Alþýðumaðurinn - 06.03.1970, Síða 4
iiiMniiMi>>>>>>>>>>»»»»»>1|»||»>BM>ii,F|>>>>»»»»»»»»»utuuuuuuluuuu»»u»u»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»llu»»»»»»»»»»u»»»»»»»uuuuu»uuuuuuuuuluuuulllllilllullu>UIUIIIIIU!llllimilllullllllllilllullulllllllulli,lllllllullllilllllllllllllulllU111^
Ritstjórl: SIGDRIÓN JÓHANNSSQN (ób.).
Útgetandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG AKUR-
EYRAR. — Aigreiðsla og auglýsingar:
Strandgötu 9, II. hæá, sími (96)11399. —
Prentverk Odds Björnssonar h.l., Akureyrl
ALÞYÐUMAÐURINN
IMÁL MÁLANNA I
s
5
STÆRSTA mál Akureyrarkaupstaðar nú er aukning I
raforku. Takist ekki að afla aukinnar raforku til bæj- |
| arins, er raunar borin von um nokkum umtalsverðan |
vöxt hans um næstu framtíð. Takist hins vegar vel um |
i þetta stórmál, ætti iðnaður og aðrar atvinnugreinar i
; að eiga hér vaxtarskeið framundan. En þetta mál er |
miklu víðtækara en svo, að snerti Akureyri eina. Þetta í
I er mál alls kjördæmisins, þótt segja megi, að bæina I
! og kauptúnin snerti það mest, að því leyti sem þar |
býr mestur mannfjöldinn.
ÞAÐ er raunar furðulegt, hvað íbúar þessa héraðs eða |
kjördæmis hafa þagað við hinum skefjalausa áróðri, |
sem tiltölulega fámennur hópur hefir haft uppi gegn I
svonefndri Gljúfurversvirkjun í Laxá í Þingeyjar- I
þingi, þegar haft er í huga, að öllum íbúum kjör- I
dæmisins er lífsnauðsyn að fá aukna raforku, eigi i
byggðin að blómgast með eðlilegum nútíðarhætti.
HÉR skal að sjálfsögðu ekki gert lítið úr fegurð Laxár |
né þeirra sveita, er vatnasvið Laxár liggja um, en með |
allri virðingu fyrir náttúrufegurð, þá verða lífsskilyrði |
íbúa héraðsins að metast í fyrsta sæti, og raforka að §
teljast dýrmætari en laxveiði eða hagsmunir þeirra i
fáu, er af því taka sitt lifibrauð, en ósannað er raunar |
með öllu, að þetta geti ekki allt farið saman.
í ÖLLU moldviðrinu, sem þyrlað hefir verið upp I
gegn Gljúfurversvirkjun ásamt tilfinningahita með i
meiru, hefir hvergi örlað á gildum rökum gegn því, i
að hún sé ódýrasta og öruggasta virkjun, sem íbúar |
Norðurlandskjördæmis eystra eiga völ á. Það er og |
eina virkjunaraðstaðan, sem hægt er að hefja þegar |
framkvæmdir við, en raforkuskorturinn rekur nú |
mjög á eftir. Þegar haft er í huga, að kunnáttumenn 5
fullyrða, að Mývatnssveit er að engu hætt, þótt hluta i
vatnsmagns Suðurár og Svartár yrði veitt um farveg 1
Krákár í Laxá og áratugareynsla er t. d. í Noregi af j
traustleika jarðvegsstíflna líkum þeirri, sem hugsuð er I
í Laxárgljúfrum vegna Gljúfurversvirkjunar og ósann-
að er með öllu, að virkjun þessi hafi í nokkru trufl-
andi áhrif á laxagengd og laxveiði í Laxá, þá virðist
einsætt, að kjördæmisbúar sameinist um þessa fram-
kvæmd til vaxtar og viðgangs búsetu sinni og efnahag.
Reynt er að slá á átthagastrengi Laxárdalsbúa, og auð-
vitað verður dalurinn með öðru yfirbragði að gerðri
Gljúfurversvirkjun. En hvorttveggja er, að byggð er
þegar að þoka úr Laxárdal, og hver er kominn til að
fullyrða, að Laxárdalur verði ófegurri eftir virkjun en
fyrir, þótt með öðrum hætti verði?
DALVlKURBÚAR, Árskógssands- og Hauganesbúar,
Akureyringar og aðrir íbúar Vaðlaþings, Húsvíkingar,
Raufarhafnar- og Þórshafnarbúar og aðrir Þingeying-
ar ættu að hugleiða vel, hvílíkt óþurftarverk þeir fáu,
en hávaðasömu menn eru að reyna að vinna gegn hér-
aði sínu og íbúum þess, þegar þeir hamast gegn Gljúf-
urversvirkjun, sem er mál málanna fyrir allt Norður-
landskjördæmi eystra, alla íbúa þess, þegar það er
skoðað með raunsæisaugum. Verðugasta hlutverk Lax-
ár er að vera ljós- og orkugjafi blómlegrar menningar-
byggðar um allt kjördæmið vestan frá Ólafsfjarðar-
múla og austur um Langanes, en auðvitað á að með-
höndla liana af skynsemi, þekkingu og virðingu, þótt
tilfinningasjúk náttúruverndarstefna með sýndar-
mennskuveiðisjónarmið á bakinu sé ekki látin ráða
ferðinni.
fliiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiKHiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiii
^.....
BLL AÐBÚÐ VÉLSKÓLANS
A AKUREYRI.
Vélskólanemi leit inn til
blaðsins nýverið og bað um, að
það vekti athygli á hinu slæma
húsnæði er Vélskóladeildin á
Akureyri hefur til umráða og
ónógtmi tækjakosti. Nemand-
inn, er ábyrgðarmaður blaðsins
þekkir vel, bar kennaraliði og
skólastjóra, Bimi Kristinssyni,
mjög góðan vitnisburð — og
kom heim og saman, það er AM
áður vissi að Bjöm Kristinsson
skólastjóri Vélskóladeildarinn-
ar og kennaralið hans liggur
ekki á liði sínu varðandi
fræðslu í þágu verðandi vél-
stjóra, hvort sem þeir eiga eftir
að starfa í þágu þjóðarbúsins á
sjó eða landi. Nemandinn vildi
aðeins vekja athygli á við’
hvaða skilyrði Vélskóladeildin
á Akureyri á við að búa. Bók-
nám fer fram í allbærilegu hús-
næði við Gránufélagsgötu en
svo er upp talið. Verk- og vél-
fræðikennsla fer fram niður á
Eyri í lekum skúr og þröngum,
þar sem tæki liggja undir
skemmdum. M. a. sagði vélskóla1
neminn, er rennibekkur skól-
ans svo illa farinn að stórhætta
gæti verið fyrir viðvaninga að
koma nálægt honum. Vélskóla-
neminn bað AM fyrir þær upp-
lýsingar til norðlenzkra lesenda
að Vélskóladeildin á Akureyri
væri á algerum hrakhólum
hvað húsnæði og tækjabúnað
snerti, er háði mjög starfsemi
skólans, þrátt fy’rir að fyrir
væru úrvalskennarar og sagði
hann einnig, að skólinn væri
enn ver á vegi staddur, ef skóla
stjórinn hefði eigi lagt fram sín
eigin tæki til kennslunnar.
Einnig sagði hann að Shell og
BP hér á Akureyri hefðu með
tækjagjöfum sýnt Vélskóladeild
inni lofsverðan stuðning — og
mættu fleiri fyrirtæki - á eftir
koma með slíkum stuðningi við
skólann. Ofanritað er megin-
mál þess er vélskólanemanum
lá á hjarta — og tekur AM
skorinort undir málflutning
hans. — s. j.
BLÓMVÖNDUR.
í dagblaði í Stór-Reykjavík
S -............
----------
birtist eftirfarandi frétt, eftir
fréttariatra AP í Stokkhólmi,
undir fyrirsögninni „Blómvönd
urinn kostaði brottrekstur.“ —
Vill AM birta þá frétt orðrétta
— og um leið stuttan eftirmála.
AM finnst sjálfsagt að verða við
tilmælum bréfritara, og hér
kemur fréttin frá Stokkhólmi,
sem um er getið, en á eftir stutt
ur en gagnorður eftirmáli bréf-
ritara.
Tveimur starfsstúlkum á flug
vellinum í Prag hefur verið sagt
upp starfi vegna þess að þær
færðu Alexander Dubcek fyrr-
um forsætisráðherra blóm í
fyrra mánuði er hann lagði af
stað til Tyrklands til að taka viðl
sendiherraembætti þar.
Fregn þessi cr liöfð eftir ferða
mönnum, sem komnir eru til
Stokkhóhns, en voru viðstadd-
ir þegar Dubcek hélt frá Prag,
Segja þeir að lögregluvörður
hafi hindrað viðstadda á flug-
vellinum í að komast að Dubcek
til að kveðja liann, en nokkrar
starfsstúlkur frá NSA-flug-’'
félaginu tékkóslóvakíska hafi
þó komizt til hans og færðu þær1
honum blómvönd.
Nú fj’rir skömmu voru stúlk-
ur þessar yfirlieyrðar hjá lög-
reglunni. „Lögreglan vildi fá að
vita í hvaða leynisamtökum
stúlkumar væru.“ sagði einn
ferðalangurinn, „og var stúlk-
unum bent á að þær hefðu
aldrei haft áhuga á að kaupa
blóm handa sovézka sendiherr-
anuni. Var stúlkunum tilkynnt
að framkoma þeirra væri ögrun
við j’firvöld. Tvær stúlknanna
voru reknar úr vinnunni, og
11 \\V> -...........—
aðrar fá sennilega sömu refs-
ingu á næstunni.“
EFTIRMÁLI. Er frú Soffía
Guðmundsdóttir, fyrsti kandi-
dat á lista hins tvístraða AI-
þýðubandalags við bæjarstjórn
arkosningamar í vor hér á Ak-
ureyri fulltrúi gegn lýðræðis-
sósialisma Dubcek, er hann
vildi koma á í landi sínu, en
var meinað með innrás Kreml-
valdsins? Er frú Soffía tónlistaJ
gagnrýnandi Dags fulltrúi þess
valds þar sem gjöf á blómvendi
getur í siunum tilfellum varðað
atvinnumissi? — Akureyringur.
FYRIRSPURN.
Herra ritstjóri. Mig langar til
að fá upplýst í blaði yðar, hverj
ir það eru, sem sjá um dreif-
ingu á sjónvarpsdagskránni hér
á Akureyri. Er það sjálft sjón-
varpið eða menn á þess veg-
um? Það er einkennilegur
trassaskapur á þessari dreif-
ingu. Vanalega kemur dagskrá-
in í búðimar á laugardögum og
þá oft ekki fyrr en rétt fj’rir
lokun, svo margir verða of sein
ir að ná sér í skrá, og það sem
eftir verður lokast svo inni þar
til á mánudegi. Það er eins og
ekkert sé hugsað um, að koma
skránni í þær búðir sem hafa
opið á laugardögum og sunnu-
dögum. Af þessum sökum hef-
ur margur maðurinn þurft að
fara búð úr búð á laugardögum
og sunnudögum, án þess að fá'
nokkra skrá. Ég held að betra
væri að engin sérstök sjónvarps
dagskrá kæmi út, þá sparaði
margur maðurinn sér leit að
því, sem hann svo aldrei finnur.
Eins og margir aðrir, þá er ég
orðinn uppgefinn á þessu stappi
og því farinn að klippa skrána
úr einu Reykjavíkur-blaðinu,
þar sem liún er prentuð í heilcí
á sömu blaðsíðunni fyrir kom-
andi viku, og því miklu aðgengi
legri en sú sérprentaða, en þar
þarf að leita innanum allskonar
auglýsingar að hverjum degi
fyrir sig. 1
Ég lield að bezta lausnin á
jiessu máli væri sú, að viku-
blöðin hér á Akureyri, sem
(Framhald á blaðsíðu 7)
MESSAÐ í Akureyrarkirkju á
sunnudaginn kl. 2 e. h. Mið-
fasta. Sálmar nr. 390 — 367 —
208 — 54 — 207. Safnaðar-
ráðsfundur að lokinni messu.
Öldruðum veitt aðstoð til
kirkjunnar. Hringið í síma
21045 fyrir hádegi á sunnu-
dag. — P. S.
FÍLADELFÍA, Lundargötu 12.
Sunnudagaskóli hvern sunnu
dag kl. 1.30 e. h. Öll börn vel-
komin. — Almenn samkoma
hvern sunnudag kl. 8 e. h.
(athugiðbreyttantíma). Söng
ur og vitnisburðir. Allir vel-
komnir. — Saumafundir fyrir
telpur hvem föstudag kl. 5.30
e. h. Allar telpur velkomnar.
— Fíladelfía.
ÞRIÐJA spilakvöld SKT á
föstudagskvöld kl. 8.30 að
Bjargi. Dansað til kl. 1.00.
KRISTNIBOÐSHÚSIÐ ZION.
Sunnudaginn 8. marz. Sunnu
dagaskóli kl. 11 f. h. Öll börn
velkomin. — Samkoma kl.
8.30 e. h. Ingólfur Georgsson
talar. Allir hjartanlega vel-
komnir.
SUNNUDAGASKÓLI Akureyr
arkirkju er á sunnudaginn
kemur kl. 10.30 f. h. Nýja
myndin komin. Yngstu böm
í kapellu, eldri börn í kirkju.
— Sóknarprestar.
SHJÁLPRÆÐISHERINN
Fimmtudaginn kl. 8.00
>\ æskulýðsfundur og
sunnudaginn kl. 8.30
almenn samkoma. Allh- vel-
komnir.
HJÚKRUNARKONUR. Fund-
ur verður í Systraseli mánu-
daginn 9. marz kL 9 e. h. Þór-
oddur Jónasson héraðslæknir
kemur á fundinn. — Stjórnin.
SKÍÐAMÓT U M S E,
fyrri hluti, fer fram 14.
og 15. marz. Keppt verð
ur í göngu og stökki.
Nánar auglýst í bréfi. —
UMSE.
VESTFIRÐIN G AR. Árshátíð
félagsins verður á Hótel KEA
laugardaginn 7. marz og hefst
með borðhaldi kl. 7 e. h. Að-
göngumiðar afhenth- á Hótel
KEA fimmtudaginn 5. marz
og föstudaginn 6. marz kl. 8
til 10 e. h. — Árshátáðanefnd.
MINJASAFNIÐer opið á
sunnudögum kl. 2 til 4 e. h.
Tekið á móti skólafólki og
fei-ðafólki á öði-um tímum ef
óskað er. Sími safnsins er
1-11-62 og safnvarðar 1-12-72