hallur Sigur-
björnsson, Sigurður M. Helga-
son, Sigurður Jóhannesson og
Þorsteinn Jónatansson.
Varamenn: Gunnar H. Kristj
ánsson, Guðmundur Blöndal,
Kolbeinn Helgason, Hjörtur
Eiríksson og Jón Ingimarsson.
Æskulýðsdansleikur að Laugarborg
MYNDIN er frá æskulýðs-
dansleik, sem Ungmenna-:
samband Eyjafjarðar og Sam-
band eyfirzkra kvenna gengust
fyrir í Laugarborg sl. laugar-
dagskvöld. Um 300 manns,
flest úr héraðinu og frá Akur-
eyri sóttu dansleikinn, sem fór
mjög vel frám. Fjórir piltar
voru grunaðir um áfengis-
neyzlu, við athugun viður-
kenndu þeir brot sín og viku
af samkomustað. Að öðru Ieyti
kom ekki til árekstra við sam-
komugesti og sýndi sig nú enn
einu sinni, að þegar komið er
til móts við æskufólkið, með
því að skapa því skilyrði til
_____
menningarlegra skemmtana,
kann það að meta slíka við-
leitni, og virðir yfirleitt þær
reglur sem í gildi eru.
Það var hin v-insæla hljóm-
sveit frá ‘A'kranesi, Dúmbó
sextett og Steini, sem lék fyrir
dansinum, við mikla hrifningu
viðstaddra.