Víðir


Víðir - 08.12.1951, Page 4

Víðir - 08.12.1951, Page 4
Þeir, sem vilja fylgjast vel með, lesa V í Ð I. j—; 1 V í ÐIR flytur efni, sem ekki er annars staSar. TíSin hefur verið stirð þessa viku til sjávarins, og lítið verið um róðra. Togbátarnir haí'a ekki komizt út neitt að gagni og orðið að koma inn strax aftur, þá sjaldan að útskot hefur verið. I?að hefur \rerið norðan og norðaustan átt, og stundum mjög hvasst með nokkru frosti og bylkófi annað slagið. Afli, það sem hann hefur verið, hefur verið hjá línubátunum, 2—Sl/> lest í róðri. Með línu eru 5 bátar. Afli einstaka róðra: Kári Sölmundarson ?>V-> lest, Svan- ur 3 lestir, Guðmundur Þor- lákur 3 lestir og Víðir (úti- legubátur) 8% lest. Afli er alltaf lítill í Bugt- inni um þetta leyti. Togararnir. Tíðin hefur verið mjög slæm hjá togurunum þessa viku, stormasamt. Og afla- briigðin hafa verið eftir því, mjög treg, þó að einstaka skip hafi sett í sæmilegan fisk. Hins vegar hafa togarar þeir, sein liafa veríð á karfaveið- um, fengið sæmilegan afla, þó að tíðin hafi einnig hamlað veiðum þeirra. Flestir togárarnir eru fyrir vestan eins og vant er. Þeir, sem eru á karfaveiðunum, eru dýpra út af Breiðubugtinni og Víkurálnum. Isfisktogar- arnir eru yfirleitt 40—50 míl- úr — 4 tíma siglingu —, frá landi, beint út. Af þessum miðum eru þeir 17 tíma til Reykjavíkur. Við Grænland eru .2 togar- ar á veiðum, Ingótfur Arnar- son og Karlsefni, og það sem frétzt hefur af þeim, þá er afli góður, 450—500 kítt á sólarhring, eins og hjá þeim Neptúnusi og Marz, sem eru nýbúnir að vera þar, og eru á heimleið frá sölu í Englandi. Ekki hefur heyrzt, hvort þeir fara aftur. Isrek getur nú ver- ið mikið við Grænland, úr því þessi tími er koininn. Að sjálf- sögðu er það freistandi að stunda þessar veiðar eins og frekast er hægt, þar sem afla- magnið er svona mikið, en hálfgerð ördeyða á heimamið- um. Markaður hefur verið á- tætur í Englandi þessa \'iku, 3—SJ/> sterlingspund fyrir kíttið, og Fylkir komizt upp í tæp 4 pund fyrir kíttið, sem er ofsalega hátt verð, cftir því sem um getur verið að ræða. Togararnir, Jón Baldvins- son og Ilranus, komu hingað með afla sinn og lögðu hann upp í frystihús. Voru það við 200 lestir hjá hvoru skipi, mest karfi. Vestmannaeyjar. Enginn bátur hefur farið á sjó alla vikúna, nema einn bátur, sem fór rétt austur fyrir Eyjar til þess að af- skeina. Fékk hann engan afla. Otíð hefur verið og ekki hægt að komast á sjó. Á mánudagskvöldið kom nýr bátur til Eyja, Erlingur III., eign Sighvatar Bjarna- sonar, skipstjóra. Varð hann að liggja af ser veður við Shetlandseyjar. Hann fékk vont veður yfir hafið, og reyndist báturinn prýðisvel í alla staði. Dettifoss hefur verið að taka hraðfrystan fisk og fiski- mjöl og önnur skip lýsi og síld. Grindavík. Tveir bátar róa með Hnu, en lítið hefur gefið þessa viku. Og þá sjaldan á sjó liefur gef- ið, hefur afli verið tregur. Tveir bátar voru búnir að taka aftur um borð síldarnet- in, en þeir hafa ekkert fengið, þegar þeir hafa komizt út. Halda menn, að síklin sé far- in aftur. Annars er ekkcrt um að vera. Talsverðum snjó hefur kyngt niður, alltaf fet djúp- um. I fyrravetur var meiri snjór í Grindavík en komið hafði í manna minnum. Sandgerði. Tíðin hefur verið umhleyp- inga- og stormasöm þessa viku, þó hefur tvisvar verið komizt á sjó með reknetin, en veiðin var engin. Síðast þegar reknetabát- arnir fóru út, var dauðalegt að sjá, og eru menn heldur vondaufir, að síldveiðin ætli að verða meiri en orðið er. Einu sinni hefur verið róið með línu, og var afli sama og enginn, enda var slæmt sjó- veður. Dragnótabáturinn er hættur. Heldur er dauflegt yfir og fáir farnir að hugsa til vertíð- arinnar, nema hvað menn eru farnir að dytta að bátum sín- um og setja upp veiðarfæri. Menn gera almennt ráð fyrir áð býrja að róa strax upp úr áramótum. Aður fyrr reri bátur og bát- ur með línu, úr því kom fram í miðjan nóvember, og á jóla- föstu var oft góður afli á línu. Var þá oft komin fiskiganga, sem hélzt út janúar. Væri tíð góð, aflaðist þá oft vel. Aldrei var þó almennt róið fvrir ára- mót. Nú lítur út fyrir, að al- veg sé þurr sjór. Keflavík. 1 bátur, Nanna, rær með línu og selur fiskinn til Reykjavíkur í bæinn. Afli hefur verið tregur, 2—3 lestir í róðri. 5 bátar stunda dragnóta- veiðar, en hafa Htið getað ver- ið að, og afli tregur. Þó fengu þeir sumir um 3 lestir af ýsu í róðri fyrri hluta vikunnar. Nokkrir bátar voru bunir að taka síldarnetin aftur um borð og ætluðu að reyna eitt- hvað, þegar síldar varð vart iim daginn. En svo fengu þeir ekkert, og eru nú búnir að taka upp. Keflvíkingur fór á veiðar frá Reykjavík í fyrradag, og mun ætlunin að veiða karfa fyrir frystihúsin. Norskt skip hefur verið að ferma á 10. þús. tunnur af síld til Póllands. HafnarfjörSur. Togarinn Bjarni riddari losaði í vikunni 285 lestir af fiski fyrir frystihúsin, mest karfa, Isólfur um 140 lestir, mest þorsk, og Júlí í gær. Surprise kom í fyrradag frá Englandi og fer á veiðar í dag, jafnvel fyrir frystihúsin, þó að það geti breytzt. 4 bátar róa með línu, og hefur afli verið tregur, um 3 lestir i róðri af öllu saman. Nokkrir bátar eru enn með reknetin, en hafa ekkert feng- ið upp á síðkastið. Akranes. Línubátarnir 3, sem róðra stunda, gátu ekki róið frá því á sunnudag og þangað til í fyrradag. Fengu þeir 3—4 lestir. Síldarbátarnir eru allir hættir a'. m. k. í bili. Jökulfellið er nýbúið að hreinsa upp allan Ameríku- fisk hjá Sambandshúsinu þar, og Vatnajökull hefur verið þessa dagana að ferma hjá SH-húsunum allt, sem þar var af Ameríkufiski, um 30.- 000 kassa. Bjarni Olafsson hefur verið í ketilhreinsun. Bæjarútgerð Akraness hef- ur nú keypt megnið af hluta- bréfum togarafélags þess, er á Akurey, og fór skipið á veið- ar fyrra föstudag og leggur afla sinn á land á Akranesi til vinnslu í frystihúsunum. Skipið verður a. m. k. fyrst um sinn skráð í Reykjavík og skipshöfn þaðan. Nýtt frystihús á Siglufirði? Eftir því sem skýrt er frá í Siglufjarðarblaði, hefur stjórn Síldarverksmiðja ríkis- ins samþykkt með öllum greiddum atkvæðum að leggja til, að stórt hraðfrystihús verði reist á Siglufirði og jafnframt, að ríkisstjórnin aflaði nauðsynlegra lagaheim- ilda til þess. Stjórn Síldarverksmiðjanna setti þau skilyrði fyrir að mæla með byggingunni, að báðir bæjartogararnir láti hraðfrystihúsið sitja fvrir öll- um ísfiski, sem lagður er á land hérlendis, og að annar togarinn fislci ávallt fyrir hraðfrystihúsið, þegar fleiri en tveir nýsköpunartogarar fiska fyrir hraðfrystihús ann- ars staðar á landinu, a. m. k. annar 'bæjartogaranna leggi upp afla hjá Síldarverksmiðj- um ríkisins, þegar þeir fiska í bræðslu, þó er þar undan- skilin snyrpinótaveiði. Gert er ráð fyrir, að frysti- húsið geti framleitt 15—20 lestir af flökum miðað við 12 stunda írystingu. Hugmvndin mun vera að koma frystihús- inu fyrir í einni af mjöl- skemmum verksmiðjanna. Er áætlað, að húsið kosti upp- komið 4 miljónir króna, og er þá innifalið í því mjölskemm- an. Verður málið væntanlega lagt fvrir þingið, áður en því verður slitið, og þá sennilega lagt til, að ríkið láni verk- smiðjunum 3 milj. króna and- virði hússins annað en mjöl- skemmuna, sem er talin 1 mil jónar króna virði. Á Siglufirði eru fyrir tvö fiskfrystihús og eitt síldar- frystihús og síldar- og fiski- mjölsverksmiðja er bærinn á. Stórt fyrirtæki. Bæjarútgerð Reykjavíkur er nú að verða eitthvert stærsta fvrirtæki í landinu. Á útgerðin nú 7 skip og það 8. rétt ókomið. Ef gert er ráð fyrir 3Y>—4Y> milj. króna veltu á skip, nemur ársveltan um 32 milj. króna. Við út- gerðina vinna sjálfsagt ekki færri en 300 manns fastráðn- ir, þegar öll skipin eru komin, fyrir utan það fólk, sem kann að vinna við saltfiskinn, þeg- ar um það er að ræða, en Bæjarútgerðin á mikla fisk- þurrkunarstöð. Gömlu togararnir. JÚpíter, sem Tryggvi O- feigsson átti, stendur nú uppi í slipp og víst að því kominn að fara niður. Hefur verið sett í hann olíukynding, og fer liann til Þingeyrar. Þá er togarinn Gyllir við Ægisgarðinn, og er verið að setja í hann olíukyndingu. Gyllir var eða er enn eign Kveldúlfs h.f., og mun hann eiga að fara til Flateyrar, þeg- ar viðgerðinni er lokið. Bátakaup Eyjamanna. V estmannaeyingar hafa keypt 3 báta frá Danmörku í ár og 1 frá Færeyjum. Nú eru þeir að kaupa 3 báta hér, og verðiir Steingrímur á Kirkjulandi með einn, Sig- urbjörn frá Grund með ann- an og Sveinbjörn frá Geithálsi með þann þriðja. Sagt er, að fleiri séu í undirbúningi nieð bátakaup. Yeiðar Norðmanna við Grænland. Norðmenn segja, að það þurfi bæði dugmikla sjómenn og vel útbúin skip til þess að stunda veiðar við' Grænland, því að þær séu erfiðar, og sýni annars ekki góðan árang- ur. Línuveiðarnar útheimta of mikla vinnu samanborið við afraksturinn, og verður að stefna að því að breyta yfir til togveiða, sem sýnir áreið- anlega beztan árangur. Þetta er reynsla Norðmanna. í sumar urð'u þeir, sem stunduðu línuveiðar við Grænland, að hafa % meiri útgerð til þess að ná sama ár- angri og í fyrra. Þetta var línuaflinn í ár minni en þá. Erlendu togararnir voru nýtízkuskip, og sýnir það, að aðrar þjóðir (en Norðmenn) kunna að standa að þessum veiðum á réttan hátt. Til þess að' ná nokkrum árangri urð- um við að vinna upp í 18 tíma á sólarhring, og það var erfitt starf. Strax og búið var að fá fullfermi, var haldið til Færeyingahafnar til að losa, og um leið og siðasti fiskur- inn var lcominn upp, var hald- ið af stað aftur, segir norskur skipstjóri. Leiðbeiningar í meSferð dýptarmæla. Norðmenn hafa námskeið í hagnýtingu dýptarmæla, 3 og e. t. v. 4 tegundum, norskum, enskum, amerískum og ef til vill frönskum bergmálsdýpt- armælum. Það er reynsla. Norðmanna, að þeir, sem hafa bergmálsdýptarmæla, hafí ekki eins mikla þekkingu á notagildi þeirra og skyldi. HUNDESTED-MOTOR — hin aflmikla, þýða og ódýra vél. Stærðir 10—360 hestöfl. Undirritaður óskar eftir að gerast áskrifandi að Víði. Nafn .......................................... Heimili ....................................... Póststöð ......................... Til vihublaðsins Víðir, Reykjavík. (Sími 6661).

x

Víðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víðir
https://timarit.is/publication/600

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.