Víðir


Víðir - 13.09.1930, Qupperneq 1

Víðir - 13.09.1930, Qupperneq 1
II. árg. Vestmannaeyjum, 13. sept. 1930, 44. tbl. Frú Sigríður Johnsen. Laugafdagínn 30. ág. síðastlið- inn barst sú fregn um bæinn, að ekkjufrú Sigríður Johnsen ftá Vestmannaeyjum hefði látist þá ttnij morguninrt. Nánustu vinum hennar og vandamönnum kom það að vísu ekki á óvart, því um nokkurn undanfarinn tíma hafði hún þjáðst mjög af sjúkdómi þeim, er að lokum dró hana til dauða, en mörgum vina hennar mun þó hafa fundist orðiðskarð fyrir skildi við fráfall hennar, og ekki síst Vestmannaeyirtgum, því þaf hafði hún dvalið mestan hluta æfi sinnar og þar var oftast nœr hugur hennar allur. þar hafði hún um tugi ára eytt starfskröft- um stnum og áunnið sér ást og virðingu allra, sem kyntust henni, og þeir voru margir. Og það var ekki aðeins við heimilisstörf, uppeldi barna sinna og umhyggja fyrir ástvinum sínum, að mikið þótti til starfa hennar og athafna koma, heldur einnig við útgerð og búskap og aðrar framkvæmd* Ir, sem hún rak um langt skeið og lét síg mjög skifta. Hafði hún míkinn hug á umbótum öllum og framkvæmdum og beittistþar að, og ávann sér þar sem ann- arsstaðar traust og virðingu allra, bæði þéirra, er hún áttl yíir að segja og annara meðborgara sinna. En þótt frú Sigríðar sé sakn- að af mörgum, þá er það ekki vegna þess, að hún hafi fallið í blóma lífs síns. Hún var ekki ung kona lengur þótt fiestum mundi sýnast svo fram til bana- legu hennar. Hún var 75 ára og 12 vikum'betur er hún dó, fædd 6. júni 1855 í Papey í Suður- Múlasýslu, en fluttist þaðan að Hofi í Öræfum er hún var tveggja ára gömul, og ólst þ’ar upp. Voru foreldrar hennar þau Árni þór- arinsson, bóndi á Hofi í Öræf- um, af Svínafells- og Skaftafells- ættum Öræfinga, og kona hans Steinun Oddsdóttir frá Búlands- nesi við Berufjörð, Gunnlaugs- sonar lögréttumanns Oddssonar, sama staðar, er var fimti maður frá séra Einari Sigurðssyni í Ey- dölum. Var búnþví af góðu bergi brotin í báðar ættir. Frá Hofi fluttist Sigríður sál. með foreldrum sínum til Vest- mannaeyja þegaf hún var innan við tvítugt, og giftist þar Jó- hanni Jörgen Johnsen, út- Jarðarför móður okkar frú Sigríðar Johnsen fer fram í dag, laugardaginn 13. september og hefst athöfnin að Breiðabliki kl. 3 e. h. Gísli J. Johnsen. Sigfús M. Johnsen. Lárus J. Johnsen. Árni J. Johnsen. vegsbónda, er hélt Kirkjubœjar- jörð í Eyjum, syni Jóhanns John- sen, kaupmanns og Guðfinnu dóttur séra Jóns Austmanns að Ofanleiti í Vestmannaeyjum. Jó- hann mann sinn misti hún frá ungum aonum þeirra árið 1893, og síðari maka sinn, Sigurð Sig- urðsson, misti hún eftir fá ár í sjóinn árið 1911. þegar Jóhann Johnsen maður frú Sigríðar dó, var elsti sonur þeirra, Gísli 12 ára, og varð henni brátt mikill styritur að honum, því hann var flestum ungmennum bráðgjörari. En ekki hefði það verið á allra fœri, að sjá um stórt bú, útgerð og fjöl- ment heimili, oftast um og yfir 20 manns og eitt hið fjölmenn- asta í Vestmannaeyjum, og allra síst einstæðings ekkju með ung börn. Alt fór það þó vel úr hendi frú Sigriðar. Kom sér þar vel framsýnl hennar og framtakssemi elja og atorka. Má svo heita að hún hafi ein orðið að annast upp- eldi sona sinna og koma þeimttl manns, og hversu vel það hefur tekist, sýnir best dugnað hennar og kyngæði. En hún var meira en stjórnandi atvinnufyrirtækja sinna og húsraóðir á heimilinu. Hún var vinur starfsfólks síns og heimilisfólks, ráðgjafi þess og vel- unnari. Frú Sigríður Johnsen var fríð kona sýnum, tíguleg í vexti og höfðingleg á svip. Hafði hún þá fegurð til að bera, sem fyrst vek- ur athygli og lengst liíir í minni, bjart hörund hreint og farðalaust. Minnist eg þess, er eg sá hana fyrst og þá roskna að aldri, hve glæsileg mér þótti hún sýnum. Hún var greind kona og ræðin, og skemtileg í tali, minnug og fróð um íslenska háttu og hagi. Trúhneigð var hún, gestrisin og trygg vinum sínum; stilt mjög r lund og róleg og prúð t fram- komu. Verkhög var húnmeð af- brigðum og listfeng, og kunni alskonar vefnað, fóskap oghann- yrðir, svo orð fór af, og féll aldr- ei verk úr hendi. Munu og marg- ar af stúlkum þeim, er hjá henni voru, hafa notið góðs af og lært meira á heimili hennar en víða annarstaðar. Synir frú Sigrfðar eru þeir Gísli konsúll, hinn þekti athafna- tnaður frá Vestmannaeyjum, nú búsettur í Túngötu 18 hér í bæ Lárus, hollenskur vicekonsúll í Vestmannaeyjum, Sigfús, stjórn- arráðafulltrúi og hæstaréttarritari, Sóleyjargötu 7 í Reykjavík, Guðni kaupm. og útvegsbóndi í Ásbyrgi i Vestmannaeyjum, dáinn 1921, Árnl, bóndi og verslunarm. og Jóhann Slgurðsson teiknari í Ameriku. Allmörg síðustu ár æfl sinnar var Slgríður sál. hjá Gísla syni sínum og naut góðrar umönnun- ar og aðhlynningar sonar síns og tengdadóttur. Síðasta árið lá hún að mestu rúmföst. H. Mlnningarorð þessi eru tekin upp úr Morgunblaðinu 10. sept. 1930 og þykir réttast að prenta þau hér, því öllum þeim er þektu þessa prýðiskonu, sem bjó hér í Eyjum mestan hluta æfi sinnar munu geta tekið undir það sem þar er sagt, enda var hún með- al merkustu og mætustu kvenna í þessu bygðarlagi. Lík hennar var flutt hingað með e.s. íslandinu frá Reykjavík 11. þ. m. og er jarðsungið hér í dag. Býður Eyjan hana velkomna í skaut sitt. Lítil athugasemd. í 39. tbl. »Víðis« tilkynti Kolká læknir að hann mundi svars grein- um mínum, þeim er staðið höfðu i 37—39. blaði »Viðis“,

x

Víðir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.