Víðir - 24.11.1928, Side 3
Víðir
6
i
H Gamla Otó wm
Senorita.
Gamanieikur í 7 þáttum.
Aðalhlutverkið Ieikur hin
fagra og glæsilega leik-
kona Bebe Daniels.
Myndin er afar skemtileg
frá upphah til enda.
Sýning á sunnud. kl. 8'/s.
af þessum peningum kr. 2400.00,
Aukavinna við fiskinn alt að 4%
kr. 1200.00 (miðað við kr.
30.000.00 verðmæti).
Gæðamismunur cr áætlaður
af þeim, sem því eru kunnugir,
10% =,kr. 3000.00.
Alls verður þá þessi upphæð,
sem hjer er talin (ef rjett er)
kr. 6600.00.
þó geta þessar tölur breytst
og fer það eftir því, hvað fisk-
urinn er lengi geymdur.
Jeg býst nú við, að þessar
tölur þyki nokkuð öfgakendar.
En þá vil jeg spyrja: Hvers
vegna selja menn þá fisk sinn
undir eins og hann er þur, fyrir
mjög lágt verð, eða í þeim mán-
uðum, júlí og ágúst, þegar verð-
ið er allra lægst? Vegna þess,
að þeir þola ekki rentutapið, og
peningaþörfin rekur á eftir.
Til þess að losna, að meira
eða minna leyti, við þetta Ijár-
tjón, sem þegar er taliþ, þurla
Vestmannaeyingar að selja fisk-
inn fullverkaðan í maí og júní,
en til þess að geta það, þurfa
þeir að eiga þurkhús.
það er eitt af því, sem til-
finnanlega hefur vantað hjer á
undanförnrm árum, og má það
undrum sæta, að það hefur ekki
verið bygt fyrir löngu.
Hafnatfjörður, sem hefur til-
tölulega lítinn útveg, á 4 þurk-
hús og eitt af þeim á togarafje-
lag, sem á þó ekki nema einn
togara, og telur það þurkhúsið
sína arðmesfu eign.
því miður get jeg ekki gefið
upplýsingar um það, hvað þurk-
hús mundi kosta hjer, og ekki
heldur, hvernig það ætti að
byggjast. þó er mjer sagt, að
þau sjeu betri úr timbri en
steini.
Jeg ætla ekki að fjölyrða um
þetta að þessu sinni, en vona,
að mjer íærari og fróðari menn
taki málið til meðferðar og hrindi
því af stað. þess mun engan iðra.
J. ]., Hlíð. ;
Vestmannaeyjar erlendis
í októberhefti tímarits íslands-
vinanna þýsku skrifar forstjóri
fangahússins í Bremen, hr. E.
Sonnemann, um ferð sína til
Vesímannaeyja síðastliðið sumar.
— Dvaldi hann hjer um þriggja
Hreinlætisvörur.
S^votiasápur, Krystalssápa, Dúfusápa, Sólskinssápa, —
Þvottaduft, Persil, FIik-Flak, Hreins Hvítt, Rinso, Gold
Dust, — ííkúrtpúlver, Ata og Wim, Henco og Krystal
sóda. Twink — Lux — Línsterkja (Colman’s) — Borax.
— Fægilögur — Ofnsverta — Taublámi — Skógula —
Skósverta — Handsápur — Skeggsápur — Skeggkrem
— Brillaniine. —
Kaupið þær vörur, sem þjer notið daglega, þar, sem
þær eru ódýrastar. — það er búhnykkur!
Eig'um von á
með s s. Lyra á mánudaginn-
Selsi með lækkuðu verði.
vikna tíma og safnaði drögum
að bók, sem hann er að skrifa
um Vestmannaeyjar. Einkum
rannsakaði hann fnglalífiö og
ték margar frábærar fuglamyndir.
Fór hann hjer um öll fjöll og
tók þátt í úteyjaferð til eggja.—
Segir hann mjög skemtilega frá
þessu í grein sinni. Einkum er
fróðlegur meginkafli ritgerðar-
innar, un« fuglalíf hjer. — það
mun koma flatt upp á marga
sem Sonnemann segir um hraun-
ið. þykir honum það harla fag-
urt og jurtagróðurinn fjölbreytt-
ur, þótt lítill sje. —
Y-firleitt er rjett og vel sagt
frá, fróðleikur töluverður, eink-
um fyrir útlendinga. Viliur og
ranghermi, sem altítt er hjá er-
lendum ferðamönnum, eru ekki
til hjá Sonnemann, nema hvað
einstaka nafn er misritað. Hann
getur bjer ýmlssa manna og fer
sjerstaklega nokkurum vel völd-
um orðum um Gísla Láruseon
og Jóel Eyjóllsson, Sælundi.
Hr. Sonnemann hefur í smíð-
um bók um Vestmannaeyjar,
einkum . fuglalífið hjer. Hefur
hann úrval af ágætum myndum
hjeðan. sem þar eiga að birtast.
það er ekki lítill fengur að
fá Vestmannaeyjalýsingu, á einu
heimsmálanna, eftir jain greinar-
góðan og glöggan rithöfund og
Sonnemann.
Kr. Ól.
K.f. Bjarmi.
Símfregnir.
Erlendar.
Hungursneyð er mikil í Kfna.
12 miljónir manna aðframkomn-
ar. Auk þess hálfsvelta 8 milj.
Uppskerubrestur. Frá Moskva
er símað, að uppskerubrestur
sje á 732000 bændabýlum í
Ukraine. Ráðstjórnin hefur veitt
24 miljónir rúblna til þess að
afstýra neyð. þar af eru ætlaðar
5 miljónir til matvælakaupa handa
börnum.
Vantraust felt. Frá Berlín er
símað, að vantraust frá hægri-
mönnum til Stresemann hafi
verið felt.
Kosningaúrslit. Frá Sydney
er símað, að kosningaúrslitin í
Ástralíu sjeu þau, að stjórnar-
flokkurinn hafi hlotið 49 þing-
sæti. en verkamenn 29.
fnnlendar.
Ritsímasamband er enn ó-
komið við Norðurland vegna
skemdanna í ofviðrinu um sl.
helgi. T. d. eru 80 símstaurar
brotnir á Kjalarnesi.
Útfluttar vörur í október
nerna 14.002.000 gullkrónum. —
Útflutningur alls til 1. nóv. 50.-
667.000 gullkrónum.
Fiskafii var á öllu landinu
377.868 skpd. þ. L nóv. Fisk-
birgðir 77.781 skpd.
Fjársöfnun hefur verið hafin
til þess að koma upp sjómanna-
hæli við höfnina í Reykjavík.
FB.
Frjettir.
Kappskák
stendur nú yfir hjer. Kept er
um skákkonungstign Vestmanna-
eyja. þátttakendur eru þrettán.
#Billard°-kapp.
„Billardklúbburinn", sem svo
nefnist, hefur efnt til kappmóts
í „billard" fyrir fjelaga sína. —
Mótið hófst sl. sunnudag, en
mun ólokið enn.
Nýræktarhugur
hefur verið injög mikill í mönn-
um hjer að undanförnu. Hafa
ótal margir sótt um að fá blett
til ræktunar og hefur Heimaey
þess vegna verið hlutuð niður í
smáskika. — Sá galli er á gjöf
Njarðar, að varla verður þver-
fótað fyrir girðingum og helst
enginn friðlýstur blettur ætlaður
almenningi, nema af skornum
skamti. Eru sumstaðar gadda-
vírsgirðingar settar altof nærri
fjölförnum vegum og gæti tjón
af hlotist, ef bifreiðar, eða önn-
ur farartæki, vltu út af götunum.
Fiskifjelagsdeildarfundur.
í síðastl. viku var hjer á ferð
forseti Fiskifjelagsins, Kristján
Bergsson. Hjelt hann fund með
fiskifjelagsdeildinni „Ljetti® og
Hutíi þar all-langt ærindi um
sjávarútveginn, á víð og dreif.
Nokkurir fleiri téku til máls og
ræddu ýms vandamál þessa um-
svifamikla atvinnuvegar, en eng-
in álýktun var tekin. Nokkrar
fyrirspurnir voru lagðar fyrir
forsetann, sem hann svaraði
greiðlega. — Fundurinn var illa
sóttur.
Skipaferðir.
„Gullfoss" var hjer á mánu-
dag, en gat lítið athafnað sig
sökum óhagstæðs veðurs. Voru
teknar úr honum hjer um 15
smálestir, en 40—50 smái. af
vörum hingað, er eftir urðu, fór
hann rneð til Rvíkur.
Vörur þessar flytur „Suður-
land“ hingað nú um helgina.
„Goðafoss* kom hingað í
morgun.
Tíðin
hefur verið umhleypingasöm
þessa ^viku. — Tvisvar hefur
verið farið til fiskjar. Aflinn að-
allega ýsa.
Eiðisbryggjan.
Framhaid af greininni um hana
kernur í næsta blaði.
íslensk lög.
Nýlega hafa verið „tekin upp“
á grammófónplötur allmörg ís-
lensk lög, sungin af Pjetri A.
Jónssyni, óperusöngvara. — Eru
plötur þessar miklu betri, en
þær er áður hata þekst hjer,
enda teknar með nýrri og betri
aðferð. Plötur þessar fást hjá
Karli Lárussyni, kaupmanni hjetv