Alþýðumaðurinn - 02.06.1969, Page 2
X»RÓTTIB IÞBOTTIB IÞBOTTIB IÞROTTIR IÞRÓTTIR
Komu með annað stigið iiorður
1:1 urðu lokatölur í leik FRAM og ÍBA í Reykja-
vík á sunnudaginn. - Leikurinn var ekki léleg-
ur, ekki góður, aldrei mjög spennandi, aldrei
mjög daufur.
Á 6. mín. fyrri hálfleiks komst
Framari inn fyrir vörn ÍBA og
tókst að senda boltann í mark-
ið, en var dæmdur rangstæður
sem betur fer fyrir Akureyr-
inga. Annars voru það rang-
stöðurnar sem áttu eftir að
koma ÍBA-liðinu í koll, því í
fyrri hálfleik voru dæmdar 8
rangstöður á Akureyringa og
var það nýliðinn Eyjólfur
Ágústsson sem átti sök á flest-
um þeirra. Merkilegt að átta sig
ekki á þessu í svona 4.—5.
skiptið.
Á 10. mín. gerðu Akureyring-
ar svo sitt mark. Voru það
bræðurnir Eyjólfur og Skúli
sem áttu heiðurinn að því.
Eyjólfur var með boltann út
undir kanti og gefur á Skúla
sem er á hlaupum að markinu
á milli tveggja varnarmanna
Fram og sendir Skúli boltann
viðstöðulaust í netið.
Nokkur spennandi upphlaup
urðu á báða bóga í þessum hálf
leik, en ekki nema þetta eina
mark. f eitt skiptið komst Fram
ari inn fyrir vörnina með knött
inn og átli aðeins eftir Samúel
markvörð, skaut hann á mark
en Samúel hleypur út á réttu
augnabliki og nær að slá bolt-
ann upp fyrir þverslá.
Seinni hálfleikurinn var með
svipuðu sniði og sá fyrri. Mark
Fram bar til með þeim hætti,
að þeir fengu aukaspyrnu mitt
á milli hliðarlínu og markteigs.
Spyrnt var í þvöguna sem
myndaðist við markið og gekk
boltinn þar „haus af haus“ unz
Anton Bjarnason (bakvörður)
skallaði hann í netið.
Undir lokin tóku svo Akur-
Bermuda-liðið kemur ekki norður
Á SL. hausti var KRA boðið að
fá lið Bermuda til að leika fyr-
ir norðan, við komu liðsins til
landsins í sumar. Að sjálfsögðu
urðu Akureyringar harla glaðir
yfir boði þessu, þar sem mönn-
um er í fersku minni hin
ánægjulega heimsókn Bermuda
manna til Akureyrar 1965.
En þegar menn frá KRA
mættu á KSÍ-þingið í vetur, var
þeim sagt að ekkert gæti orðið
úr því að Bermuda kæmi norð-
ur, vegna þess að liðið hefði svo
skammt viðdvöl hér á landi, og
léki þar af leiðandi ekki nema
- Akureyringar
(Framhald af blaðsíðu 8).
Ytri-Brekkan norðan Þingvalla
strætis og Kaupvangsstrætis
vestan Glerárgötu. Fimmtudag-
inn 12. júní, Syðri-Brekkan og
Innbærinn sunnan Þingvalla-
strætis og Kaupvangsstrætis.
Föstudaginn 13. júní, Oddeyri
austan Glerárgötu.
Nefndin verður til viðtals í
skrifstofu heilbrigðisfulltrúa í
bæjarskrifstofuhúsinu, dagana
9,—13. júní n. k. kl. 14.30—17.00,
sími 21000.
- Endarnir náðu ...
(Framhald af blaðsíðu 8).
ingartillögu fulltrúa Sjálfstæðis
flokksins, en tillaga þeirra var
felld með 7 atkvæðum gegn 4.
En breytingar meirihluta bæjar
ráðs voru samþykktar með 8
atkv., Jakob, Reykjalín, Sigurð-
ur Óli, Arnþór, Þcrvaldur, Jón
Ingimarsson, Jón B. Rögnvalds
son og Ingibjörg. Tveir greiddu
atkv. á móti, Gísli og Sólnes, en
Haukur Haraldsson gi-eiddi
ekki atkvæði.
einn leik og hann í Reykjavík.
En ekki er öll von úti með
erlenda heimsókn norður í sum
ar. Um þessar mundir er verið
að athuga með önnur erlend
knattspyrnulið, ef yfirleitt verð
ur hægt að bjóða nokkru er-
lendu liði til landsins vegna
þess hve óhemju mikið fé þarf
til slíkra heimsókna.
- Þjóðhátíð á Akureyri
(Framhald af blaðsíðu 1)
Kl. 13.10—14.00. — Safnast
verðui' saman í 4 skrúðgöngur,
-gengið á Ráðhústorg, síðan á
íþróttasvæði bæjarins. Kórar
og lúðrasveit aðstoða.
Kl. 14.00. — Hátíðarsamkoma
á íþróttasvæðinu. Meðal atriða:
Helgistund, lýðveldisræða,
minni Jóns Sigurðssonar, ávarp
Fjallkonunnar, söngur, upplest-
ur, skemmtiþáttui', fimleikasýn
ingar, hjólreiðakeppni og fleiri
íþróttir s. s. glímusýning. Lúðra
sveit leikur.
Sunnan við íþróttavöllinn
verður dýrasýning. Barnaleik-
velli verður komið fyrir við
íþróttavöllinn. Vestan við
gömlu lögreglustöðina verða
hestar með reiðtygjum tilafnota
fyrir börn. íslendingar og hafið,
Akureyrardeild, verður komið
upp.
Kl. 20.30. — Samkoma á Ráð-
hústorgi. Meðal atriða: Lúðra-
sveit leikur, kórar syngja, sögu-
sýning, gamanvísur, gamanþátt
ur, loftbelgjum sleppt, dansað
til kl. 2 e. m. Tvær hljómsveitir.
í 17. júní-nefnd eru: Þórodd-
ur Jóhannsson formaður, Jón
Ingimarsson, Siguróli Sigurðs-
son, Óðinn Árnason og Ingólfur
Ármannsson.
eyringar smásprett og „lá mark
ið í loftinu1' en of seint af stað
farið.
Af liði Fram fannst mér eng-
inn skara framúr nema bak-
vörðurinn Anton Bjarnason,
traustur og öruggur leikmaður.
í liði ÍBA fannst mér Gunnar
Austfjörð beztur, annars stóð
vörnin sig vel. En það voru
tengiliðirnir, þeir virtust ekki
vita hvar þeir áttu að vera á
vellinum. Þeir tengdu alls ekki
saman vörn og sókn megnið af
leiknum, vegna þess hvað þeir
lágu aftarlega. En Magnús Jóna
tansson óx með leiknum, og var
kominn í „stuð“ undir lokin.
Framlínan var bitlítil, vant-
aði meira að nota kantana,
nokkuð gamalt vandamál hjá
þessu liði.
Held ég að bæði leikmenn og
áhorfendur hafi verið ánægðir
með úrslitin.
LANDSLIÐIÐ KEMUR NORÐUR
ÁKVEÐIÐ er nú að lands-
liðið í knattspyrnu komi til
Akureyrar og leiki einn leik
við lið ÍBA á fimmtudags-
kvöldið kemur. Verður þetta
fyrsti leikur sumarsins á
grasvcllinum.
Vegna þess hvað blaðið er
snemma á ferðinni þessa vik
una, var ekki liægt að út-
vega nöfn einstakra leik-
manna, hvorki ÍBA né lands
liðsins. Búast má við mikilli
aðsókn á fyrsta leik sumars-
ins, og er í athugun að hafa
forsölu aðgöngumiða til að
forðast þrengsli.
Tvisvar á þessu ári, í marz
og apríl, hafa Iið þessi keppt.
í fyrra skiptið sigraði lands-
liðið en í síðara skiptið ÍBA.
Verður spennandi að viía
livað' skeður í þetta sinn.
Á hverjum mundi það bitna ef
ALBERT SEGIR AF SÉR?
ALBERT Guðmundsson for-
maður KSf hefur hótað að segja
af sér formennsku. Aðal ástæð-
an er sem kunnugt er hin geysi-
lega fjárhagsáhætta sem er því
samfara að fá til landsins erlend
knattspyrnulið til keppni, aðal-
lega vegna hárrar vallarleigu.
Um þetta mál hefur mikið
verið rætt og ritað undanfarið,
og ekki að ástæðulausu.
Allir sem fylgzt hafa með
knattspyrnumálum síðan Al-
bert tók við formennsku KSÍ
vita að hann hefur gert geysi-
legt átak í þessum málum og
mun gera enn meira ef hann
heldur áfram. En ef Albert hætt
ÚTVARPSSKÁKIN: Akureyri - Kópavogur
Hvítt: AKUREYRI.
Svart: KÓPAVOGUR.
Spánski leikurinn.
1. e4, e5; 2. Rgl-f3, Rb8-c6;
3. Bfl-b5, a6; 4. Bb5-a4, Rg8-f6;
5. O-O, b7-b5; 6. Ba4-b3, Bf8-
e7; 7. d2-d4, d7-d6; 8. c2-c3,
O-O; 9. h2-h3, h7-h6; 10. Hfl-
el, Hf8-e8; 11. Rbl-d2, Be7-f8;
12. a2-a3, Bc8-d7; 13. Bb3-c2,
g7-g6; 14. b2-b4, Bf8-g7; 15.
Bcl-b2, Rf6-h5; 16. Rd2-fl,
Rh5-f4; 17. Rfl-e3, g6-g5; 18.
d4xe5, Rc6xe5; 19. Rf3xe5,
Bg7xe5; 20. Re3-g4, Bd7xg4;
21. Ddlxg4, Dd8-f6; 22. g2-g3!,
h6-h5; 23. Dg4-f5, Df6xf5; 24.
c4xf5, Rf4xh3|; 25. Kgl-g2,
g5-g4; 26. Bc2-e4, d6-d5; 27.
Be4xd5, Ha8-d8; 28. Hal-dl,
Be5-f6; 29. Helxe8f, Hd8xe8;
30. Hdl-d2, He8-d8; 31. c3-c4,
Kg8-g7; 32. Bb2xf6f, Kg7xf6;
33. Hd2-c2, Hd8-d6; 34. c4xb5!,
a6xb5; 35. Hc2-c6, Rh3-g5; 36.
Hc6xd6f, c7xd6; 37. Bd5-c6,
Rg5-f3; 38. Bc6xb5, Rf3-elf;
Hvenær fáum við
mótaskrá ÍBA?
ÁRLEGA er meiningin að gefa
út mótaskrá fyrir ÍBA, sem svo
sannarlega er góðra gjalda vert.
En sá er galli á gjöf Njarðar, að
mótaskráin fyrir 1969 er enn
ekki komin út. í fyrra kom skrá
in ekki út fyrr en í júní. Væri
nú til of mikils mælst þótt farið
væri fram á að mótaskrá þessi
færi nú að líta dagsins ljós?
39. Kg2-fl, Rel-c2; 40. Bb5-d3,
Rc2xa3; 41. b4-b5, Kf6-e7; 42.
f5-f6f, Ke7-d7; 43. b5-b6, Kd7-
c6; 44. Bd3-g6!, Kc6xb6; 45.
Bg6xf7, Kb6-c7; 46. Bf7xh5,
Kc7-d8; 47. Bh5xg4, Ra3-c4;
48. Bg4-e6, Rc4-d2f; 49. Kfl-e2,
og svartur gaf skákina.
Syndið
200 METRANA
- HEYRT, SPURT ...
(Framhald af blaðsíðu 7).
bert eða Odd Thorarensen.
Þetta er sem sé alger trúnaður
vinur sæll Sigurjón notar ennþá
brillur frá Helga, en sér orðið
skolli illa með þeini og sökum
þess a ðlýsingin var alveg afleit
hjá Oddi í Nýja Bíói, sá ekki
aumingja Sigurjón almennilega
á handritið — og því varð þetta
bögsulegra lijá honum. Verka-
karl mætti svo sem minnast á
það við Herbert, hvort liann
vildi ekki taka kollega sinn við
AM í nokkra cinkatíma, þar
sem Herbert kenndi lionum
hvernig hann gæti öðlast sjálfs-
traust og sjálfsálit, þó eigi væri
nema um 50% af því sem rit-
stjóri „blaðs sjálfstæðismanna á
Akureyri'* liefir til brunns að
bera.
ir, á hverjum mundi það helzt
bitna? Það mundi að mínum
dómi ekki lenda harðast niður
á Geir borgarstjóra Reykjavík-
ur, heldur íslenzkri knattspyrnu
og knattspyrnumönnum fyrst
og fremst.
Það eru því knattspyrnumenn
um land allt sem mest mundu
sjá eftir Albert ef hann hætti,
en ekki opinberir starfsmenn
Reykjavíkurborgar.
Þar af leiðandi tel ég að hót-
uninni um að segja af sér
mundi lenda niður á röngum
aðila, sem sé íslenzkri knatt-
spyrnu og knattspyrnumönnum,
en ekki öðrum.
Margir fallegir hestar munu
verða sýndir á skeiðvellinum
við Eyjafjarðará. Ljósm.: B. M.
Kappreiðar cg
NÆSTKOMANDI laugardag
heldur hestamannafélagið Létt-
ir kappreiðar og góðhestasýn-
ingu á skeiðvelli félagsins við
Eyjafjarðará. Eflaust fjölmenna
bæði reiðmenn og bæjarbúar á
kappreiðarnar, því að þarna
verða margir góðir gæðingar
sýndir. Foreldrum er bent á að
koma og sýna börnum sínum
fallega hesta, en kappreiðarnar
hefjast kl. 2 e. h.