Alþýðumaðurinn - 04.12.1969, Qupperneq 1
Venlið í sérverzlun.
Það tryggir gæðin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brekkugötu 5 . Sími 12820
ALLT TIL MATARGERÐAR
VERIÐ VELKOMIN
EYRARBÚÐIN - opið til kl. 20.00.
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
PEDROMYNDIR Akureyri
Aðalfundur Alþýðuflokksfél. Akureyrar
ALBERT SÖLVAS0N KJÖRINN F0RMAÐUR
AÐALFTJNDUE Alþýðuílokksfélags Akureyrar var lialdinn sunnu
daginn 23. nóv. sl. Kolbeinn Helgason fráfarandi formaður baðst
cindregið undan formennsku, en liann liefur verið formaður félagsi
ins undanfarin 3 ár. Einnig baðst undan endurkjöri Hallgrímur
Vilhjálmsson, en hann hefur átt sæti í aðalstjórn til fjölda ára.
39. árgangur — Akureyri, finnntudaginn 4. des. 1969 — 28. tölublað
• 111 ii 1111 ■ ■ 111 ■ 111111 ■ ■ ■
fll lllll lllllllll I llllllllllllllllll lllll IIIIIIIIIMIIM 111111111111111111IIIIIIII
Falleg jólakort frá Sjálfsbjörg
i SJÁLFSBJÖRG, félag fatl-
í aðra á Akureyri hefur sent á
i markaðinn snoturt jólakort
| með teikningu eftir sr. BoIIa
i Gústafsson í Laufási, en
I hann gaf félaginu teikning-
i una, sem sýnir jólasvein á
i ferð um Akureyri.
| Kort þessi fást í öllum
i bókabúðum bæjarins og víð
ar. Þati eru og seld í skrif-
stofu félagsins að Bjargi og
verða til sölu á bazar Sjálfs-
bjargar á sunnudaginn kem-
Er þess að vænta, að sem
flestir styðji gott málefni
með því að kaupa jólakort
Sjálfsbjargar.
I MIMMMMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMI
MIIIIIIIIIIIIIIIIIMIMII
opnar
verzlun aS Kaupvangssfr 4
STÁLIÐN er tiltölulega ungt
fyrirtæki hér í bæ og hefur það
til þessa verið þekktast fyrir
framleiðslu sína á nælonhúðuð-
um stálhúsgögnum og hefur
fyrirtækið framleitt slík hús-
gögn fyrir allmargar nýjar stofn
anir í Reykjavík og hafa þau
reynzt mjög vel eftir því sem
blaðið hefur fregnað.
Stáliðn hefur nú opnað nýja
verzlun að Kaupvangsstræti 4
og eru mai-gar tegundir hús-
gagna þar á boðstólum, svo sem
eldhúshúsgögn af mai-gvíslegum
gerðum, skrifstofustólar, barna
borð og margt fleira. Ennfrem-
ur vandað enskt áklæði o. fl.
o. fl. Verzlunin mun verða fyrst
um sinn opin eftir hádegi alla
virka daga.
Framkvæmdastjóri Stáliðnar
er nú Bergur Lárusson.
Fundurinn var haldinn í hinu
nýja félagsheimili að Strand-
götu 9, II háeð. Er hér um vist-
legan fundarsal að ræða — og
hafði Kolbeinn Helgason for-
ystu um þessar framkvæmdir,
en lagtækir félagsmenn unnu
verkið að mestu í sjálfboða-
vinnu og færði formaður þeim
beztu þakkir fyrir. Með hinum
nýja fundarsal bætist mjög
aðstaða jafnaðai-manna á Akur
eyri til aukinnar félagsstarfsemi
en húsnæði hefur mjög háð
starfsemi félagsins til þessa.
Eins og fyrr segir báðust þeir
Kolbeinn Helgason og Hallgrím
ur Vilhjálmsson eindregið und-
an endurkjöri.
SKIPA NÚ AÐALSTJÓRN.
Albert Sölvason formaður,
Þórir Björnsson varaformaður,
Valgarður Haraldsson ritari,
Stefán Snæbjörnsson gjaldkeri
og Sigursveinn Jóhannesson
meðstjórnandi.
VARASTJÓRN: Haukur Har
aldsson, Reynir Ragnarsson og
Karl Friðriksson.
TRÚNAÐARRAÐ, auk aðal-
stjórnar, sem er sjálfkjörin.
Bragi Sigurjónsson, Hallgrím
ur Vilhjálmsson, Haukur Har-
aldsson, Þorvaldur Jónsson, Þor
steinn Svanlaugssoon, Steindór
Steindórsson, Stefán Þórarins-
son, Höskuldur Helgason, Jens
Sumarliðason, Matthías Einars-
son, Kolbeinn Helgason, Reynir
Ragnarsson, Sigurður Halldórs
son, Sigurður Rósmundsson og
Sigurjón Jóhannsson.
TIL VARA: Þórður Björgúlfg
son, Gunnar Steindórsson. Jó-
steinn Konráðsson Tryggvi Har
aldsson, Jón Sigurgeirsson, Sig-
Albert Sölvason.
urður Kristjánsson, Jóhann
Árnason, Georg Tryggvason og
Magnús Aðalbjarnarson.
Að loknu stjórnarkjöri urðu
fjörugar og almennar umræður
um ýmis mál, svo sem bæjar-
málefni, framtíð Alþýðumanns-
ins o. fl. o. fl. Varðandi bæjar-
mál var kjörin sérstök nefnd er
skyldi verða nokkurskonar
tengiliður milli stjómar félags-
ins varðandi málefni bæjarins.
í nefndina voru kjörnir: Þor-
valdur Jónsson, Valgarður Har
aldsson og Haukur Haraldsson.
Mikill einhugur rí'kti á fund-
inum um vaxandi brautargengi
jafnaðarstefnunnar á Akureyri.
Fundur með vatnsveitustjóra.
Kvöldið eftir (mánudags-
kvöld 24. nóv.) hélt Trúnaðar-
ráð fund og mætti á þeim fundi
Sigurður Svanbei-gsson vatns-
veitustjóri bæjarins er flutti
fróðilega skýrslu um vatnsveitu
mál bæjarins. Að erindi vatns-
veitustjóra loknu var mörgum
fyrirspurnum beint til hans og
svaraði vatnsveitustjóri þeim
öllum á greinargóðan hátt — og
færir AM hér með vatnsveitu-
stjóra beztu þakkir fyrir komu
sína á fundinn.
Tvö stórmál fyrir Akureyringa
VATNSVEITA - HITAVEITA frá HÖRGÁRDAL
Akureyri 3. des. S. J.
NÚ VIRÐIST vera kominn já-
kvæður skriður á 2 stórmál,
sem renna mun stoðum undir
framtíðargengi Akureyrar, þ. e.
aukna vatnsmiðlun og hitaveitu
fyrir bæinn. Hvað vatnsmiðlun
snertir koma 2 leiðir til greina.
Hin fyrri að vatnið verði leitt
til bæjarins frá Vaglalandi í
Hörgárdal, en hin síðari að
hreinsistöð verði sett upp í
Glerá. Munu flestir bæjarfull-
trúar hallast að hinni fyrri, en
vatnsveitustjóri hefur lagt fram
ýtarlega skýrslu um þetta mál.
Leit að vatni í bæjarlandinu og
fram í Eyjafirði hefur lítinn
árangur borið — og hefur vatns
veitustjóri lagt réttilega á það
áherzlu að framtíðarlausn á
þessu mikilvæga máli verði að
hraða sem mest.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
var samþykkt að kjósa 5 manna
vatnsveitunefnd, vatnsveitu-
stjóra og bæjarverkfræðingi til
aðstoðar.
Flestir bæjarbúar munu að-
hyllast það að framtíðarlausnin
varðandi vatnsþörf bæjarins
vreði affarasælli með því að
velja fremur jarðlindir Hörgár-
dals, en hreinsistöð í Glerá þótt
stofnkostnaður verði nokkuð
meiri, en samkvæmt athugun
mun þar vera nægilegt vatns-
magn í jörðu, jafnvel þótt bær-
inn vaxi ört í náinni framtíð.
Og svo er það hitaveitan.
Á nálægum þeim stað er Ak-
ureyringar munu sennilega fá
neyzluvatn er heitt vatn óbeizl-
að í iðrum jarðar, sem bíður
eftir beizlun til hitagjafa fyrir
höfuðstað Norðurlands — og
hefur bæjarstjórn Akureyrar
farið þess eindregið á leit að
Norðurlandsbörinn svokallaður,
sem nú hefur lokið borun í
Bjarnarflagi við Mývatn, verði
fengin til áframhaldandi bor-
unar að Laugalandi á Þelamörk,
og var bæjarstjóra á síðasta
bæjarstjórnarfundi falið umboð
til að taka lán til þeirra fram-
kvæmda — og er ætlunin að
þær framkvæmdir verði hafnar
á þessum vetri. Kostnaður við
hinar nýju boranir munu nema
um 7—8 milljónum króna. Sam-
kvæmt áliti sérfræðinga Orku-
(Framhald á blaðsíðu 5)
N\\V
N
Hitaveita orðin staðreynd á Dalvík
Akureyri 8. nóv. S. J.
í DAG, þann 8. nóv. sl., átti
formlega að taka í notkun hita-
veituna á Dalvík með nokkurri
viðhöfn, en sökum illviðris var
því frestað. En nú er það orðin
söguleg staðreynd að Dalvík-
ingar hafa beizlað heita vatnið
að Hamri í Svarfaðardalshreppi
— og er það nú þegar orðinn
hitagjafi allmargra húsa í kaup
túninu, þar á meðal skólans og
hins glæsilega íþróttahúss og
félagsheimilis Víkurröst — og
er ætlunin, ef tíð'arfar leyfir í
vetur, að halda áfram að tengja
hús við hitaveitukerfið.
Mjög hraðar framkvæmdir.
Framkvæmdir hófust í júlí-
mánuði á sl. sumri og má segja
að framkvæmdir hafi gengið
óvenjulega vel — og fæst vatn-
ið úr 2 borholum í Hamarsmýr-
um, sem er í ca. þriggja km.
fjarlægð frá Dalvík, en jörðin
Hamar er í Svarfaðardalshreppi,
eign hreppsins, en jörðin hefur
verið í eyði í allmörg ár.
Vatnið er um 54 stiga heitt er
það kemur inn í húsin, en er 61
stiga heitt í annarri borholunni
og gefur hún 17 sekúndulítra.
N\N\
Endurskinsmerki
N
YFIRLÖGREGLUÞJÓNN tjáði
blaðinu að nú væru aftur fyrir
hendi endurskinsmerki, og
hefðu þau borizt sér í gær, en
hörgull hefur verið á þeim að
undanförnu. Kosta þau 44 kr.
pakkinn og munu þau verða til
afgreiðslu strax á morgun. Sölu
staoðir verða í Glerárstöðinni,
Veganesti í Glerárhverfi, Þórs-
hamar, tóbaks og sælgætissalan,
og Ferðanesti við Eyjafjarðar-
braut.
Klippa má út endurskins-
merkin eftir smekk hvers og
eins. Endurskinsmerkin veita
aukið öryggi í umferðinni.
Hin holan gefur aftur á móti
hálfan fimmta lítra af vatni sem
er 45 stiga heitt.
Mun nægja í bráð.
Þetta vatnsmagn mun nægjai
þoi'pinu í bráð, en með stækkun
kauptúnsins í framtíðinni mun
aukning reynast nauðsynleg og
mun ugglaust unnt að finna
meiri jiarðhita í Hamarsmýrum,
svo að Dalvík mun án alls efa
verða „heitur bær“ í fi’amtíð-
inni.
AM árnar Dalvíkingum til
hamingju með þennan dugnað
sinn Sg framtak. Dalvík telur
rúmlega 1000 íbúa — og mun
ugglaust bætast í hóp norð-
lenzkra kaupstaða innan tíðar,
því að kauptúnið hefur ákjósan
leg vaxtarskilyrði til að bera,
þar er þegar rekin mikil útgei-ð,
blómlegur landbúnaður er rek-
inn í Svarfaðardal — og í. samn
ingsgerð Norðurlandsáætlunar
hlýtur að vera gert ráð fyrir
uppbyggingu iðnaðar á Dalvík.
MIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIMIIIIIIIIMMIIIII lllll II 1111111111111,1.
! Nú koma KR-ingar! |
I KR og KA leika í íþrótta- I
| skemmunni á Akureyri laug i
i ardaginn 6. des. kl. 5 e. h. 1
i (Ath. verzlanir opnar til kl. =
i 4). Á undan Ieikur 4. fl. i
i karla KA og Þór.
i Verð aðgöngumiða er kr. i
i 75.00, en kr. 25.00 fyrir böm. i
i Á sunnudaginn kl. 2 e. h. i
i verður háð hraðmót, en þátt i
i takendur í því eru: KR, KA, i
i Þór og Dalvíkingar.
i Tekst KA að sigra KR? |
i Þeim tókst að sigra Fram um i
i síðustu helgi.
•"lllllllMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMMI*
BÆKUR OG HÖFUNDAR - sjá bls. 5